Skessuhorn - 18.09.2013, Blaðsíða 31
31MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2013
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Við seljum ÖSKJUBÍLA
nýja og notaða
Mercedes - Benz fólksbíla –
jeppa – atvinnubíla.
Fágaðir og endingagóðir
eðalvagnar
KIA fólksbílar – jeppar
Flott lína sem vekur eftirtekt
Sýningarbílar á staðnum
Örugg viðskipti í 30 ár
Smiðjuvellir 17, Akranesi
Sími 431-2622
www.bilas.is
bilas@bilas.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
Þrátt fyrir að Skagamenn skoruðu
fjögur mörk í Pepsídeildarleik gegn
Keflavík síðastliðið fimmtudags-
kvöld, dugði það þeim ekki til að
vinna leikinn. Keflvíkingar skoruðu
fimm og stóðu uppi sem sigurveg-
arar í lokin. Með sigrinum tryggðu
Keflvíkingar nánast sæti sitt í deild-
inni, en staða Skagamanna versn-
aði til muna og var hún nú ekki góð
fyrir leikinn. Aðeins kraftaverk get-
ur bjargað ÍA frá falli. Leikurinn
var einkennandi fyrir leik Skaga-
manna í sumar. Áfram slakur varn-
arleikur og þetta er í annað skiptið
í sumar sem fjögur mörk duga ekki
til sigurs. Það gerðist á Hlíðarenda
gegn Val þegar Valsmenn skoruðu
sex mörk og þá fengu Skagamenn
einnig á sig sex mörk gegn FH á
Akranesvelli núna í seinni umferð-
inni. Fyrri hálfleikurinn í Keflavík
var martröð beggja þjálfara, slak-
ur varnarleikur og mikið skorað.
Heimamenn höfðu frumkvæðið en
gestunum tókst ávallt að jafna og í
hálfleik var staðan 3:3. Keflvíkingar
bættu tveimur mörkum við í seinni
hálfleiknum fyrst á 62. mínútu og
síðan á 84. mínútu. Skagamönnum
tókst síðan að klóra í bakkann með
marki undir lokin. Það voru Garð-
ar Bergmann Gunnlaugsson, Arnar
Már Guðjónsson og Jorge Garcia
sem skoruðu mörk ÍA. Næsti leikur
Skagamanna er síðan Vesturlands-
slagurinn gegn Víkingum Ólafsvík
á Akranesvelli. Um líf og dauða í
deildinni er að ræða fyrir bæði lið,
en án sigurs er ÍA endanlega fallið
úr Pepsídeildinni.
þá
Meistarakeppni Keilusambands Ís-
lands, sem markar upphaf keppn-
istímabilsins, fór fram í Reykjavík
sl. fimmtudag. Mættust þá ÍR-KLS
ríkjandi Íslands- og bikarmeistar-
ar og lið ÍA-W sem lék til úrslita í
Bikarkeppninni í fyrra, en ÍA á tvö
lið í 1. deild Íslandsmótsins og eitt
í þriðju deild. Skemmst er frá að
segja að ÍA-W sigraði ÍR liðið með
2.196 stigum gegn 2.121, þannig að
keppnistímabilið fer vel af stað hjá
keilufólki á Akranesi. Skúli Freyr
Sigurðsson spilaði best leikmanna
ÍA, skoraði 667 stig í þremur leikj-
um og átti einnig hæsta skor í leik,
259 stig. Guðmundur Sigurðs-
son formaður Keilufélags ÍA seg-
ir að aðstaðan sé að batna hjá fé-
laginu í kjallara íþróttahússins við
Vesturgötu. Félagið er nýbúið að fá
nýja olíuvél, en það er búnaður sem
smyr olíuprófíl á brautirnar þannig
að rennslið á kúlunum verði sam-
kvæmt þeim stöðlum sem krafist er
við æfingar og keppni. þá
Grundfirðingar sóttu Víði í Garði
heim í lokaumferð 3. deildar karla
í fótbolta sl. laugardag. Bæði lið
höfðu að litlu að keppa, enda búin
að tryggja tilverurétt sinn í deild-
inni fyrir næsta sumar. Leikar
skildu jafnir 1:1. Grundfirðingar
voru töluvert áræðnari í sínum að-
gerðum í fyrri hálfleik. Á 36. mín-
útu slapp Ingólfur Örn Kristjáns-
son í annað sinn í leiknum inn fyr-
ir vörn Víðis og var felldur. Heimir
Þór Ásgeirssyni rann til í spyrnunni
og mistókst að skora. Staðan var
markalaus í leikhléinu. Í síðari hálf-
leik sóttu gestirnir án afláts. Það var
svo á 61. mínútu að Kári Viðarsson
náði að koma boltanum yfir mark-
línuna eftir hornspyrnu og stað-
an því orðin 0:1 Grundfirðingum
í vil. Aðeins fjórum mínútum síð-
ar sluppu tveir úr liði heimamanna
í gegnum vörn Grundfirðinga og
tókst að jafna gegn gangi leiks-
ins, en mikil rangstöðulykt þótti af
markinu. Eftir þetta jókst sóknar-
þungi gestanna enn meira og small
boltinn tvívegis í tréverki heima-
manna ásamt því að markvörður
þeirra átti stórleik milli stanganna.
Grundarfjörður endaði því í 7. sæti
deildarinnar með 21 stig. Það er því
ljóst að þriðju deildar fótbolti verð-
ur spilaður á Grundarfjarðarvelli
næsta sumar.
tfk/þá
Víkingar höfðu ekki heppnina með
sér sl. fimmtudag þegar þeir töp-
uðu fyrir toppliði Pepsídeildar-
innar, vesturbæjarstórveldinu KR,
þegar liðin mættust á Ólafsvíkur-
velli. Víkingar voru í miklum sókn-
arhug í fyrri hálfleiknum og voru
nokkrum sinnum nærri því að
skora. Einkanlega átti KR vörnin
í erfiðleikum með Guðmund Stein
Hafsteinsson. Meistaraefnin í KR
vörðust vel og áttu líka hættuleg-
ar sóknir. Úr einni þeirra skoraði
varnarmaðurinn Grétar Sigfinnur
Sigurðarson á 57. mínútu. Reynd-
ist það sigurmark leiksins. KR var
sterkara liðið í seinni hálfleiknum
en engu að síður gerðu Víkingar
harða hríð að marki gestanna und-
ir lokin og margri vildu meina að þá
hefðu Víkingar átt að fá vítaspyrnu
þegar boltinn lenti í hendi varnar-
manns KR. Víkingar eru sem fyrr
í næstneðsta sæti deildarinnar, með
14 stig þremur stigum minna en
Þór í 10. sætinu.
Þar sem leik ÍA og Víkings var
frestað á sunnudaginn vegna veð-
Úrvalsdeildarlið Skallagríms hef-
ur fengið til liðs við sig Bandaríkja-
manninn Mychal Greene frá lúx-
emborgska úrvalsdeildarliðinu Sol-
uvre. Mychal var einn helsti burð-
arásinn í liði Soluvre á síðustu leik-
tíð þar sem hann var með 26,3 stig
að meðaltali í leik. Að auki tók
hann 8,4 fráköst og gaf 3,8 stoð-
sendingar. Mychal, sem er þrítug-
ur að aldri, leikur stöðu bakvarðar
en hann er 193 cm á hæð. Von er
á honum í Borgarnes síðar í mán-
uðinum og mun koma hans vafa-
laust styrkja leikmannahóp Skalla-
gríms mikið.
hlh
Eyrún Eiðsdóttir og Guðrún Kar-
itas Sigurðardóttir leikmenn meist-
araflokks ÍA hafa verið valdar í
landslið Íslands U19 vegna undan-
keppni EM í Búlgaríu síðar í þess-
um mánuði. Þær Eyrún og Guð-
rún Karitas léku stórt hlutverk í liði
Skagakvenna í 1. deildinni síðasta
sumar, en sem kunnugt er mun ÍA
spila í deild þeirra bestu í kvenna-
boltanum næsta sumar.
þá
Síðdegis á sunnudaginn blés full
hressilega til knattspyrnuiðk-
unar á Akranesi þar sem leik-
ur ÍA og Víkings Ólafsvíkur átti
að fara fram í Pepsídeildinni.
Erlendur Eiríksson, sem átti
að dæma leikinn, ákvað því um
nónbil að fresta leiknum. Öllum
leikjum mótsins sem spila átti á
sunndaginn var frestað. Móta-
nefnd KSÍ ákvað svo á mánu-
daginn að leikurinn yrði spilað-
ur á Akranesvelli í kvöld, mið-
vikudaginn 18. september.
mm
Mychal Greene.
Mychal Greene gengur til
liðs við Borgnesinga
Garðar Gunnlaugsson skoraði fyrsta
mark ÍA í Keflavík.
Aftur dugðu fjögur mörk ekki Skagamönnum
Sókn Víkinga þar sem þeim fannst þeir ættu að fá vítaspyrnu.
Lánlausir Víkingar
töpuðu fyrir KR
urs, verður spilað í kvöld, miðviku-
dag, á Akranesi. Líf Skagamanna í
Pepsídeildinni hangir á bláþræði,
sem Víkingar gætu klippt á og um
leið aukið sína möguleika að halda
sæti í deildinni.
þá/ Ljósm. af.
Lið ÍA-W sem sigraði í meistarakeppninni. Frá vinstri Sigurður Þorsteinn Guð-
mundsson, Magnús Sigurjón Guðmundsson, Aron Fannar Benteinsson og Skúli
Freyr Sigurðsson.
ÍA meistarar
meistaranna í keilu
Grundfirðingar fagna marki sínu í leiknum.
Jafntefli Grundfirðinga
í síðasta leik
Víkingur mætir
ÍA í kvöld á
Skaganum
Tvær Skaga-
konur í U19
landsliðið