Skessuhorn - 04.12.2013, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2013
Jólatónleikar, markaðir og ýmsar upp-
ákomur sem tengjast aðventu og jól-
um eru á Vesturlandi næstu dagana.
Fyrir þá sem vilja fylgjast með og taka
þátt í aðventunni með því að sækja
viðburði er bent á viðburðardagatal-
ið í liðnum „Á döfinni“ í Skessuhorni,
bæði í blaðinu og á vefnum.
Misjöfnu veðri er spáð næstu vikuna.
Á fimmtudag og föstudag er útlit fyr-
ir grimmdarfrost um mestallt land, allt
upp í 18 stig inn til landsins. Það eyk-
ur á kuldann, fyrir norðan er spáð 6-15
m/sek af norðri á fimmtudag ásamt
éljum, en hægari verður syðra og úr-
komulaust. Á föstudag er spáð vax-
andi suðaustanátt og 10-15 m/sek
með snjókoma syðra síðdegis. Á laug-
ardag er áfram sunnan- og suðaustan,
snjókoma í fyrstu og síðan slydda eða
rigning og hlánar sunnan- og vest-
an til. Á sunnudag og mánudag er
áfram spáð suðlægri átt og rigningu
eða slyddu með köflum, en úrkomu-
lítið norðaustanlands. Hiti yfirleitt 0 til
5 stig.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns: „Hvað finnst þér um íslensku
jólasveinana?“ Gestir á vefinn voru
nokkuð sammála og flestir jákvæð-
ir í þeirra garð. „Frábærir í alla staði“
sögðu 72,66%, „vinalegir“ sögðu
8,47% og „uppátækjasamir“ 8,29%.
„Of gamaldags“ sögðu 6,35% og
4,23% höfðu ekki myndað sér skoðun
á þessum uppætkjasömu piltum.
Í þessari viku er spurt:
Hvernig líst þér á niðurfærsluleið
ríkisstjórnarinnar?
Íbúar sem taka virkan þátt í mótun og
uppbyggingu samfélagsins í heima-
byggð sinni eru Vestlendingar vik-
unnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Skólarnir fái
fjárveitingar til
tækjakaupa
AKRANES: Tillaga að tækja-
kaupum vegna grunnskóla
Akraneskaupstaðar var sam-
þykkt á fundi bæjarráðs sl.
föstudag. Bæjarráð leggur
til við bæjarstjórn að veittar
verði tíu milljónir króna til að
setja upp þráðlaust net og til
kaupa á tölvubúnaði í grunn-
skólum Akraneskaupstaðar.
Kostnaður vegna þráðlauss
nets er áætlaður 3,5 milljónir
og vegna kaupa tölvubúnaðar
verði varið allt að 6,5 milljón-
um. Kaup á tölvubúnaði skipt-
ist milli skólanna samkvæmt
núverandi nemendafjölda, það
er kr. 2.670.000 til Brekku-
bæjarskóla og kr. 3.830.000 til
Grundaskóla. Einnig var sam-
þykkt á fundinum tillaga um
vinnu að fjárfestingaráætlun
fyrir grunnskólana. Þar fel-
ur bæjarráð framkvæmda-
stjórum stjórnsýslu- og fjár-
málasviðs og fjölskyldusviðs
að vinna fjárfestingaráætlun
vegna upplýsingatæknimála í
grunnskólum Akraneskaup-
staðar. Áætluninni verði skil-
að til bæjarráðs fyrir 1. febrú-
ar næstkomandi.
-þá
Vinnuslys á
Grundartanga
LBD: Lögreglunni var sl.
föstudagskvöld tilkynnt um
vinnuslys í GMR Endur-
vinnslunni ehf. á Grundar-
tanga. Þar varð mikill hvell-
ur þegar slanga gaf sig und-
an þrýstingi og voru tveir
starfsmenn fluttir í kjölfar-
ið á sjúkrahúsið á Akranesi til
læknisskoðunar og aðhlynn-
ingar. Fjögur umferðaróhöpp
urðu í umdæmi lögreglunnar
í Borgarfirði og Dölum í vik-
unni öll án teljandi meiðsla á
fólki. Einn ökumaður var tek-
inn fyrir ölvun við akstur í vik-
unni.
–þá
Afmælisveisla hjá
lionsmönnum
DALIR: Mikið stendur til
hjá lionsmönnum í Dölum
þessa dagana. Lionsklúbbur
Búðardals er 50 ára um þess-
ar mundir og haldið verður
upp á það með afmælisfagn-
aði og veislu í félagsheimilinu
Árbliki í Miðdölum nk. föstu-
dagskvöld. Í Lionsklúbbi Búð-
ardals eru í dag 23 félagar og á
afmælisfundinum verða tekn-
ir inn þrír nýir félagar. Þá er
á Reykhólum starfandi deild
úr Lionsklúbbnum í Búðar-
dal með rúmlega tuttugu fé-
lögum. Reykhóladeildin var
stofnuð 1999 og var fyrsta
lionsdeildin í heiminum sem
stofnuð var að sögn Böðv-
ars Bjarka Magnússonar for-
manns Lionsklúbbs Búðar-
dals. Að sögn Jóns Egilsson-
ar bónda í Sauðhúsum, for-
manns skemmtinefndarinn-
ar, verður margt til skemmt-
unar á afmælisfundinum. Til
hans er boðið fulltrúum frá
móðurklúbbi Dalamanna sem
er Lionsklúbbur Borgarness.
Einnig fulltrúum nágranna-
klúbbsins á Hólmavík og frá
klúbbunum á Snæfellsnesi,
en Lionsklúbbur Búðardals er
móðurklúbbur þeirra. -þá
Norðurál hefur fengið vottun á
umhverfisstjórnunarkerfi sínu eftir
ISO 14001 staðlinum og öryggis-
stjórnunarkerfi eftir OHSAS 18001
staðlinum. „Mikil áhersla hefur
ávalt verið lögð á öryggis- og um-
hverfismál hjá Norðuráli sem stefn-
ir að því að vera í fararbroddi þegar
kemur að þeim málaflokkum. Vott-
anir á umhverfis- og öryggisstjórn-
unarkerfum er formleg staðfesting
á því góða starfi sem starfsfólk fyr-
irtækisins hefur innt af hendi,“ seg-
ir í tilkynningu frá Norðuráli.
Aðeins er liðið eitt ár síðan gæða-
kerfi Norðuráls var vottað eftir ISO
9001 staðlinum. „Fyrirtækið held-
ur með þessu áfram að auka innri
styrk og samkeppnishæfni á al-
þjóðamarkaði. Vottunaraðili Norð-
uráls er British Standards Institu-
tion (BSI).“
mm
Línuskipið Gullhólmi SH 201 kom
til heimahafnar í Stykkishólmi í lok
síðustu viku og landaði 53 tonnum
til vinnslu hjá útgerðinni Agustson
ehf. Rúmlega helmingur aflans var
þorskur. Með þessu hefðbundnu
haustúthaldi skipsins en því hefur
undanfarin ár verið haldið til veiða
norður og austur af landinu. Aflan-
um hefur þá verið landað bæði fyr-
ir austan og norðan og honum ekið
til vinnslu heima í Stykkishólmi. Í
þetta sinn kom skipið heim með
gat á stefni eftir að hafa siglt á ís-
jaka norður af landinu. „Við vorum
að draga línuna í íshrafli miðviku-
daginn 20. nóvember þegar töluvert
högg kom á bátinn. Ég var í koju og
vaknaði við þetta. Það kom í ljós að
við höfðum lent á hörðum ísköggli
sem reif gat á stefnið. Það var þó
aldrei nein hætta á ferðum því þarna
var vatnstankur á skipinu. Við vor-
um að ljúka við að draga síðustu
lögnina þegar þetta gerðist þannig
að við fórum bara heim í Stykkis-
hólm,“ segir Sigurður Þórarinsson
stýrimaður á Gullhólma SH.
Sigurður segir að Gullhólmi hafi
landað á Siglufirði í haust. „Við
höfum verið að sækja í afla norð-
ur af Horni. Þar hefur verið ágæt
veiði þó að sjálfsögðu geti verið
dagamunur á eins og gengur. Við
erum með beitningavél og höf-
um verið að taka þetta 25-35 tonn
eftir tvær til þrjár lagnir. Túrarn-
ir hafa verið um tveir sólarhring-
ar. Við ísum allt í kör um borð og
það er verið að kappkosta að koma
sem ferskustum afla í land. Fiskin-
um hefur svo verið keyrt í Stykk-
ishólm.“ Nú tekur við tímabil
þar sem Gullhólmi verður gerð-
ur út frá Stykkishólmi þó áfram
verði róið á miðin norður af land-
inu. „Túrarnir hjá okkur lengjast
þá í um fimm daga og við lönd-
um heima. Þetta er mynstrið hjá
okkur. Við förum norður eða aust-
ur í ágúst og erum þar fram undir
desember en snúum þá heim. Að-
spurður segir hann að 14 menn séu
í áhöfn Gullhólma, flestir búsettir
í Stykkishólmi.
mþh
Stjórnendur Norðuráls ásamt fulltrúa British Standards Institution, vottunaraðila
Norðuráls.
Aukinn styrkur og
samkeppnishæfni Norðuráls
Eining í Hvalfjarðarsveit lýsir jákvæðu
viðhorfi til persónukjörs
Björn Páll Fálki Valsson íbúi í
Hvalfjarðarsveit og ferðaþjónustu-
bóndi á Þórisstöðum sendi sveitar-
stjórn Hvalfjarðarsveitar fyrir um
ári síðan erindi þar sem hann skor-
aði á sveitarstjórn að kanna vilja til
þess að kosið verði óhlutbundinni
kosningu til sveitarstjórnar vorið
2014. Vildi hann að kostir og gall-
ar þessa fyrirkomulags yrðu kann-
aðir. Í báðum kosningum til sveit-
arstjórnar í Hvalfjarðarsveit frá því
sveitarfélagið varð til 2006 með
sameiningu fjögurra hreppa sunn-
an Skarðsheiðar, hafa verið boðnir
fram listar. Samkvæmt heimildum
Skessuhorns hefur talsverð umræða
verið um þennan valmöguleika að
undanförnu, að kosið verði óhlut-
bundinni kosningu. Var það m.a.
rætt á íbúafundi í sveitarfélaginu 1.
september síðastliðinn. Í sveitarfé-
lögum á Vesturlandi er tillaga þessa
efnis ekki án fordæma. Skemmst
er að minnast þess að fyrir sveit-
arstjórnarkosningar 2010 komust
Dalamenn að samkomulagi um að
leggja af listakosningar til sveit-
arstjórnar þá um vorið og var því
kosið þar óhlutbundinni kosningu.
Samkvæmt lögum er slíkt heimilt
komi ekki fram einn framboðslisti
eða fleiri.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar
ræddi erindi Björns Páls á fundi 12.
nóvember 2012 en tók ekki efnis-
lega afstöðu til þess. Um það voru
skiptar skoðanir þá og eru enn. Á
þessum fundi fyrir rúmlega ári síð-
an var lagt til að núverandi fram-
boð sem eiga fulltrúa í sveitarstjórn
tækju tillöguna til efnislegrar um-
ræðu í sínum röðum. Það hefur nú
verið gert í að minnsta kosti einu
framboðanna, hjá E-lista Einingar í
Hvalfjarðarsveit sem samþykkti eft-
irfarandi bókun nýverið. Var álykt-
un E listans lögð fram til kynning-
ar á fundi sveitarstjórnar sl. þriðju-
dag. Það skal þó tekið fram að þrátt
fyrir að einn eða jafnvel allir núver-
andi listar samþykktu að leggja til
að kosið yrði óhlutbundinni kosn-
ingu, myndi það samkvæmt núgild-
andi lögum ekki útiloka nokkurn
þann hóp til framboðs sem skilaði
framboðslista inn fyrir lokafrest.
Bókun E listans var svohljóðandi:
„E-listinn lýsir yfir jákvæðu við-
horfi til persónukjörs, þ.e. til óhlut-
bundinna kosninga í Hvalfjarðar-
sveit vorið 2014. Hópurinn skynjar
áhuga íbúa í Hvalfjarðarsveit á að
fara þessa leið, en hann birtist m.a.
á íbúaþingi sem haldið var 1. sept.
sl. Hópurinn lýsir sig reiðubúinn
til frekari viðræðna um þessi mál,“
segir í bókun E listans.
mm
Gullhólmi kom heim með gat á stefni
Gullhólmi SH 201 við bryggju í Stykkishólmi. Gert við gatið á stefni Gullhólma í liðinni viku. Ljósm. Sumarliði Ásgeirsson.