Skessuhorn


Skessuhorn - 18.09.2013, Síða 26

Skessuhorn - 18.09.2013, Síða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2013 „Sumarið sem engin átti von á góðri veiði,“ er það sem margir í veiðiheiminum hafa á orði. Sum- arið var frábært, hvert metið á fæt- ur öðru féll í laxveiðiánum á Vest- urlandi og enn eru metin að falla. Veiðimet í Norðurá féll í liðinni viku, en þar veiddust 3309 laxar og hafa aldrei fleiri komið á land úr ánni. Árnar eru sumar að bæta sig um nokkur hundruð prósent á milli ára en auk Norðurár má nefna Þverá, Flókadalsá, Reykja- dalsá, Langá, Álftá, Gufuá, Hít- ará og Straumfjarðará svo einhverj- ar séu nefndar til sögunnar. Veiði- veislan var flott og um leið eitthvað sem fáir höfðu búist við. Nú þegar styttist í lok veiðisumarsins tökum við stöðuna í nokkrum ám á Vestur- landi. Tíðindi þaðan eiga það sam- merkt að úrkoma síðustu vikna hef- ur sett strik í reikninginn. Vissulega eru árnar fullar af fiski, en erfitt er að finna hann við þessar aðstæður auk þess sem kalt er að standa á ár- bakkanum. ,,Þetta var eins og í gamla daga, það var svo mikið af fiski um alla á,“ sagði Ari Þórðarsson sem var að leiðseigja við Norðurá í sumar. Norðurá gaf í fyrra 953 laxa en nú komu 3309 laxar sem er met í ánni. Hópur sem kallar sig Haustveiði- menn var t.d. á veiðislóðum undir lokin í ánni og fékk 151 lax. Feng- ust þeir víða um ána. „Laxá í Dölum var að komast í 700 laxa þegar ég var þarna, við fengum 10 laxa,“ sagði veiðimaður sem var að koma úr Laxá í Dölum en veiðin hefur lifnað þar við eftir að maðkurinn sást aftur. Veiðin tók kipp við það. „Okkur vantar bara fleiri veiðimenn til að veiða í Laxá,“ sagði Jón Egilsson formaður Veiði- félags Laxdæla og það var mikið til í því eins og víða á bökkunum í sum- ar. Óseld veiðileyfi voru víða. Miðá í Dölum hefur verið frá- bær í allt sumar, byrjaði með krafti og núna eru komnir yfir 600 laxar á land. Veiðimenn sem við hittum á þvottaplaninu í Búðardal sögðust hafa verið í Miðá og að þeir hefðu fengið 21 lax og einnig nokkrar bleikjur. Mikið væri að fiski í ánni. Eitthvað hefur veiðst í Efri- Haukadalsá og hópur veiðimanna úr Borgarnesi fékk þar sjö laxa en áin hafði skilað yfir 20 löxum þegar þeir voru þar og einnig silungi. Haukadalsá hefur verið frekar til baka í sumar og núna eru komn- ir 500 laxar á land, oft verið meiri veiði. Það hefur verið gott vatn í henni en fiskurinn verið eitthvað tregur og ekki í tökustuði. Krossá er komin í 230 laxa og Fá- skrúð í 240. Hvolsá og Staðarhólsá hafa gefið um 200 laxa og eitthvað af silungi. Holl veiðimanna með Ólaf Ólafsson og fleiri innanborðs veiddi fimm laxa og eitthvað af sil- ungi nýverið. Veiðiár eins og til dæmis Hít- ará á Mýrum er orðið eins og stór- fljót á að líta. „Það er erfitt að veiða hérna, áin er svo vatnsmikil,“ sögðu veiðimenn sem tíðindamað- ur Skessuhorns hitti á Breiðunni í Hítará. „Staðan er raunar orðin slæm hérna í ánni, vatnið var allt- of mikið til að maður njóti veiðinn- ar,“ bættu þeir við. „Það gengur ró- lega, erfiðar aðstæður,“ sagði Þór- ir Grétar sem var búinn að vera við Hítará síðustu daga og aðeins feng- ið þrjá laxa. „Vatnsmagnið er óg- urlegt á svæðinu og erfitt að finna fiskinn.“ Hítará var þá komin með 1110 laxa sem reyndar er meirihátt- ar góð veiði. „Við fengum 15 laxa í Hörðu- dalsá í Dölum og áin hefur gef- ið 70 laxa. Það fór að rigna og hleypti það heldur betur lífi í veið- ina í ánni,“ sagði Níels á Seljandi í Hörðudal, þegar við spurðum um stöðuna eftir mikla úrkomu þar um slóðir. Víða um ána var fiskur. Vatnasvæði Lýsu hefur verið að gefa töluvert af silungi og einn og einn lax kemur einnig á land. Mikið vatn hefur verið á utanverðu Snæ- fellsnesi. Veiðimaður sem við frétt- um af fyrir fáum dögum fékk einn lax og mikið af ágætum silungi. Dunká hafði nýverið gefið 110 laxa og vatnið í henni er mikið sem og mikill fjöldi laxa. „Við erum búin að fá einn fisk og vatnið er mik- ið hérna í Fáskrúð,“ sagði Kristín Reynisdóttir sem var á veiðislóðum í Dölunum nýlega. Fáskrúð hefur gefið 244 laxa. Búðardalsáin var að komast í 455 laxa en aðeins er veitt á flugu í ánni núna í september. Hollin í ánni hafa verið að fá mjög góða veiði og mik- ið er af fiski í henni. Holl sem var að veiða fyrir skömmu í Búðardalsá veiddi 33 laxa. Ekki slæmt í tveggja stanga veiðiá. Metið er við það að falla í Álftá á Mýrum en núna fyrir tveimur dög- um voru komnir 600 laxar en met- ið er 652 og fellur örugglega, en það á eftir að veiða í ánni í tvær vik- ur til viðbótar. Vatnið er frábær en kannski erfitt að finna fiskinn eins og víðar. ,,Metið frá 1975 var að falla fyr- ir nokkrum dögum hjá okkur; 756 laxar á land, en gamla metið var 755 laxar,“ sagði Ástþór Jóhannsson við Straumfjarðará en veiðin hefur ver- ið frábær þar eins og reyndar í Haf- fjarðará líka. Straumfjarðará hefur gefið 780 laxa og gæti farið í 800 laxana áður en tímabilið er úti. Ekki er búið að skrifa undir nýjan samn- ing um leigu á ánni næstu fimm árin, en það verður gert innan fárra daga, við Ástþór og félaga. Haffjarðará hefur gefið vel í sum- ar og er núna komin í 2200 laxar á sex stangir og stundum er meira að segja veitt á færri stangir. Mikið er af fiski og er Einar Sigfússon svo sannarlega ánægður með sumar- ið. Hann hefur heldur bætt við sig og verður með sölu á veiðileyfum í Norðurá næsta sumar í samstarfi við veiðiréttareigendur, eins og fram hefur komið í Skessuhorni. Gangurinn hefur verið frábær í Langá á Mýrum og þar voru komn- ir 2600 laxar um helgina en besta veiðin í ánni var 2008, þegar 2970 laxar veiddust. Stangveiðifélag Reykjavíkur ætlar að veita verðlaun fyrir lax númer 2971 sem veiðist. Verður fróðlegt að sjá hver veiðir hann eða hvort hann veiðist. ,,Veið- in gengur frábærlega í Langá og verður spennandi að sjá í hvað tölu hún endar,“ sagði Ari Hermóður Jafetsson er við spurðum um stöð- una. Þá fréttum við af veiðimanni sem keypti sér stangardag í ánni fyrir skömmu. Var hann einn með alla ána, engin hinna stanganna höfðu selst. ,,Veiðin hefur verið góð í sumar í Leirársveitinni, en núna eru komnir yfir 900 laxar á land og það er svo- lítið eftir af veiðitímanum og mikið af fiski í ánni,“ sagði Óli Johnson, er við spurðum um Laxá í Leirár- sveit. ,,Veiðin hefur verið jöfn og góð í allt sumar,“ sagði Óli. Straumarnir og Brennan í Borg- arfirði hafa gefið 400 laxa hvort svæði sem verður að teljast mjög gott. Veiðimenn hafa verið að fá fína veiði þar. „Straumarnir hafa verið góðir í sumar og reyndar fleiri svæði hérna í kringum mig,“ sagði Þorkell Fjeldsted er við spurðum um stöðuna á svæðinu. „Gufuáin er komin yfir 300 laxa og hún er að fara í útboð í haust. Vatnið hef- ur verið gott í allt sumar í henni. Á Ferjukosteyrunum hafa veiðst um 30 laxar og veiddist vel þegar áin var tær fyrr í sumar. Gangurinn í Gljúfurá og Norðurá hefur ver- ið flottur í allt sumar, báðar að slá met þessa dagana. En það haustar snemma hérna,“ sagði Þorkell enn- fremur. Veiðisumarið góða er brátt á enda Alfreð Jóhannsson í Breiðunni í Laxá í Leirársveit en áin hefur gefið 855 laxa. Gunnar Gunnarsson og Snæbjörn Kristjánsson með laxa úr Laxá í Dölum en Snæbjörn er allur að braggast eftir að hafa dottið við ána nýverið. Laxá í Dölum hefur gefið 710 laxa. Veiðin hefur verið góð í Setbergsá í sumar og sannarlega er fallegt við ána.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.