Skessuhorn - 04.12.2013, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2013
Breytingar í nefnd-
um og ráðum
AKRANES: Á fundi bæjarráðs
Akraness sl. föstudag voru sam-
þykktar breytingar á skipan í
nefndir og ráð á vegum bæjarins
og snerta þær allar fulltrúa Sam-
fylkingar. Í framkvæmdaráð og í
skipulags- og umhverfisnefnd
komi Björn Guðmundsson í
stað Magnúsar Freys Ólafsson-
ar, sem sagði af sér störfum fyrir
skömmu. Sindri Birgisson komi
inn í nefndirnar sem varamaður
í stað Björns Guðmundssonar.
Í menningarmálanefnd verður
Hrund Snorradóttir aðalmað-
ur í stað Björns Guðmundsson-
ar og Gunnhildur Björnsdótt-
ir varamaður í stað Hlédísar
Sveinsdóttur. –þá
Lesið úr Upp-
heimabókum
AKRANES: “Lesið verður úr
nýjum bókum sem bókaútgáfn
Uppheimar gefa út í Bókasafni
Akraness, miðvikudaginn 4. des-
ember kl 20.00. Þessir höfund-
ar lesa úr verkum sínum: Bjarki
Karlsson - Árleysi alda, Sigrún
Elíasdóttir - Kallar hann mig,
kallar hann þig, Bjarni Guð-
mundsson - Frá hestum til hest-
afla, Guðjón Friðriksson - Hér
heilsast skipin og Sigmundur
Ernir Rúnarsson - Ein á enda
jarðar. Allir eru velkomnir og
heitt kaffi verður á könnunni.”
–fréttatilk.
Áburður lækkar
umtalsvert milli ára
LANDIÐ: Áburður frá Yara,
sem Sláturfélag Suðurlands er
með umboð fyrir, lækkar umtals-
vert í verði frá síðustu verðskrá.
Köfnunarefnisáburður lækkar um
12% og algengar þrígildar áburð-
artegundir lækka um 8 til 11%.
Þetta kemur fram í verðskrá Yara
áburðar fyrir árið 2013 til 2014.
Verðskráin gildir til 31. desemb-
er 2013, þó með fyrirvara um
breytingar á gengi. Þá býður SS
upp á greiðslusamninga eða stað-
greiðsluafslátt. Einnig býður fyr-
irtækið tilboð á flutningi ef pant-
að er fyrir áramót og kostar tonn-
ið þá 1000 krónur án virðisauka-
skatts ef pantaður er flutningur á
sex tonnum eða meira. Þetta er í
fyrsta skipti í áraraðir sem áburð-
ur lækkar í verði milli ára. Þá
liggur verðskrá nú fyrir óvenju
snemma en ekki er langt síðan
bændur kvörtuðu hástöfum yfir
því að verðskrár lægju ekki fyr-
ir fyrr en komið væri framundir
vor. -mm
Læsi minnkar á
landsbyggðinni
LANDIÐ: Frammistöðu ís-
lenskra barna í stærðfræði hef-
ur hrakað á síðustu tíu árum.
Það sama gildir um frammi-
stöðu í lesskilningi og náttúru-
fræði. Þetta sýna niðurstöð-
ur nýjustu PISA rannsóknar
OECD. Landsbyggðin lætur
sérstaklega undan síga á með-
an höfuðborgarsvæðið helst í
horfinu. Sé horft til allra PISA
mælinga frá upphafi þá hef-
ur íslenskum nemendum hrak-
að sem nemur hálfu ári á síðasta
áratug. Í þessari PISA-rann-
sókn var lögð áhersla á stærð-
fræðilæsi, lesskilning og nátt-
úrufræðilæsi. Frammistaða ís-
lenskra nemenda hefur versnað
í öllum greinunum en meira á
landsbyggðinni en höfuðborg-
arsvæðinu. -mm
Bókin Paradísar-
stræti er komin út
Hjá Bókaútgáfunni Merkjalæk í
Svínadal í A-Hún er komin út bók-
in Paradísarstræti - Lena Grigoleit,
austur-prússnesk bóndakona segir
sögu sína. Pétur M. Sigurðsson og
Sigurður H. Pétursson þýddu bók-
ina úr þýsku. Höfundur bókarinn-
ar er Ulla Lachauer, þýsk blaða-
kona. Hún kom í þorpið, þar sem
Lena bjó, árið 1989 eftir fall Berl-
ínarmúrsins.
Fyrir tilviljun kemst hún í kynni við
Lenu sem þá var ein eftir í þorp-
inu af fyrrum íbúum þess. Með
Ullu og Lenu takast góð kynni og
nokkrum árum seinna dvelur Ulla
hjá Lenu í tvær vikur með upp-
tökutæki og stílabók og afrakstur-
inn er bókin Paradísarstræti. Lena
upplifir tvær heimsstyrjaldir og út-
legð í 5 ár í Síberíu með fjölskyld-
unni. Hún kemst heim aftur. Lena
hefur mikla frásagnarhæfileika og
frásögn hennar er einlæg og sönn.
Frásögnin snýst um hið mannlega
án nokkurra stríðslýsinga á þessum
miklu umróta- og stríðstímum sem
Lena upplifir, sem skók alla Evr-
ópu á 20. öld og gjörbreytti landa-
korti álfunnar. Í bókarlok er vand-
aður eftirmáli um tilurð bókarinn-
ar og sögu Memelhéraðs. Einn-
ig eru í bókinni fjögur landakort
sem sýna þróun landsvæðisins á 20.
öld ásamt fjölda ljósmynda. Bókin
varð metsölubók í Þýskalandi þeg-
ar hún kom út og hefur verið þýdd
á nokkur tungumál.
Bókin er komin í sölu í mörgum
verslunum á höfuðborgarsvæðinu
og hjá Eymundsson á Akranesi.
Einnig er hægt að panta bókina hjá
útgefanda, Sigurði H. Péturssyni, í
síma 557-2480 eða 892-3215 eða
með tölvupósti í netfang sighp@
emax.is. Kostar þá bókin 2.100
krónur með sendingarkostnaði.
-fréttatilkynning.
Aflatölur fyrir Vesturland
23. - 29. nóv.
Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu:
Akranes 7 bátar.
Heildarlöndun: 14.822 kg.
Mestur afli: Ebbi AK 4.878 kg í
einni löndun.
Arnarstapi 4 bátar.
Heildarlöndun: 27.645 kg.
Mestur afli: Kvika SH: 20.646 kg
í fjórum löndunum.
Grundarfjörður 15 bátar.
Heildarlöndun: 671.344 kg.
Mestur afli: Vilhelm Þorsteinsson
EA: 388.134 kg í einni löndun.
Ólafsvík 17 bátar.
Heildarlöndun: 134.586 kg.
Mestur afli: Ólafur Bjarnason
SH: 17.608 kg í þremur löndun.
Rif 16 bátar.
Heildarlöndun: 379.672 kg.
Mestur afli: Örvar SH: 92.063 kg
í einni löndun.
Stykkishólmur 27 bátar.
Heildarlöndun: 120.410 kg.
Mestur afli: Gullhólmi SH:
29.500 kg í einni löndun.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Vilhelm Þorsteinsson EA –
GRU: 388.134 kg. 23. nóv.
2. Örvar SH – RIF: 92.063 kg.
24. nóv.
3. Tjaldur SH – RIF: 80.130 kg.
24. nóv.
4. Hringur SH – GRU: 68.799
kg 24. nóv.
5. Grundfirðingur SH – GRU:
52.073 kg. 23. nóv.
mþh
Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur verið
valinn besti lífeyrissjóður smáþjóða
af fagtímaritinu Investment Pen-
sion Europe (IPE). Í umsögn dóm-
nefndar kom meðal annars fram að
góð ávöxtun sjóðsins hefði verið
byggð á framsýnum fjárfestingar-
ákvörðunum og öflugri áhættustýr-
ingu. Árin 2009-2011 var Frjálsi líf-
eyrissjóðurinn valinn besti lífeyris-
sjóður á Íslandi af IPE fagtíma-
ritinu. Í ár og árið 2012 voru ekki
veittar viðurkenningar fyrir Ísland
sérstaklega heldur keppa sjóðir frá
Íslandi nú í flokki smáþjóða, eins
og sjóðir átta annarra Evrópulanda
með færri en eina milljón íbúa.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn, sem er í
rekstri hjá Arion banka, er um 130
milljarðar að stærð og sjóðfélagar
eru um 47 þúsund talsins. Sjóður-
inn hentar þeim sem hafa frjálst val
um í hvaða lífeyrissjóð þeir greiða
12% skylduiðgjald og hentar jafn-
framt þeim sem leggja fyrir í við-
bótarlífeyrissparnað. mm
Framkvæmdir standa nú yfir á
gatnamótum hringvegarins og
vegarins að Kárastaðaflugvelli
fyrir ofan Borgarnes. Að sögn
Páls S. Brynjarssonar sveitar-
stjóra Borgarbyggðar er um að
ræða framkvæmd á vegum Orku-
veitu Reykjavíkur og Borgar-
byggðar þar sem verið er að fylla
upp í skurð við gatnamótin sem
skapað hefur hættu fyrir um-
ferð. Nú sé verið að leggja dren-
lögn í skurðinn en einnig er ver-
ið að koma þar fyrir nýju ræsi.
Loks standi til að sjálf gatnamót-
in verði löguð.
hlh
Búið er að ljúka niðurbroti
stúkunnar við innilaug íþrótta-
miðstöðvarinnar í Borgarnesi.
Niðurbrotið er hluti af fram-
kvæmdum við stækkun þrek-
salar miðstöðvarinnar sem
hófust í haust. Þar sem stúk-
an var áður verður slegið upp
nýrri 56 fermetra hæð sem
mun bætast við rými þreksal-
arins. Glerveggur mun síð-
an skilja að þreksalinn og rými
innilaugarinnar. Bygginga-
verktakinn Eiríkur J. Ingólfs-
son í Borgarnesi er með verkið
á sinni könnu og sagði hann í
samtali við Skessuhorn í gær að
nú væri unnið við uppslátt. Vonast
er síðan til að öll steypuvinna verði
búin fyrir áramót. Það voru þeir
Gústaf Jökull Ólafsson á Reykhól-
um og Haraldur Helgason í Bæjar-
sveit sem sáu um niðurbrot og
sögun stúkunnar í undirverk-
töku fyrir Eirík.
Auk þreksalarins verður
kvennaklefi fyrir sundlaugina
stækkaður í framkvæmdun-
um. Nýja rými klefans verð-
ur undir nýja hluta þreksalar-
ins og bætast þar við 20 fata-
skápar og sex sturtur. Að-
staðan stækkar því um helm-
ing frá því sem nú er. Að sögn
Kristjáns Finns Kristjánssonar
verkefnisstjóra framkvæmda-
sviðs Borgarbyggðar stóð upp-
haflega til að verklok yrðu fyrir
áramót en fyrirséð er að fram-
kvæmdir munu standa yfir eitthvað
fram á nýja árið. hlh
Stéttarfélags Vesturlands skoraði
nýverið á sveitarstjórnir í landshlut-
anum að fylgja fordæmi Reykjavík-
urborgar og hækka ekki gjaldskrár
um næstu áramót. Sem kunnugt er
hafði borgarstjórn tekið ákvörð-
un um að hækka fjölmarga þjón-
ustuliði í gjaldskrá borgarinnar en
féll síðar frá því til að leggja sitt af
mörkum í baráttunni fyrir stöðugra
verðlagi. Að sögn Signýjar Jóhann-
esdóttur, formanns Stéttarfélags
Vesturlands, hafa engin svör bor-
ist ennþá en áskorunin var send til
sveitarstjórna í nóvemberlok. Svara
er þó að vænta innan skamms þar
sem vinna við gerð fjárhagsáætl-
ana er á lokastigi hjá sveitarfélög-
unum tíu.
Signý segir áskorun félagsins
vera hluta af heildarátaki Alþýðu-
sambands Íslands gegn verðbólgu í
landinu. Verkalýðshreyfingin hefur
einnig skorað á ríkisvaldið að hverfa
frá boðuðum hækkunum auk þess
sem hreyfingin hefur skorað á fyrir-
tæki að leggja sitt af mörkum til að
draga úr verðbólgunni. Signý segir
að samstillt átak í þessum efnum sé
árangursríkasta leiðin og rifjar upp
árangurinn af átaki gegn verðbólgu
árið 2001 þegar tókst að halda vísi-
tölu neysluverðs undir svokölluðu
rauðu striki.
hlh
Atvinnuvegaráðueytið gaf í
byrjun síðustu viku út viðbót
við reglugerð um ráðstöfun
aflaheimilda á íslenskri sum-
argotssíld. Sem kunnug er
virðist hrygningarstofn henn-
ar að mestu leyti genginn inn
fyrir brúna yfir Kolgrafafjörð
eins og í fyrra. Þá er talið að
52 þúsund tonn af síld hafi
drepist vegna súrefnisstkorts.
Með nýju reglugerðinni sem
gefin var út er öll umferð og
veiði báta bönnuð við mæli-
tæki sem komið hefur verið
fyrir innan brúar í Kolgrafa-
firði. Alls eru svæðin fimm,
fjögur þeirra afmarkast með
200 m geisla út frá miðpunkt-
um svæðanna og eitt með 300
m geisla. Eins og sjá má á
meðfylgjandi korti eru veiðar
því bannaðar á stórum svæð-
um utanvert í firðinum.
mþh
Kort sem sýnir bannsvæðin í Kolgrafafirði.
Veiðar bannaðar á stórum hluta í Kolgrafafirði
Niðurbroti stúkunnar er lokið. Sjá má að búið er
að opna tvær dyr sem veita aðgang að nýja rými
kvennaklefans.
Komið að uppslætti í íþróttamiðstöðinni
Arnaldur Loftsson framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins tekur við verðlaun-
unum.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn valinn
besti lífeyrissjóður smáþjóða
Frá gatnamótum hringvegarins og
vegarins að Kárastaðaflugvelli fyrir ofan
Borgarnes í síðustu viku. Ljósm. bhs.
Gatnamót gerð öruggari
Signý Jóhannesdóttir formaður
Stéttarfélags Vesturlands.
Skora á sveitarfélög að hækka ekki gjaldskrár