Skessuhorn


Skessuhorn - 18.09.2013, Qupperneq 8

Skessuhorn - 18.09.2013, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2013 Það voru sannkallaðir stórtónleikar sem fóru fram í sal Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði á sunnu- daginn þegar fortónleikar frönsk- íslensku sinfóníuhljómsveitarinnar voru haldnir. Hljómsveitin er skip- uð hljóðfæraleikurum úr Kamm- ersveit Reykja- víkur og alþjóð- legu fílharmon- íusveit Menning- arstofnunar Sam- einuðu Þjóðarinn- ar (Unesco) í París sem starfar und- ir leiðsögn hljóm- s v e i t a r s t j ó r a n s Amine Kouider, friðarlistamanns Unesco. Sveitin spilaði verk eftir tónskáldin Albert Roussel, Þorkel Sigurbjörnsson og Pyotr Tchaikovsky. Einleikari var Martial Nardeau flautuleikari. Vel var mætt á tónleikana en að- gangur var ókeypis. Sveitin spilaði óaðfinnanlega tóna sem áheyrend- ur kunnu vel að meta. Meðal gesta voru þeir Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra Íslands og Ein- ar Kr. Guðfinnsson forseti Alþing- is. Einnig voru góðir gestir frá Pa- impol vinabæ Grundarfjarðar við- staddir, þeirra á meðal Jean-Yves de Chaisemartin bæjarstjóri Paim- pol. Sveitin spilaði svo daginn eft- ir í Hörpunni í Reykjavík en þann dag voru 77 ár liðin frá því að franski vísindamaðurinn Jean Bapt- iste Charcot og nær öll áhöfn hans á rannsóknarskipinu Pourquoi Pas? fórst við Álftanes á Mýrum 16. september 1936. tfk Íslandsmót Félags áhugafólks um íþróttir aldraðra í pútti 60 ára og eldri fór fram föstudaginn 6. sept- ember sl. á golfvellinum í Nesi í Reykholtsdal. Til leiks mættu 13 sveitir. Keppt var á tveimur níu holu völlum og leiknar 36 holur. Undirbúningur og framkvæmd var í höndum félaga eldri borgara í Borgarbyggð. Sveinn Hallgríms- son formaður FAB setti mótið en einnig ávarpaði Bjarni Guð- ráðsson bóndi í Nesi keppend- ur. Mótið gekk vel og létu kepp- endur vel af allri aðstöðu. Verð- launaafhending var síðan í hönd- um formanna félaga eldri borg- ara í Borgarbygg, þeirra Sveins og Guðrúnar Maríu, og Þóreyj- ar S. Guðmundsdóttur formanns FÁÍA. Úrslit urðu þessi: Konur 1. Jytta Juul, Borgarfirði, 74 högg 2. Þórey S. Guðmundsdóttir, Reykjavík, 75 högg 3. Ólafía Hrönn Ólafsdóttir, Garðabæ, 78 högg 3. Ingibjörg Björnsdóttir, Kópa- vogi, 78 högg Karlar: 1. Bergsteinn Pálsson, Mosfellbæ, 68 högg 2. Arelíus Harðarson, Hafnarfirði, 69 högg 3. Sigurður Á. Finnbogason, Kópavogi, 69 högg Sveitakeppni: 1. FaMos, Mosfellsbæ, 207 högg 2. FebH, Hafnarfirði, 215 högg 3. Feb Gullsmára, Kópavogi, 216 högg. fj Þau Gunnar Gunnarsson og Est- er Gunnarsdóttir eru hætt störf- um sem umboðsmenn Olís í Ólafs- vík og hefur Björn Hilmarsson tek- ið við sem umboðsmaður Olís, en hann hefur mikla reynslu af þjón- ustustörfum. „Ég hef verið í sölu- og þjónustustörfum í 30 ár, vann hjá Japís og nú undanfarið hjá Ný- herja,“ segir Björn í samtali við Skessuhorn. Hann flutti nýver- ið ásamt fjölskyldu sinni í Ólafsvík þaðan sem kona hans er. „Okkur hafði lengi langað að koma hingað vestur og þegar tækifæri gafst sig sló maður til. Þetta leggst gríðar- lega vel í mig og Ólafsvík er góður staður til að búa á,“ segir Björn. Olís í Ólafsvík þjónar mörgum útgerðum á svæðinu í olíu og olíu- vörum en einnig selur Olís hrein- lætisvörur, fatnað frá Ellingsen og sitthvað fleira. „Í byrjun höld- um við þessu óbreyttu á meðan við komumst inn í starfið, en von- andi getum við aukið við í framtíð- inni. Við viljum halda þessari góðu þjónustu sem Gunni og Ester eru búin að veita. Við viljum þó reyna að horfa fram á veginn og stækka okkar hlutdeild og teljum okk- ur hafa alla burði til þess. Þetta er gott fyrirtæki með gott vöruúrval,“ segir Björn. Umboðsmenn í 22 ár Þau hjón Gunnar og Ester hafa verið umboðsmenn Olís sl. 22 ár. Þegar Gunnari bauðst að taka við umboðinu hafði hann verið á sjó samfellt í 27 ár og tilboðið hafi því freistað. Hann segir að starf- ið hafi alltaf verið mjög fjölbreytt en þegar hann tók við voru tölv- urnar ekki komnar í notkun og allt var þyngra í vöfum en nú í dag. Vinnudagarnir voru mjög langir og fyrsta sumarið þjónaði Gunn- ar tugi trilla, dældi olíu á hústanka og rak „gömlu sjoppuna.“. Hún var í frekar litlu húsnæði en nýtt hús- næði var tekið í notkun árið 1994. Ennfremur segir Gunnar að þau hefðu ekki ráðið við þetta allt án þessa góða fólks sem þau höfðu í vinnu og eru þau mjög þakklát fyr- ir það. Árið 2006 var gerð ákveð- in breyting hjá Olís þannig að Olís ræki stöð í Stykkishólmi en um- boðið yrði áfram í Ólafsvík. Þá var verslunin flutt í núverandi húsnæði við Ólafsbraut. Þau hjónin segja að þessi 22 ár hafi verið annasöm en jafnframt viðburðarík og eftir sitji þakklæti til alls þess góða fólks sem þau hafi kynnst í starfi sínu og vilja þau senda sínar bestu kveðjur. sko/þa Kynningarfundur um verkefnið Hittu heimamanninn var haldinn í Dölum 10. september síðastlið- inn, en verkefnið fékk öndvegis- styrk upp á sjö milljónir króna frá Vaxtarsamningi Vesturlands í júní á þessu ári. Hittu heimamanninn snýr að því að byggja upp pers- ónulega ferðaþjónustu í Dölum utan háannatíma til langs tíma með því að virkja heimamenn til starfa í ferðaþjónustu og tengja það við störf og líf fólksins í Dölum. Ferða- þjónusturnar Þurranes, Erpsstaðir og Þaulsetur halda utan um verk- efnið. „Okkur langar að efla þá sem þegar eru með eitthvað í boði og reyna að fá nýja til að koma inn. Öll ferðaþjónustan helst í hendur og ef við fáum fleiri til starfa þá styrkir það aðra aðila í ferðaþjónustu eins og til dæmis matsölustaði,“ seg- ir Halla Sigríður Steinólfsdóttir í Ytri-Fagradal sem er í hópi forvíg- ismanna í verkefninu. Halla segir mætingu á fundinn hafa verið góða en auk fundarins voru kynningarbæklingar sendir út. „Við fengum góðan slatta af Dala- mönnum á kynningarfundinn sem er hið besta mál. Einnig komu tveir aðilar frá Vaxtarsamningnum og það var ágætt fyrir heimamenn að fá utanaðkomandi til að ræða þess- ar mörgu góðu hugmyndir,“ seg- ir Halla. Kynningarfundurinn var samhliða óvissuferð þar sem verk- efnið var kynnt og umræður fóru fram. „Við fórum á Seljanes í Reyk- hólasveit. Þar hafa húsráðendur gaman af að taka á móti fólki og eru gott dæmi um ferðaþjónustubænd- ur,“ segir Halla. Óvenjuleg ferðaþjónusta Hún segir það skipta máli að aðilar sem taki á móti ferðafólki hafi gam- an af því. „Við gerum mikið út á að þetta sé skemmtilegt og að þeir sem standi í því að taka á móti ferða- mönnum hafi gaman af. Þá smit- ar það út frá sér og ferðamaðurinn hefur líka gaman. Sumir ferðamenn vilja jafnvel ræða við heimamenn og fara út fyrir hina hefðbundnu ferðaþjónustu. Kannski er einhver ferðamaður svo langt leiddur að hann vill forvitnast um hvað Dala- menn séu að gera í sínu daglega lífi. Kannski vill hann komast í fjárhús eða upplifa eitthvað annað óvenju- legt. Jafnvel er hægt að ræða við ferðamenn um það að skjóta ref eða að gera upp gamla bíla og vélar,“ nefnir Halla sem dæmi. Halla í Fagradal segir þá sem að verkefninu koma vera afar þakk- láta fyrir styrkveitinguna. „Styrk- urinn mun fara í fræðslu, markaðs- rannsóknir, gæðastýringu og ann- að það sem eflir ferðaþjónustu utan háannatíma. Erum kannski ekki að finna upp hjólið, en styrkurinn gerir okkur kleift að sinna betur grunnþáttunum en ella,“ segir hún að endingu. sko Íslandsmót FÁÍA í pútti fór fram í Nesi Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra, Einar Kr. Guðfinnsson forseti Alþingis og Björn Steinar Pálmason bæjarstjóri Grundarfjarðar stilltu sér upp fyrir myndatöku ásamt frönskum gestum að tónleikum loknum. Fifo hélt tónleika í Grundarfirði Fifo sveitin er samstarf Frakka og Íslendinga. Hittu heimamanninn gengur út á að virkja íbúa Dalabyggðar í ferðaþjónustu. Þessi mynd er tekin á Seljanesi í Reykhólasveit þangað sem Dalamenn fóru í heimsókn í ferð sinni nýverið. Ljósm. gó. Kynna verkefnið Hittu heimamanninn í Dölum Björn Hilmarsson tekur hér við lyklunum frá Gunnari og Ester. Ljósm. þa. Nýr umboðsmaður tekur við hjá Olís í Ólafsvík

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.