Skessuhorn - 18.09.2013, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2013
Vörur og þjónusta
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
PARKETLIST
PARKETSLÍPUN
OG LÖKKUN
Sigurbjörn Grétarsson
GSM 699 7566
parketlist@simnet.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Hilmir B ehf
Alhliða pípulagningaþjónusta
Sími 820-3722 • hilmirb@simnet.is
Flutningar fyrir
einstaklinga &
fyrirtæki
STEINI STERKI
Borgarnesi
861 0330
SENDIBÍLA
ÞJÓNUSTA
Þorsteinn Aril íusson
861 0330
SENDIBÍLAÞJÓNU Réttum, sprautum
hjólastillum
Rúðuskipti
Almennar viðgerðir
Reitarvegi 3, 340 Stykkishólmi
690 2074 / 438 1586
TRÉSMIÐJAN AKUR EHF.
Trésmiðjan Akur ehf. • Smiðjuvöllum 9
300 Akranesi
Sími 430 6600 • akur@akur.is • www.akur.is
ÖLL ALMENN TRÉSMÍÐAÞJÓNUSTA
Endurbætur og nýsmíði
Þök – Klæðningar – Gluggar – Útihurðir – Sólpallar
Nafn: Sigrún Guttormsdóttir
Þormar
Starfsheiti/fyrirtæki: Verkefna-
stjóri hjá Snorrastofu
Fjölskylduhagir/búseta: Gift
og á uppkomin börn. Búsett í
Skorradal í landi Dagverðarness.
Áhugamál: Líkamsrækt, lestur
bóka - aðallega um víkingatíma-
bilið og miðaldir.
Vinnudagurinn: Föstudagurinn
13. september:
Hvenær mætt til vinnu? Mætti
til vinnu milli 9 og 10. Þennan
dag var haldin seinni dagur ráð-
stefna fulltrúa „Skáldasafna“ frá
Norðurlöndunum hjá okkur í
Reykholti, en hún átti að vera á
Akureyri en var flutt í Reykholt
vegna veðurs. Það var því nóg að
gera við að stilla upp, laga kaffi
og sinna ráðstefnugestum.
Hádegið? Í hádeginu reyndi ég
að fá mér smá matarbita milli af-
greiðslu gesta í gestamóttöku
Snorrastofu.
Klukkan 13? Þá tók ég á móti
eldri borgurum frá Grundar-
firði. Þeir komu hingað til að fá
leiðsögn um Reykholtskirkju og
Snorrastofu. Þegar klukkan var
14 var ég nýbúin að kveðja gest-
ina og horfði á eftir rútunni aka
burt.
Hvenær hætt og það síðasta
sem þú gerðir í vinnunni? Ég
gerði upp kassa verslunarinnar,
slökkti og læsti. Gestamóttakan
lokar kl. 17 yfir vetrartímann, en
við erum með opið alla virka daga
á vetrum frá kl 10. Á sumrin er
opið alla daga frá kl 10 til 18.
Fastir liðir alla daga? Allir dag-
ar eru mismunandi og fjölbreytn-
in gífurleg. Auðvitað eru alltaf
fastar rútínur eins og að kveikja
og slökkva ljós, gera upp kassa og
þess háttar.
Hvað stendur upp úr eftir
vinnudaginn? Heimsókn eldri
borgaranna frá Grundarfirði. Það
er alltaf svo yndislegt að fá eldri
Íslendinga í heimsókn hingað í
Reykholt og ég reyni að dekra
sérstaklega við þá.
Var dagurinn hefðbundinn? Já,
það má segja að í sínum óhefð-
bundleika hafi hann verið hefð-
bundinn. Alltaf eitthvað hefð-
bundið og óvænt í bland!
Hvenær byrjaðir þú í þessu
starfi? Ég er búin að vera í
Snorrastofu í tvö ár. Störf mín þar
eru margvísleg. Ég sé um færslur
á daglegu bókhaldi og sendi út
reikninga fyrir stofnunina. Einn-
ig sinni ég að hluta til markaðs-
málum og kynningarstarfi, sinni
ýmsum samstarfsverkefnum sem
við tökum þátt í. Þá hef ég far-
ið á ráðstefnur og kynningar er-
lendis fyrir stofnunina. Síðan er
ég í hlutastarfi í gestamóttöku
Snorrastofu. Hér tek ég á móti
gestum, afgreiði í glæsilegri versl-
un gestamóttökunnar og held
fyrirlestra um Snorra og Ísland á
miðöldum. Við fáum marga hópa
hingað í Reykholt sem óska eft-
ir fyrirlestrum. Hóparnir koma
mikið frá Norðurlöndunum og
það kemur oft í minn hlut að taka
á móti þeim og halda kynningar.
Er þetta framtíðarstarfið þitt?
Já, það vona ég svo sannarlega -
að þau ár sem ég á eftir á vinnu-
markaðinum verði hér.
Hlakkar þú til að mæta í vinn-
una? Já alltaf! Skemmtilegt starf
og fjölbreytt, en síðast og ekki
síst yndislegir kollegar og góður
andi í húsinu.
Eitthvað að lokum?
Eins óvænt og það nú atvikaðist
að ég hóf störf í Snorratsofu, þá
tel ég það vera gífurleg forrétt-
indi að fá að starfa hér og fá tæki-
færi til að kynna sögu og menn-
ingu þjóðar okkar fyrir gestum,
bæði innlendum og erlendum,
sem koma og heimsækja okkur.
Ég bjó erlendis í 30 ár, flutti til
baka til Íslands árið 2010 og hafði
alls ekki látið mér detta í hug að
það ætti fyrir mér að liggja að búa
í Borgarfirði og vinna í Reyk-
holti. En svona er það stundum,
lífið færir manni alltaf eitthvað
nýtt og hvetjandi til að fást við.
Fyrir mig hefur það allt verið já-
kvætt og spennandi.
Dag ur í lífi...
Verkefnisstjóra hjá Snorrastofu
Hjólum í skólann er nýtt verkefni
þar sem nemendur og starfsmenn
framhaldsskóla landsins keppa sín
á milli um að nýta virkan ferða-
máta sem oftast í og úr skóla. Með
virkum ferðamáta er t.d. átt við að
hjóla, ganga, hlaupa, fara á hjóla-
bretti/línuskautum eða í strætó til
og frá skóla. Hjólum í skólann fer
fram í fyrsta skipti dagana 16.-20.
september í tengslum við Evrópsku
samgönguvikuna, en stefnt er að því
að keppnin verði árviss viðburður á
samgönguviku. Hjólum í skólann
er samstarfsverkefni Íþrótta- og
Ólympíusambands Íslands, Hjóla-
færni á Íslandi, Embætti landlækn-
is, Reykjavíkurborgar, Samgöngu-
stofu og Sambands íslenskra fram-
haldsskólanema.
Í tilkynningu vegna verkefnisins
segir að markmið þess sé að vekja
athygli á virkum ferðamáta sem
heilsusamlegum, umhverfisvæn-
um og hagkvæmum samgöngumáta
meðal nemenda og starfsmanna
framhaldsskólanna. Á meðan á
Hjólum í skólann stendur verður
myndakeppni í gangi þar sem fram-
haldsskólarnir geta sent inn mynd
af sinni þátttöku í gegnum Facebo-
ok síðu verkefnisins eða á netfang-
ið kristin@isi.is. Dómnefnd sér svo
um að velja bestu myndina en einn-
ig verður tekið tillit til hversu mörg
„like“ hún fær á Facebook. Sá skóli
sem vinnur hlýtur 50.000 kr. til að
nýta til hjólaframkvæmda, segir í
tilkynningunni.
þá
Félagsmiðstöðinni Afdrepi í Snæ-
fellsbæ barst góð gjöf í vikunni.
Þær Svanhvít og Steinunn mættu
í Afdrep fyrir hönd Lionsklúbbs-
ins Þernu á Hellissandi og afhentu
félagsmiðstöðinni tvo grjónapúða
að gjöf. Að sögn Hafdísar og Hall-
dóru forsvarsmanna Afdreps eru
grjónapúðarnir kærkomin gjöf og
munu nýtast vel. þa
Lionskonur gáfu grjónapúða
Framhaldsskólakeppnin
Hjólum í skólann