Skessuhorn - 18.09.2013, Blaðsíða 11
11MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2013
Sveitasetrið að Vogi á Fellsströnd í Dölum býður upp á
villibráðarhlaðborð síðustu helgina í október, 25.- 27.10.
Glæsilegt hlaðborð með afurðum úr héraði, gisting í
stórum og fallegum 2ja manna herbergjum, morgun-
verðarhlaðborð daginn eftir. Verð kr. 15.900 á mann.
Hægt er að panta nudd á staðnum og gera þetta að
algerri dekurhelgi.
Villibráðarhlaðborð
S
ke
ss
uh
or
n
20
13
UPPLÝSINGATÆKNI Í HEIMABYGGÐ
UPPLÝSINGATÆKNI Í HEIMABYGGÐ
Omnis auglýsir laust til umsóknar starf sölumanns í
verslun á Akranesi. Viðkomandi þarf að hafa til að bera
mikla þjónustulund og þekkingu á tölvu- og tæknibúnaði.
Sjálfstæði og frumkvæði er líka nauðsyn og reynsla af
sölustörfum er mikill kostur.
Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi sendist í tölvupósti á
atvinna@omnis.is. Umsóknarfrestur er til 1. október 2013.
Nánari upplýsingar veitir Eggert Herbertsson
framkvæmdastjóri í síma 6178306 eða eggert@omnis.is
Sölumaður í
verslun á Akranesi
UPPLÝSINGATÆKNIFÉLAGIÐ
„Dúkar, Fuglar og Hnífar“ er heiti
sjöttu sýningarinnar af sjö í sýning-
arröðinni „Matur er manns gam-
an“ sem fram fer í galleríinu Leir
7 í Stykkishólmi. Sýningin verð-
ur opnuð næstkomandi laugardag
en að henni standa þau Helga Pá-
lína Brynjólfsdóttir textílhönnuður,
Ingibjörg Helga Ágústsdóttir tré-
skurðarkona og Páll Kristjánsson
hnífasmiður. Litbrigði haustsins er
viðfangsefni sýningarinnar og eiga
því gestir þess kosts að verða fyr-
ir athyglisverðri haustupplifun á
henni.
Höfundarnir eiga fölþættan bak-
grunn í listsköpun sinni. Helga út-
skrifaðist frá textíldeild Listiðnað-
arháskólans í Helsinki (UIAH) í
Finnlandi vorið 1988. Hún vinn-
ur að margvíslegum textíl og bók-
verkum sem hún hefur sýnt á sýn-
ingum hérlendis og erlendis. Á sýn-
ingunni sýnir Helga bómullardúka
þar sem hún vinnur út frá þemanu
fugl eða fiskur. Ingibjörg hefur aft-
ur á móti unnið tréverk byggð á ís-
lenskum þjóðsögum og þjóðtrú. Á
sýningunni mun hún aðallega taka
fyrir grágæsina, ýmist sem borð
eða veggskraut. Gæsirnar sem eru í
fullri stærð eru skornar út úr Lindi-
tré sem Ingibjörg notar nær ein-
göngu í sín verk. Loks hefur Páll
smíðað hnífa í um 30 ár og haft það
að atvinnu undanfarna tvo áratugi.
Ýmsan efnivið notar hann í hnífa
sína á borð við tré, horn, tennur og
bein, sjón er því sögu ríkari.
Stöð 2 stendur fyrir einni stærstu
hæfileikakeppni sem fram hefur far-
ið hér á landi í vetur sem ber heit-
ið „Ísland Got Talent.“ Keppni af
þessu tagi og með sama nafni hefur
farið fram í þjóðlöndum um allan
heim en þetta er í fyrsta skipti sem
hún fer fram hér á landi. Keppnin
hefst með áheyrnarprufum sem fara
fram í öllum landshlutum og á Vest-
urlandi fer prufan fram í Hjálm-
akletti í Borgarnesi þriðjudaginn
1. október næstkomandi. Prufurn-
ar hefjast kl. 16 og standa yfir fram
eftir kvöldi. Skráning fer fram á
vefsíðunni www.stod2.is/talent. Í
tilkynningu frá stjórnendum þátt-
arins segir að leitað sé eftir hæfi-
leikaríku fólki sem vill setja á svið
skemmtilegt atriði sem geti ver-
ið söngur, dans, uppistand, hljóð-
færaleikur, leikþáttur, íþróttaatriði,
Dúkar, fuglar og hnífar
í Leir 7 í haust
Sýningin á laugardaginn er opin
frá kl. 14 til 16 og eru allir boðnir
velkomnir. Sýningin stendur yfir til
14. október nk.
hlh
Gæsafjölskylda eftir Ingibjörgu Helgu Ágústsdóttur.
Ísland Got Talent
áheyrnarprufur í Borgarnesi
áhættuatriði, töfrabrögð, sirkusat-
riði, gæludýragrín og í raun hvað
sem fólki dettur í hug. Fólk á öllum
aldri á þátttökurétt í keppninni sem
getur tekið þátt eitt og sér, í pörum
eða í litlum og stórum hópum.
Krafan er hins vegar sú að atrið-
in hljóti náð dómnefndar sem skip-
uð er tónlistarfólkinu Bubba Mort-
hens, Þórunni Antoníu, Jóni Jóns-
syni auk Þorgerðar Katrínar Gunn-
arsdóttur, fyrrverandi menntamála-
ráðherra. Stjórnandi þáttarins er
Auðunn Blöndal. Áheyrnarpruf-
um lýkur um miðjan október en
sýningar á þáttaröðinni hefjast í
desember. Til mikils er að vinna í
keppninni en siguratriðið fær í sinn
hlut 10 milljónir króna. hlh