Skessuhorn - 04.12.2013, Blaðsíða 40
ÞÚ FÆRÐ MEIRA Í STOFNI
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Bæjarráð Snæfellsbæjar samþykkti
samhljóða á fundi sínum nýver-
ið að heimila útboð á ljósleiðara-
verkefni á sunnanverðu Snæfells-
nesi. Verkefnið hefur verið kall-
að Sveitavegurinn og er samstarfs-
verkefni þriggja sveitarfélaga, þ.e.
Snæfellsbæjar, Eyja- og Miklaholts-
hrepps og Borgarbyggðar. Þessi
sveitarfélög hafa hagsmuni af lagn-
ingu ljósleiðarans en svæðið sem
um ræðir er frá Hítará að Hellis-
sandi. Atvinnuráðgjöf Vesturlands
hafa undirbúið verkefnið og það
var á grundvelli greinagerðar Ólafs
Sveinssonar hjá SSV um verkefnið
og úrbætur á nettengingum á sunn-
anverðu Snæfellsnesi, sem bæjarráð
Snæfellsbæjar samþykkti fyrir sitt
leyti að heimila útboð. Sýnt þykir
að hin tvö sveitarfélögin sem tengj-
ast verkefninu muni gera það einn-
ig með fyrirvörum um kostnaðar-
þátttöku þegar til samninga kemur
á grundvelli tilboða.
Ljósleiðaravæðingin sem Sveita-
vegurinn nær til er Staðarsveit í
Snæfellsbæ, Eyja- og Miklaholts-
hreppur, sem og Kolbeinsstaða-
hreppur í Borgarbyggð. Verkefnið
er unnið í samræmi við sóknaráætl-
un 2011, áætlun sem ríkisstjórn-
in síðasta setti á laggirnar. Kristinn
Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ
segir að fólki lítist vel á verkefnið og
þær úrbætur sem það myndi kalla
fram í nettenginu og margmiðlun-
armálum fyrir svæðið. Hann telur
það flokkast undir frumkvöðlastarf
sem önnur sveitarfélög og lands-
svæði myndu svo byggja á. Bæjar-
ráð Snæfellsbæjar tilgreinir í sam-
þykkt sinni að skilyrði fyrir heim-
ild til útboðs sé að sveitarfélögum
verði kynntar niðurstöður útboðs
og hvort eða hversu mikið fjár-
magn þurfi frá hverju sveitarfélagi
til þeirra framkvæmda sem boðnar
verða út. Gerð verði ítarleg kostn-
aðaráætlun og fjármögnunaráætl-
un fyrir verkefnið áður en sveitar-
félagið heimilar að gengið verði til
samninga við tilboðsgjafa.
Ef af þessu verkefni verður mun
sunnanvert Snæfellsnes verða ann-
að svæðið á Vesturlandi sem færi í
gegnum svipaða byltingu í tækni-
málum á skömmum tíma. Eins og
komið hefur fram í fréttum Skessu-
horns stendur Hvalfjarðarsveit nú í
stórræðum við lagningu ljósleiðara
heim að öllum bæjum í sveitarfé-
laginu. Áætlað er að því verki verði
lokið um mitt næsta ár. þá
Um 150 vestlenskir hestamenn
komu saman sl. laugardagskvöld á
Hótel Stykkishólmi og áttu sam-
an góða kvöldstund. Það voru
þeir Lárus Ástmar Hannesson og
Ámundi Sigurðsson sem sáu um
skipulagningu, en samkomugestir
voru sammála um að þetta þyrfti að
verða árlegur viðburður framvegis
og stefnt á að hittast aftur að ári.
Segja má með sanni að hesta-
mennskan á Vesturlandi hafi
blómstrað síðasta sumar. Fjórð-
ungsmót var á Kaldármelum í júlí,
Íslandsmót fullorðinni í Borgar-
nesi og Heimsmeistaramót í Berlín
í ágúst. Átta vestlenskir hestamenn
áttu þar sína fulltrúa, bæði hesta
og knapa. Hestaíþróttaknapi ársins
og efnilegasti knapinn koma báðir
frá Vesturlandi. Það eru þeir Jak-
ob Svavar Sigurðsson og Konráð
Valur Sveinsson. Einnig er mik-
il uppsveifla í kynbótahrossum og
má m.a. nefna Nótu frá Stóra Ási
sem hlaut Glettubikarinn, sex hæst
dæmdu fjögurra vetra stóðhestarn-
ir í ár koma allir frá Vesturlandi.
Hæst dæmda hryssa ársins var Auð-
ur frá Skipskaga með 8,68 í aðal-
einkunn. Tveir stóðhestar eru jafn-
ir í efsta sæti stóðhesta og er annar
þeirra Narri frá Vestri Leirárgörð-
um með 8,71 í aðaleinkunn. Sann-
arlega frábær árangur hjá okkar
fólki og hrossum og verður spenn-
andi að fylgjast með á næsta ári.
Þá verður Landsmót í byrjun júlí
á Hellu og þó að desember sé bara
nýhafinn eru eflaust margir farnir
að huga að því.
iss
Áhrif lagningar ljósleiðara um strjálbýl svæði sem búa við slæmt fjarskiptasam-
band má líkja við byltingu. Slíkt bætir búsetuskilyrði og mun vafalítið leiða af
sér fjölgun íbúa. Hér eru hressir krakkar í Ungmennafélagi Staðarsveitar sem
vafalítið munu taka breytingunum fagnandi. Ljósm. úr safni.
Ljósleiðaraverkefni á sunnanverðu
Snæfellsnesi að verða tilbúið í útboð
Svipmynd úr salnum á Hótel Stykkishólmi á laugardaginn.
Vestlenskir hestamenn hafa
ríka ástæðu til að gleðjast
Eftirtaldar verslanir hafa
samræmdan opnunartíma
í desember
Opnunartími verslana á Akranesi:
7. des. laugardagur opið til 18
8. des. sunnudagur 13-16
14. des. laugardagur opið til 18
15. des. sunnudagur 13-17
19. des. fimmtudagur opið til 22
20. des. föstudagur opið til 22
21. des. laugardagur opið til 22
22. des. sunnudagur opið til 22
23. des. Þorláksmessa opið til 23
24. des. Aðfangadagur opið til 12
Njótum aðventunnar - Verslum í heimabyggð
*
Kirkjubraut 12
Þjóðbraut 1 - Akranes
Dalbraut 1
Akranes
* @home, Bjarg, Model, Dýrfinna Torfa opið til kl. 16
Bjarni Þór
Gallerí vinnustofa
Kirkjubraut 1 - Akranes
GULLSMIÐUR
FIN
N
A
DYR
Stillholti 16
Sími 464 3460