Skessuhorn


Skessuhorn - 18.09.2013, Blaðsíða 29

Skessuhorn - 18.09.2013, Blaðsíða 29
29MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2013 Mjög góður Musso árg. 2000 Mjög góður Musso sjálfsk. ekinn um 180 þús., 4cl með leðri, eyðir um 10 lítrum á hundraðið, er á sumardekkjum en með fylgja óslitin nagladekk. Bíll sem hefur fengið gott viðhald, smurbók og búið að skipta um hedd- pakkningu, nýlegt púst, nýlega farið í bremsur, nýir demparar að aftan o.fl. Uppl. í s. 696-2334 eða ispostur@yahoo.com IamHappy.is Netverslun I am Happy er barnafataverslun sem býður upp á fjölbreytt úrval af vönduðum barnafatnaði á góðu verði fyrir börn á aldrinum 0-10 ára. Kíktu á www.iamhappy. is. Frystiskápur til sölu Til sölu er frystiskápur með nýrri kælivél. Fæst afhent strax. Verð 30 þús. kr. Frekari uppl. í síma 861- 4775. Ungt par vantar íbúð á Akra- nesi Ungt par óskar eftir að leigja litla íbúð á Akranesi. Óskum eftir að dýrahald sé leyfilegt (ekki nauð- synlegt). Erum reyklaus, snyrtileg og róleg og tilbúin að leigja strax. Uppl.s 771-4511. Lítið kósí hús á Akranesi til leigu Til leigu er 3 herbergja 75 fm. einbýli með stórum garði á góð- um stað á Akranesi. Laus í byrjun okt. Dýrahald leyfilegt. Frekari upplýsingar í síma 866-6637 eða 849-5688. Netfang: aron.sigur- dsson@gmail.com. Íbúð óskast Vantar tveggja til þriggja her- bergja íbúð til leigu í eða kringum Borgarnes fyrir einn mann, labra- dor hund og kött. Sími: 848-5799. Netfang: helgiva@gmail.com Íbúð til leigu í Borgarnesi Þriggja herbergja íbúð til leigu í Borgarnesi í tveggja hæða húsi. Mikið útsýni. Uppl. í síma 666- 2563. Íbúð til leigu í Borgarnesi Þriggja herbergja íbúð á neðri hæð í húsi við Gunnlaugsgötu í gamla bænum í Borgarnesi er laus til leigu. Íbúðin er um 60 fermetrar að flatarmáli og er laus til leigu strax. Uppl. í síma 864- 3816. Óska eftir að leigja húsnæði Við erum hjón með 2 börn og hund sem óskum eftir húsnæði til leigu, helst á Hvanneyri eða þar í kring. Skoðum öll tilboð. Hafið samband í síma 617-5313 eða 776-1124. Netfang: lisayr83@ hotmail.com. Óskum eftir leiguíbúð Akranesi og nágrenni Við erum par komin yfir 50 árin og erum við að leita að leiguíbúð á Akranesi og nágrenni. Skilvísum greiðslum og góðri umgengni heitið. Upplýsingar í símum 849- 9545, 849-9525 eða 471-2103. Netfang: gutti62@gmail.com. Óska eftir húsnæði á Hvanneyri eða nágrenni Par með ungt barn óskar eftir húsnæði á Hvanneyri eða ná- grenni. Nánari uppl. í síma 868- 8626. Netfang: Rosabjork@errbe. com. Lumar þú á gömlu hjóli í skúrnum? Jafnvel bara einhverjum pörtum úr gömlu hjóli (vél, felgur, grind)? Má vera óskráð, ljótt og bilað. Skoða allt og þakið á verðmiðan- um er 250 þús. kr. Hafðu samband á valur@heimsnet.is eða í símum 896-0158 og 461-1882. Viltu losna við Bjúg og sykurþörf? Þá er Oolong og Puerh teið eitt það albesta sem um ræðir. 100% hreint kínverskt te án auka og rotvarnarefna. Mikil brennsla. Frábært fyrir heilsuna. 1 pk. Oo- long - og 1 af Puerh tei á 7.800 kr. 200 tepokar, 1 pakki á 4.300 kr. Sendi um allt land. S. 845-5715. Netfang: siljao@internet.is. Vetrardekk Til sölu 4 stk. vetrardekk, lítið slitin nagladekk (Discoverer-Cooper), stærð 255-55-R18. Upplýsingar í síma 892-4566. Sjúkrarúm til sölu Til sölu nánast nýtt sjúkrarúm með fjarstýringu. Hægt að lyfta höfðagafli og fótagafli upp, einnig öllu rúminu. Bremsur á hjólunum. Mjög þægilegt við umönnun. Upplýsingar í síma 431-1391 og 694-2179. Herbalife, veiti mjög góða þjónustu Ég er með 3 pakka með miklum kaupauka. Verð: 13.800 - 22.800 kr. Greiði burðargjald ef pantað er fyrir 9.000 kr. eða meira. Fáið upp- lýsingar um kaupaukann. 100% þjónusta. S: 845-5715. Meiduo vespa Til sölu svört Meiduo bensín- vespa árgerð 2007, lítið keyrð. Nánari upplýsingar í síma 892- 5678. Netfang: amundi@isl.is. Greiðslumark í sauðfé Til sölu er 133,4 ærgilda greiðslu- mark í sauðfé. Nánari upplýsingar hjá maria@borglogmenn.is. Isuzu Trooper 2002 Til sölu Isuzu Trooper árgerð 2002. Hvítur,7 manna. Upplýsing- ar margeir@met.is. Verðhugmynd 600 þús. kr. ÝMISLEGT Óska eftir vetrargeymslu fyrir lítinn bát Óska eftir vetrargeymslu fyrir lítinn bát, sem er 4 metrar á lengd, og er á bátakerru. Frekari uppl. á netfanginu: matthias@holta.is. Miði á sýningu með Jeff Dun- ham Til sölu miði í stúku í Laugardals- höll á sýningu Jeff Dunnham föstudaginn 20. september. Uppl. í síma 847-1023 eða í tölvupósti, arnarjon@simnet.is. LEIGUMARKAÐUR BÍLAR/VAGNAR/KERRUR Markaðstorg Vesturlands Nýfæddir Vestlendingar Markaðstorg Vesturlands Skráðu SMáauglýSinguna á www.SkeSSuhorn.iS fyrir klukkan 12.00 á þriðjudöguM TIL SÖLU FYRIR BÖRN HÚSBÚNAÐUR/HEIMILISTÆKI Borgarnes – föstudagur 20. september Foreldrafundur fer fram í leikskólanum Klettaborg í Borgarnesi, tímasetning auglýst á heimasíðu leikskólans. Dalabyggð – laugardagur 21. september Vörðufellsrétt á Skógarströnd fer fram kl. 13. Réttarstjóri er Jóel H. Jónasson. Borgarbyggð – sunnudagur 22. september Sverrismótið í knattspyrnu fer fram á Sverrisvelli á Hvanneyri kl. 10. Skemmtilegt knattspyrnumót fyrir alla aldurshópa sem haldið er til minningar um Sverri Heiðar Júlíusson, knattspyrnuþjálfara og Hvanneyring. Dalabyggð - sunnudagur 22. september Réttarhald í fyrstu Hólmarétt í Hörðudal hefst kl. 10. Réttarstjóri í Hólmarétt er Ásgeir Salberg Jónsson. Stykkishólmur – þriðjudagur 24. september Blóðbankabíllinn verður við sundlaugina í Stykkishólmi kl. 12-17. Allir velkomnir jafnt nýir sem vanir blóðgjafar. Akranes - þriðjudagur 24. september Foreldrafundur leikskólans Garðasels verður haldin á Vík frá kl. 18 -19 þar sem vetrarstarfið verður kynnt. Á döfinni 10. september. Stúlka. Þyngd 4.340 gr. Lengd 55 sm. Foreldrar Þorgerður Arndal Kristjónsdóttir og Bjarni Kristinn Sæmundsson, Reykjanesbæ. Ljósmóðir: Soffía G. Þórðardóttir. 11. september. Drengur. Þyngd 3.705 gr. Lengd 53,5 sm. Foreldrar Hafdís Ragna Rúnarsdóttir og Guðmundur Óskar Ragnarsson, Akranesi. Ljósmóðir: G. Erna Valentínusardóttir. 13. september. Stúlka. Þyngd 3.430 gr. Lengd 51 sm. Foreldrar Hulda Rún Jóhannesdóttir og Halldór Hólm Kristjánsson, Borgarnesi. Ljósmóðir: Lóa Kristinsdóttir. 13. september. Drengur. Þyngd 4.110 gr. Lengd 54 sm. Foreldrar Ólöf Helga Jónsdóttir og Elvar Már Valdimarsson, Akranesi. Ljósmóðir: Anna Björnsdóttir og Sigrún Gunnarsdóttir. Minningarsýning helg- uð Hallsteini Sveinssyni verður opnuð í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgar- nesi á fimmtudaginn. Í tilkynningu frá Safnahús- inu segir að í sýningunni verði lögð áhersla á hug- sjónir og persónuleika þessa merka manns sem laðaði að sér marga af merkustu myndlist- armönnum Íslands, en Hallsteinn var sjálfur rammasmiður og hag- leiksmaður sem vann fyrir helstu listamenn íslensku þjóðarinnar á sinni tíð. Hallsteinn var ekki auð- ugur maður en gaf á ævikvöldi sínu Listasafni Borgarness gjöf, m.a. í formi listaverka, sem seint verður metin til fjár. Verk þessi verða sýnd á sýningunni og en í gegnum þau fá gestir verðmæta innsýn í lista- söguna. Skólastofnun- um er sérstaklega bent á að nýta sér sýninguna í kennslu, en boðið verður upp á fræðslu fyrir börn á öllum aldri auk leiðsagnar fyrir fullorðna meðan á henni stendur. Opnunin hefst kl. 17:30 á fimmtudaginn með stuttri dagskrá á neðri hæð Safnahússins (suður- dyr). -fréttatilkynning Snorrastofa hefur um árabil minnst dánardægurs Snorra Sturluson- ar með minningarfyrirlestri og að þessu sinni er boðið til fyrir- lesturs dr. Úlfars Bragasonar um Hrafns sögu Sveinbjarnarsonar. Hann verður haldinn í Snorrastofu þriðjudaginn 24. september n.k. og hefst kl. 20:30. Í ár eru liðin 800 ár síðan höfðinginn Hrafn Svein- bjarnarson var tekinn af lífi á Eyri við Arnarfjörð. Hrafns saga Svein- bjarnarsonar er ævisaga hans, rit- uð um 1250. Sagan er ein samtíð- arsagna, varðveitt bæði sérstök og sem hluti af Sturlungu. Í erindi sínu mun Úlfar Bragason ræða samsetn- ingu sögunnar, þá mynd sem sag- an gefur af Hrafni og þær breyting- ar sem höfundur Sturlungu gerði á sögunni þegar hann skeytti henni við aðrar sögur í samsteypu sinni. Úlfar Bragason er rannsókn- arprófessor við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræð- um. Áður var hann forstöðumaður Stofnunar Sigurðar Nordals 1988– 2006. Hann var gistikennari í nor- rænum fræðum við University of Chicago 1886–1987. Úlfar lauk doktorsprófi frá Kali- forníuháskóla í Berkeley árið 1986. Doktorsritgerð hans fjallaði um frá- sagnarfræði Sturlungu. Hann hef- ur haldið fyrirlestra um Sturlunga sögu víða, bæði heima og erlend- is, og birt fjölda greina um sagna- samsteypuna og sögur hennar. Árið 2010 kom út hjá Háskólaútgáfunni bók hans: Ætt og saga: Um frá- sagnarfræði Sturlungu eða Íslend- inga sögu hinnar miklu. -fréttatilkynning Hrafns saga Sveinbjarnarsonar í minningarfyrirlestri Úlfar Bragason. Hallsteinn – minningarsýning opnuð á fimmtudaginn

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.