Skessuhorn - 12.06.2013, Page 32
ÞÚ FÆRÐ MEIRA Í STOFNI
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Frá hádegi laugardaginn 22. júní
næstkomandi til hádegis sunnu-
daginn 23. júní fer fram sólstöð-
uganga í Þjóðgarðinum Snæfells-
jökli. Þessi sólarhrings ganga er um
leið áheitaganga fyrir björgunar-
sveitina Lífsbjörg í Snæfellsbæ. Það
er ferðaþjónustufyrirtækið Út &
vestur, www.gowest.is, sem skipu-
leggur og sér um sólstöðugöng-
una ásamt starfsfólki þjóðgarðsins
og björgunarsveitinni Lífsbjörg, en
fyrirtækið leggur mikla áherslu á
skipulagningu ferða á Breiðafjarð-
arsvæðinu. Sólstöðugangan í fyrra
var einnig í umsjón Út & vestur
en þá var hún reyndar mun styttri
en nú, eða á jökulinn frá jökul-
sporði. Að sögn Jóns Jóels Einars-
sonar hjá Út & vestur var það ein-
mitt í þeirri göngu sem hugmynd-
in að sólarhrings sólstöðugöngu
kviknaði. Hún kom frá þýskri konu
sem var með í ferðinni og upplifði
stemninguna í ferðinni. „Svona sól-
arhrings gönguferðir eru mjög vin-
sælar víða um heims, svo sem á
Alpasvæðinu og norrænum slóð-
um,“ segir Jón Jóel.
Hann segir að ætlunin sé að
standa svo vel að sólstöðugöngunni
núna að hún verði árlega, þannig að
ferðaþjónar og fleiri á svæðinu njóti
góðs af. Út & vestur skipuleggur
ætíð ferðir í samvinnu við heima-
aðila og leggur áherslu á að halda á
lofti sögu og menningu hvers svæð-
is. Jón Jóel segir tilganginn með
sólahringsgöngunni að skapa upp-
lifun og um leið afla fjár til góðs
málefnis, sem björgunarsveitirn-
ar eru. „Ferðin núna verður m.a.
notuð til að prófa þær leiðir sem
við teljum heppilegast að fara með
fólki í svona sólarhrings gönguferð-
ir,“ segir Jón Jóel. Gengið verður í
slóð verndarans Bárðar Snæfellsáss
og eins og áður segir safnað áheit-
um í þágu björgunarsveitarinnar
Lífsbjargar. Gangan hefst í Dritvík
þar sem Bárður tók land og endar
24 tímum síðar í Tröðinni á Hellis-
sandi. Jón Jóel segir að þegar kom-
ið verði að Arnarstapa verði hald-
ið upp á jökulinn og komið niður í
Eysteinsdal. Þaðan verði svo valin
góð leið niður á Hellisstand.
Menningarviðburður
„Gangan verður sannkallaður
menningarviðburður, því heima-
menn munu troða upp með fróð-
leik og ýmsa skemmtan nánast alla
leiðina. Náttúruundrin, sagan og
dulúð næturinnar verður vissu-
lega nálæg eins og björgunarsveit-
in Lífsbjörg sem mun tryggja ör-
yggi göngumanna. Veitingastað-
ir og ferðaþjónar á svæðinu munu
líka leggja sitt af mörkum með
góðri næringu og sjálfboðavinnu,“
segir m.a. í tilkynningu vegna sól-
stöðugöngunnar. Jón Jóel segir að
mikil vinna hafi verið lögð í undir-
búning göngunnar, en hægt er líka
að koma inn í hana við Arnarstapa,
ekki nauðsyn að ganga alla 24 tím-
ana. „Þegar göngufólk kemur niður
af jöklinum verður hægt að komast
í fótanudd í Eysteinsdal, þar bíða
tvær fótaaðgerðakonur tilbúnar að
hressa upp á þreytta fætur. Gangan
er ekki kappganga en þolraun engu
að síður fyrir flesta,“ segir Jón Jóel.
Mæting verður í gönguna laug-
ardaginn 22. júní kl. 9:30 við Hót-
el Hellissand og brottför þaðan er
með rútu kl. 10. Gangan hefst síð-
an kl. 12 frá Dritvík. Þátttökugjald
er kr. 25.500. Innifalið í því er rú-
tufar innan svæðisins, leiðsögn, ör-
yggisgæsla, veitingar á fimm áning-
arstöðum, öryggisbúnaður á jökli,
fótanudd, aðgangur í Lýsuhólslaug,
áletraður bolur og viðurkenning-
arskjal. Að auki fá 30 fyrstu til að
skrá sig 15% afsláttarkort í Inter-
sport, sem gildir út árið. Hámarks-
fjöldi þátttakenda er 60 manns.
Nánari upplýsingar um dagskrá og
skráningu í gestastofu þjóðgarðsins
í síma 836-8688 og hjá Út og vestur
í s. 694-9513 / 695-9995. Sjá nánar
um dagskrá á www.gowest.is
þá
Sólstöðugangan Lífsbjörg undir Jökli
Jón Jóel Einarsson hjá Út & vestur.
Gengið verður í slóð Bárðar
Snæfellsáss.
Göngufólk í sólstöðugöngu á Snæfellsjökli.