Skessuhorn


Skessuhorn - 18.09.2013, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 18.09.2013, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2013 Málefni almenningssamgangna voru í brennidepli á aðalfundinum. Líkt og greint var frá á vef Skessu- horn í síðustu viku var leiðarkerfi 57, 58 og 59 sem SSV, Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Fjórðungssamband Vestfjarða og Eyþing bera ábyrgð á, rekið með um 16 milljóna króna halla á fyrsta rekstrarári sínu, eða frá september á síðasta ári til ágústloka á þessu ári. Það er Strætó bs. sem hefur yfir- umsjón með framkvæmd ferðanna í samstarfi við undirverktakta sem er fyrirtækið Hópbílar hf. í Hafn- arfirði. Í samantekt um stöðu og horfur í rekstri leiðarkerfisins sem lögð var fram á fundinum kem- ur fram að langstærsti hluti hall- ans megin rekja til afkomu á fyrstu fjórum mánuðum leiðarkerfisins (sept.-des 2012) þegar það var rek- ið með um 18 milljóna króna halla, en niðurstöðuna megi að hluta til skýra þannig að íbúar hafi verið á þeim tíma að átta sig á nýju kerfi og möguleikum þess. Afkoman hafi hins vegar verið betri eftir áramót, sérstaklega í sumar. Bagalegt ástand Aðrar ástæður eru einnig nefnd- ar fyrir hallanum í samantektinni og vegur þar einna þyngst lækkun stjórnvalda á niðurgreiðslu olíu- gjalds sem framkvæmd var í febrú- ar á þessu ári, en hún var ákveðin eftir að kerfið tók til starfa. Í sam- antektinni kemur fram að tekjutap af völdum lækkunarinnar nam 4 milljónum króna fyrir kerfið. Frek- ari lækkun niðurgreiðslu er loks boðuð á næstu tveimur árum sem mun reynast kerfinu dýrkeypt. Þá reyndust breytingar á leiðarkerfi í nóvember í fyrra dýrar í fram- kvæmd, kostnaður vegna viðbótar- ferða sem skipulagðar voru vegna kvartana notenda var nokkur og þá er talið að slæmt veðurfar í sumar hafi dregið úr ferðamannstraumi um leiðakerfið á Vesturlandi. Þá er nefnt að of miklar væntingar hafi verið gerðar til eftirspurnar eft- ir ferðum, sérstaklega á Snæfells- nesi og í uppsveitum Borgarfjarð- ar. Að auki kemur fram í saman- tektinni að ferðir rútufyrirtækisins Sterna í sumar á sömu leiðum og vagnar Strætó bs. hafi valdið ein- hverju tekjutapi á akstursleiðunum þremur, en fram kemur að óljóst sé hversu tapið er mikið. Því sé ein- sýnt að sérleyfið, sem landshluta- samtökin hafa á akstursleiðunum, haldi ekki og segir því í samantekt- inni að úrræðaleysi Innanríkisráðu- neytisins í málinu sé „mjög baga- legt“ fyrir reksturinn. Viðræður fyrirhugaðar Á aðalfundinum reifaði Ólaf- ur Sveinsson, forstöðumaður at- vinnuráðgjafar SSV, stöðu máls- ins og kom fram í kynningu hans að nokkrar ráðstafanir hafi nú þeg- ar verið gerðar til að koma rekstr- inum á réttan kjöl. Til dæmis hafi verið gerðar ráðstafanir til sparnað- ar í vetrarakstrinum sem framund- an er og þá hafa verið send erindi til stjórnvalda um að tryggja sérleyfin og að teknar verði upp viðræður um endurskoðun á fjárframlögum vegna þeirra. Fulltrúar landshluta- samtakanna fjögurra sem standa að kerfinu hittust einmitt mánudaginn 9. september í síðustu viku á fundi að Staðarflöt í Hrútafirði og sendu frá sér ályktun þar sem lýst var yfir miklum áhyggjum á þeirri stöðu sem upp er kominn. Jafnframt var áréttað mikilvægi þess að framtíð- arskipan almenningssamgangna verði frágengin sem allra fyrst í góðu samstarfi við Hönnu Birnu Kristjánsdóttir innanríkisráðherra. Spurð um málið á fundinum sagði ráðherrann að vilji stjórnvalda væri sá að halda verkefninu áfram og væri mikilvægt að gott samtal ætti sér stað á næstunni milli lands- hlutasamtakana, Vegagerðarinnar og Innanríkisráðuneytisins um mál- ið. Boðaði hún til frekari viðræðna um málið í tengslum við fjármála- ráðstefnu sveitarfélaga 3. október næstkomandi. Tækifæri að efla reksturinn Til að mæta hallanum og tryggja áframhaldandi rekstur leiðarkerfis- ins hafa SSV og SSNV veitt lánsfé á eigin ábyrgð inn í rekstur þess, sam- tals um 22,3 milljónir króna. Fram kom í máli Ólafs að kerfið yrði að vera þannig rekið á næstunni að þessi skuld verði greidd og þá skipti mestu að kerfið standi mynduglega undir sér. Nefndi hann nokkrar að- gerðir sem þyrfti að ráðast í á næst- unni til að svo megi verða. Meðal þeirra væri að ljúka vinnu að fram- tíðarfyrirkomulagi á umsjón rekst- urs þess, koma yrði á skýrri fjár- hagslegri ábyrgð í umsjón þess og þróun og að farið verði ítarlega yfir það hvort áform um vetrarakst- ur á næstunni samræmist mark- miðum um rekstur þess. Einnig er talið nauðsynlegt að sveitarfé- lögin á Vesturlandi og hagsmuna- aðilar verði virkari í að koma kost- um leiðarkerfisins á framfæri meðal íbúa til að örva frekar notkun þess. Þá þurfa ábyrgðaraðilar kerfisins að vera duglegir að leita nýrra leiða til að hagnýta kerfið, t.d. með því að samþætta skólaakstur inn í það eða jafnvel akstur til og frá athafna- svæðum á borð við Grundartanga. Að sögn Ólafs, þá er vilji hjá öll- um sem að kerfinu standa að finna lausn á vanda þess og það sé mikil- vægt fyrir framhaldið. Mestu skipt- ir að almenn ánægja er með leiðar- kerfið og hefur notkun þess farið vaxandi mánuð frá mánuði á fyrsta starfsárinu. Fjölmörg vannýtt tæki- færi séu til staðar í þróun þess og því sé mikilvægt að halda verk- efninu áfram. hlh Málefni fatlaðra voru í deiglunni á aðalfundinum og var þar sér- staklega rætt um rekstrarforsend- ur málaflokksins sem færður var yfir til sveitarfélaganna í gegn- um SSV í upphafi árs 2011. Fram kom á fundinum að í vor hafi stefnt í að halli á rekstri málaflokksins í ár næmi á bilinu 60-70 milljón- ir króna en með hagræðingarað- gerðum sem starfshópur um mál- efni fatlaðra innan SSV lagði til við stjórn samtakanna í lok sumars er vonast til að hallinn verður rétt- ur við áður en rekstrarárið er allt. Ingibjörg Valdimarsdóttir, sem leitt hefur vinnu starfshópsins, sagði á fundinum að ástæðan fyrir hallan- um væri m.a. sú ákvörðun stjórn- valda að breyta forsendum á miðju rekstrartímabilinu við útreikning framlags úr Jöfnunarsjóði til mála- flokksins. Sú ákvörðun var tekin í byrjun árs og m.a. vegna þessa hafi forsendur rekstraráætlunar árs- ins brostið með tilheyrandi halla- rekstri. Stjórn SSV skipaði starfs- hópinn fyrir tæpum tveimur árum til að yfirfara rekstur málaflokks- ins á Vesturlandi í heild sinni og var það m.a. hlutverk hópsins að leggja fram aðgerðir sem hann hefur nú gert með aðstoð fagaðila úr Þjón- usturáði Vesturlands, umsjónar- aðila málaflokksins, sem skipað er yfirmönnum félagsþjónustu Akra- ness, Borgarbyggðar og Snæfells- ness. Framlög skert víða Meðal þeirra sparnaðaraðgerða sem hafa verið samþykktar eru skerðingar á framlögum til frekari liðveislu í Borgarbyggð, þar sem mest er skorið niður, til reksturs skammtímavistunar í Holti í Borg- arbyggð og Gufuskálum á Snæ- fellsnesi, vegna búsetu- og dag- þjónustu í Stykkishólmi og að auki í umsýslukostnaði í félagsþjónustu á öllum svæðum. Einnig hafa fram- lög til þjónusturáðsins verið skor- in niður. Þá kemur ekkert fram- lag úr þessum sameiginlega sjóði til Endurhæfingarhússins HVER á Akranesi í ár. Utan þessara aðgerða þarf félagsþjónusta á hverju starfs- svæði að skera niður í flötum niður- skurði samtals um 9 milljónir króna í hlutfalli við rekstur. Í samtali við Skessuhorn sagði Ingibjörg að það hafi verið erfitt verk að skera niður í rekstrinum til að mæta hallanum og væri ótækt að ríkið standi ekki við gerða samninga. „Þetta er mjög erfiður og viðkvæmur málaflokk- ur sem þarf að passa upp á en við viljum sinna þjónustunni vel. Það verður hins vegar að skapa aðstæð- ur til að svo megi verða í ljósi þeirr- ar stöðu sem upp er kominn. Ljóst er hins vegar að það er meiri þörf en áður að herja á ríkið að spila af sanngirni í þessu máli. Það verður að standa við undirritaða samninga og þær forsendur sem gefnar voru í upphafi,“ segir Ingibjörg. Of hratt farið í yfirfærslu Greiðsla úr Jöfnunarsjóði sveitar- félaga til málaflokksins miðast við þjónustuþörf sérhvers einstaklings sem þjónustuna þiggur eins og það er metið í svokölluðu SIS mati sem stjórnvöld sjá um að framkvæma og er nýlega tilkomið. Fram kom á fundinum að forsendubreyting stjórnvalda felist í því að greiða ekki með þjónustuléttum einstak- lingum í ár, en það eru einstakling- ar sem þurfa að hámarki 4 millj- ónir króna á ári vegna þjónustu- þarfa sinna samkvæmt SIS mat- inu. „Framkvæmd SIS mats er eitt af þeim verkefnum sem hafa gengið því miður treglega eftir að sveitar- félögin fengu málaflokkinn til sín, en framlög úr jöfnunarsjóðnum eru metin útfrá því mati. Á Vesturlandi eru sem dæmi 64% einstaklinga sem hafa verið að nýta þjónustu á svæðinu án SIS mats og er hlutfall- ið ekki einsdæmi miðað við önn- ur þjónustusvæði. Það er ljóst að of hratt hefur verið farið í yfirfærslu á verkefninu til sveitarfélaga þar sem ríkið getur ekki tryggt nægjanlegt fjármagn með því svo hægt sé að bjóða upp á viðunandi þjónustu.“ Skoða frekari hagræðingu Ingibjörg segir vinnu starfshópsins ekki lokið en hann hefur það hlut- verk nú að leggja fram tillögur um hagkvæmari rekstur málaflokksins fyrir framhaldsaðalfund SSV sem fram fer í október. „Okkar verkefni er að skoða málaflokkinn með til- liti til niðurskurðarins sem varð í ár. Ljóst er að staðan mun lítið breyt- ast á næsta ári, en þá verður önnur viðmið viðhöfð varðandi útdeilingu fjármagns. Þá mun 80% af tekjum koma úr jöfnunarsjóði á grund- velli þjónustumats á einstakling- um og 20% af útsvari sveitarfélaga. Við erum m.a. að meta þjónustu- framboð á svæðinu öllu með hag- kvæmni og hagræðingu að leiðar- ljósi skoða hvort möguleikar séu á að samþætta þjónustuna á einhvern hátt. Við erum því að búa í haginn fyrir næstu rekstrarár og undirbúa algjöra yfirfærslu á málaflokknum en áætlað er að fara yfir samning- inn við ríkisvaldið á næsta ári með því sjónarmiði að sveitarfélögin og landshlutasamtökin taki endanlega yfir málaflokkinn,“ segir Ingibjörg en ásamt henni eru í starfshópn- um Kristinn Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ og Ingibjörg Daníels- dóttir sveitarstjórnarfulltrúi í Borg- arbyggð. hlh Almenningssamgöngur: Allir aðilar einhuga um að halda verkefninu áfram Vagn á leið 57 við þjónustustöð N1 í Borgarnesi. Ólafur Sveinsson fer yfir stöðuna í rekstri almenningssamgangna. Ríkið þarf að spila af sanngirni í málefnum fatlaðra Ingibjörg Valdimarsdóttir leiðir vinnu starfshópsins.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.