Skessuhorn - 04.12.2013, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2013
Byggðastofnun fékk í liðinni viku
afhent staðfestingu þess að hún hafi
hlotið jafnlaunavottun VR. Stofn-
unin er önnur í röð íslenskra rík-
isstofnana til að ná þessum áfanga.
Hún hefur þar með fengið staðfest-
ingu á því að búið sé að kerfisbinda
launaákvarðanir, koma upp jafn-
launakerfi samkvæmt kröfum jafn-
launastaðals og að nú verði kerfis-
bundið fylgst með því hjá stofnun-
inni að starfsfólk sem vinnur sömu
eða jafnverðmæt störf hafi sam-
bærileg laun óháð kynferði. Jafn-
launavottun VR er fyrir öll fyrir-
tæki og stofnanir, burtséð frá stétt-
arfélagsaðild starfsmanna.
Ólafía B. Rafnsdóttir formaður
VR afhenti Aðalsteini Þorsteins-
syni forstjóra Byggðastofnunar
vottunina við athöfn sl. fimmtu-
dag. „Ég fagna því að Byggðastofn-
un hafi ákveðið að taka þetta mik-
ilvæga skref og sækjast eftir Jafn-
launavottun VR. Við verðum öll,
stofnanir og fyrirtæki sem og stétt-
arfélög, að leggja okkar af mörkum
til að koma á jafnrétti kynjanna á ís-
lenskum vinnumarkaði. Ég vona að
fleiri opinberar stofnanir fylgi for-
dæmi Byggðastofnunar og taki þátt
í þessu verkefni með okkur,“ sagði
Ólafía. mm
Hæstiréttur komst í dómi sín-
um sl. fimmtudag að sömu niður-
stöðu og Héraðsdómur Austur-
lands gerði fyrir nokkru um kæru
Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi
á fólksflutningsfyrirtækinu Sterna
Travel. Kröfu stefnanda er hafn-
að, Sambands sveitarfélaga á Aust-
urlandi, um að staðfest verði lög-
bann sem sýslumaður-
inn á Höfn lagði 18. júlí
2012 við reglubundnum
fólksflutningum stefnda,
Sterna Travel ehf. á áætl-
unarleið Höfn - Egils-
staðir - Höfn. Stefndi,
það er Sterna Travel, er
sýkn af öðrum kröfum
stefnanda í málinu sam-
kvæmt niðurstöðu dóms
Hæstaréttar. Stefnandi
greiði stefnda 700.000
krónur í málskostnað.
Forsaga málsins er
eins og fram kemur í
málgögnum að Vegagerðin gerði
samning við Samtök sveitarfélaga
á Austurlandi 22. desember 2011
um almenningssamgöngur á Aust-
urlandi. Fól sá samningur í sér að
áfrýjanda var veitt einkaleyfi til að
skipuleggja og sjá um þær. Áfrýj-
andi þáði samkvæmt samningnum
árlegan 45 milljóna króna styrk fyr-
ir rekstur almenningssamgangna
innan starfsvæðis síns. Einkaleyf-
ið var veitt samkvæmt 1. mgr. 7.
gr. laga nr. 73/2001 um fólksflutn-
inga og farmflutninga á landi. Að
því veittu er mælt fyrir um það í
2. mgr. greinarinnar að öðrum en
einkaleyfishafa sé óheimilt, nema
með samþykki hans, að stunda
reglubundna fólksflutninga á svæð-
um og leiðum þar sem einkaleyfi
til slíkra fólksflutninga hefur ver-
ið veitt. Í sýknudómi Héraðsdóms
Austurlands og dómi Hæstarétt-
ar sl. fimmtudag er ekki fallist á að
þær ferðir sem Sterna Travel bauð
upp á falli undir skilgreiningu um
reglubundna fólksflutninga. Nán-
ar má lesa um dóminn á heimasíðu
Hæstaréttar.
Í tilkynningu frá Sterna segir að
fyrirtækið hafi orðið fyrir veru-
legu tjóni vegna þessara aðgerða
Sambands sveitarfélaganna á Aust-
urlandi. Þegar lögreglan á Egils-
stöðum hindraði för bifreiða Bíla
og fólks sem var að fara til Hafn-
ar voru um 20 erlendir
ferðamenn í rútunni sem
var kyrrsett. Umboðsað-
ilar þessara ferðamanna,
ferðaskrifstofur í Þýska-
landi og Frakklandi hafi
slitið öllum samskiptum
við fyrirtækið og ljóst er
að Sterna varð fyrir veru-
legu tjóni. „Áætlum við
að það tjón skipti hundr-
uðum milljóna króna.
Bæði Sterna Travel ehf.
og Bílar og fólk ehf.
íhuga nú fjárhæðir bóta-
kröfu vegna þessara að-
gerða Samtaka sveitarfélaga á Aust-
urlandi. Einnig eru þau fyrirtæki
sem voru í samskiptum við Sterna
að skoða möguleika á bótakröfum
en þau urðu einnig fyrir veruleg-
um skakkaföllum vegna þessara að-
gerða samtakanna,“ segir í tilkynn-
ingu Sterna.
þá
Starfið hjá Kirkjukór Ólafsvíkur er
fjölbreytt þessa dagana. Kórinn æfir
af fullum krafti fyrir jólatónleika
sem haldnir verða fimmtudaginn
12. desember í Ólafsvíkurkirkju.
Fyrstu heimildir um tilvist Kirkju-
kórs Ólafsvíkur eru frá árinu 1893
og saga kórsins því 120 ára. Geisla-
diskur kórsins; Íslensk & þýsk jól,
sem tekinn var upp í janúar 2012, er
nú kominn út. Á disknum má finna,
eins og nafnið gefur til kynna, bæði
íslensk og þýsk jólalög. Diskurinn
verður seldur í Pakkhúsinu, Versl-
uninni Hrund og við innganginn á
tónleikunum.
þa
Nýr veitingasalur var tekinn í notk-
un á Landnámssetri Íslands í Borg-
arnesi á sunnudaginn. Nýi salur-
inn er hluti af viðbyggingu á tveim-
ur hæðum sem hefur verið í bygg-
ingu frá því í mars á þessu ári. Hvor
hæð er 50 fermetrar að flatarmáli,
en veitingasalurinn er á efri hæð og
er gengið inn í hann frá Hvítasal
setursins. Sal-
urinn er ágæt-
lega hannaður
og þjóna Suð-
u r n e s k l e t t a r
s k e m m t i l e g a
hlutverki út-
veggjar í saln-
um. Neðri hæð
viðbyggingar-
innar var einn-
ig tekin í notk-
un á sunnudag-
inn en þar er
að finna eldhús
staðarins, sem stækkar um helming
frá því sem var, geymslur, þvotta-
hús, skrifstofurými og vinnuað-
staða starfsfólks.
Að sögn Kjartans Ragnarssonar
forstöðumanns Landnámsseturs-
ins mun viðbyggingin breyta að-
stöðunni á staðnum verulega, ekki
síst fyrir starfsfólk. Vegna smæðar
eldhússins hefur hingað til einungis
verið hægt að taka á móti takmörk-
uðum fjölda gesta í mat og hefur
því Arinstofa í risi verið minna not-
uð á álagstímum. Nú breytist þetta
og getur Landnámssetrið með sín-
um þremur veislusölum tekið á
móti allt að 70 manns í einu í mat,
þar af 30 í nýja salnum. Nýi salur-
inn er einnig sniðinn fyrir fundi og
einkasamkomur þar sem hægt er að
loka honum frá Hvítasalnum. hlh
Aðaltvímenningi Briddsfélags
Borgarfjarðar lauk síðastlið-
ið mánudagskvöld í Logalandi.
Keppnin var jöfn og spennandi og
fyrir síðasta kvöldið áttu fimm pör
raunhæfa möguleika á sigri. Það
voru Skagamennirnir Magnús og
Leó sem höndluðu pressuna best.
Þeir höfðu verið í toppbaráttunni
allt mótið, án þess þó að leiða það.
Lokakvöldið settu þeir í fimmta gír
og rúlluðu yfir andstæðinga sína
eins og enginn væri morgundag-
urinn. Skor þeirra var ævintýra-
lega hátt, eða 75,7%. Með þessu
glæsiskori tryggðu þeir sér sigur á
mótinu með 1065 stigum. Borg-
nesingarnir Dóra og Rúnar tóku
annað sætið með 1063,6 stigum, en
þau fengu 61,8% úr lokakvöldinu.
Sveinbjörn og Lárus á Hvanneyri
tryggðu þriðja sætið með 64,2%
skori sem alla jafnan dugir til sigurs
fyrir stakt kvöld. Þeir enduðu með
1042 stig.
Næsta mánudag verður spilað-
ur léttur tvímenningur hjá félaginu
og Jólasveinatvímenningur félags-
ins verður svo föstudagskvöldið
13. desember. Þar verður að vanda
dregið saman í pör. Síðasta spila-
mennska ársins hjá félaginu verður
svo mánudagskvöldið 16. desemb-
er. ij/ Ljósm. ss.
Hæstiréttur dæmdi Sterna í vil
í sérleyfismáli fyrir austan
Kirkjukór Ólafsvíkur gefur út jólalagadisk
Á myndinni eru frá vinstri Bryndís Guðnadóttir kjaramálasviði VR, Stefán Svein-
björnsson framkvæmdastjóri VR, Ólafía B. Rafnsdóttir formaður VR, Elín Gróa
Karlsdóttir forstöðumaður hjá Byggðastofnun, Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri
Byggðastofnunar, Torfi Jóhannesson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytinu, Magnús Helgason forstöðumaður hjá Byggðastofnun og Guðbjörg
Sigurbjörnsdóttir launafulltrúi hjá Byggðastofnun.
Byggðastofnun fær
jafnlaunavottun VR
Skagmennirnir kunna listina
að toppa á réttum tíma
Landnámssetrið orðið stærra
Nýi veitingasalur Landnámssetursins. Suðurnesklettar setja
skemmtilega svip á salinn.
Vesturlandsriðill Spurningakeppni
grunnskólanna fór fram í félags-
miðstöðinni Arnar-
dal á Akranesi síðasta
miðvikudag. Þrír skól-
ar skráðu sig til leiks;
Grunnskólinn í Borgar-
nesi, Grunnskóli Borg-
arfjarðar og Grunda-
skóli. Eftir harða keppni
mættust Grundaskóli
og Grunnskólinn í
Borgarnesi í hreinni úr-
slitakeppni sem reynd-
ist æsispennandi. Stað-
an var jöfn framan af og
úrslit réðust ekki fyrr
en í lokaspurningunni.
Grundaskóli verður því
fulltrúi Vesturlands í 16 liða úrslit-
um Spurningakeppni grunnskól-
anna sem fara fram eftir áramót í
Reykjavík. Keppendur Grundaskóla
eru þeir Þórir Halldórsson, Daní-
el Hjörvar Guðmundsson úr 10.
MKÓ og Daníel Aron Jónsson úr 9.
MÁ. grþ
Grundaskóli fulltrúi Vesturlands í
Spurningakeppni grunnskólanna
Lið Grundaskóla í Spurningakeppni grunnskólanna.
Þórir Halldórsson, Daníel Aron Jónsson og Daníel
Hjörvar Guðmundsson.