Skessuhorn


Skessuhorn - 18.09.2013, Síða 13

Skessuhorn - 18.09.2013, Síða 13
13MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2013 S m á a u g l ý s i n g a r - a t b u r ð a d a g a t a l - f r é t t i r www.skessuhorn.is ÞJÓNUSTA ÞJÓNUSTA BLIKKSMIÐJA Loftræstingar – Reykrör Klæðningar – Nýsmíði Viðhald – Efnissala JÁRNSMIÐJA Gjafagrindur – Nýsmíði Viðhald – Þjónusta Hesthúsinnréttingar RAFMAGNS- VERKSTÆÐI Nýlagnir – Viðhald Viðgerðaþjónusta Borgarbraut 74 • 310 Borgarnesi • 412-5300 • limtrevirnet.is Opinn fundur með forystufólki Samfylkingarinnar á Akranesi Hvernig nýtum við tækifærin og bætum kjörin? Samfylkingin á Akranesi verður með opinn fund með forystufólki Samfylkingarinnar á Gamla Kaupfélaginu fimmtudaginn 19. september kl. 20:00. Allir velkomnir Smáralind og Kringlunni Verið velkomin Við tökum vel á móti ykkur Sími 544-4220 - 568-4344 GLÆSILEG AFMÆLISTILBOÐ KOMIÐ OG GERIÐ GÓÐ KAUP Síðdegis á þriðjudaginn í liðinni viku gerði um skamman tíma mjög hvasst veður á Kjalarnesi, við Hafnarfjall og víðar á Vest- urlandi. Bílar lentu í vand- ræðum en þó enginn jafn miklum og bílstjóri þessa bíls sem varð fyrir því óhappi að tengivagn fauk á hliðina. Skömmu eftir að þessi mynd var tekin um klukkan 17 gekk veðrið niður. Var það gott því margir voru á suðurleið á sjö- unda tímanum á leiðinni á landsleik í Laugardalnum. Aftur í gær, einnig á þriðjudegi var bálhvasst á Kjalar- nesi og var vegurinn ófær um tíma í gærmorgun þegar vindur fór ítrek- að yfir 40 m/sek í vindhviðum. mm/ Ljósm. áþ. Húsfyllir var í tónlistarhúsinu Hörpu sl. laugardag á 50 ára af- mælistónleikum Dúmbó sextetts og Steina, sem hljómsveitin stóð fyrir ásamt Vinum hallarinnar. Stemningin var góð og skemmtu 1800 tónleikagestir sér mjög vel, að stórum hluta brottfluttir Ak- urnesingar og aðdáendur hljóm- sveitarinnar. Dúmbó byrjaði á því flytja lög héðan og þaðan sem vin- sæl voru á sjöunda áratugnum, sem var blómaskeið hljómsveitarinnar. Eftir hlé var stuðið ekki minna en þá fluttu þeir aðallega sín eigin lög. Sigursteinn Hákonarson söngvari bað ljósamenn þá um meiri birtu í salinn og þegar hann sá mannfjöld- ann, sagði hann: „Hvað kofinn er bara smekkfullur!“ Sviðsmyndin í Hörpunni var eftirlíking af svið- inu í gamla Glaumbæ í Reykjavík Starfshópur sem hefur það hlutverk að móta framtíðarsýn fyrir Kaup- félag Borgfirðinga til næstu 10 til 15 ára tók til starfa í ágúst. KB er eitt elsta fyrirtæki á Vesturlandi, og sennilega með þeim elstu á landinu öllu, en það var stofnað árið 1904. Á næsta ári fagnar því félagið 110 ára afmæli og að því tilefni sam- þykkti aðalfundur KB sem fór fram fyrr á árinu að fela stjórn félagsins að skipa starfshóp til að móta stefnu næstu ára. Í sumar skipaði stjórnin í starfshópinn en í honum sitja Ás- dís Helga Bjarnadóttir Hvanneyri, Einar Þ. Eyjólfsson Borgarnesi, Heiðar Lind Hansson Borgarnesi og Guðrún Sigurjónsdóttir Glit- stöðum, stjórnarformaður KB, en hún gegnir jafnfram formennsku í hópnum. Að sögn Guðsteins Einarssonar kaupfélagsstjóra er hlutverk hóps- ins samkvæmt samþykkt aðalfundar „að móta framtíðarsýn KB til næstu 10 til 15 ára og leggja tillögur eða drög að framtíðarsýn KB fyrir næsta aðalfund,“ eins og segir í samþykkt- inni. „Markmiðið með vinnu hóps- ins er að marka áherslur í starfi félagsins. Þar má nefna hvernig hægt sé að ná fram auknum ávinn- ingi félagsmanna, áherslum á sam- félagið og samfélagslegri ábyrgð, markmið í rekstri og markmið í efnahgslegri stöðu til skemmri og lengri tíma. Segja má að öll starf- semi félagsins sé undir og til skoð- unar,“ segir Guðsteinn. Hann segir að gert sé ráð fyrir að halda fundi með félagskjörnum deildarstjórum vegna stefnumótun- arinnar en einnig opinn fund með yngra fólki til þess að ná fram við- horfum þess til vinnunnar og vænt- ingar þeirra til félagsins. „Sam- vinnufélög eiga fullan rétt á sér. Þegar horft er til heimsins alls þá er mikil sigling á samvinnumönnum og það er litið á þetta rekstrarform sem valkost við annað form. Við skulum hafa það hugfast að það eru fleiri félagsmenn og jafnframt eig- endur í samvinnufélögum um víða veröld en hluthafar í hlutafélög- um. Raunveruleikin er sá að þetta er mjög algengt rekstrarform en t.d. má benda á búsetusamvinnu- félög sem væntanlega gætu verið mun öflugri til að leysa húsnæðis- vanda leigjenda á Íslandi,“ bætir Guðsteinn við. mm Dúmbó smekkfyllti Hörpuna þar sem Dumbó spilaði mikið við gríðarlegar vinsældir. Lokalag tón- leikanna og margumbeðið af tón- leikagestum var lagið vinsæla An- gelía sem var á toppnum í margar vikur í Lögum unga fólksins, óska- lagaþætti þess tíma í útvarpinu. þá Bálhvasst á Kjalarnesi um tíma Móta framtíðarsýn fyrir Kaupfélag Borgarfirðinga Höfuðstöðvar KB í Borgarnesi í hátíðarbúningi á hausthátíð félagsins fyrir skemmstu. MIKIÐ ÚRVAL AF SMUREFNUM OG OLÍUM FYRIR ALLAN IÐNAÐ. KÍKTU Í KEMI OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ! SMUROLÍUR OG SMUREFNI Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 544 5466 Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.