Skessuhorn - 04.12.2013, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2013
Dvalar- og hjúkrunarheimilið
Fellaskjól í Grundarfirði fagnaði 25
ára afmæli sunnudaginn 1. desem-
ber síðastliðinn. Af því tilefni bauð
heimilisfólk til veislu og hátíðar-
dagskrár. Margir glöddust með
heimilisfólki en hátt í tvö hundr-
uð gestir heimsóttu Fellaskjól af
þessu tilefni. Fjölmargir listamenn
komu fram í afmælinu, leikið var á
harmo nikkur og einnig var fjölda-
söngur við undirleik Ragnars Al-
freðs. Margar gjafir voru gefn-
ar, ræður fluttar og fjöldi árnaðar-
óska voru meltar með stórglæsilegu
hlaðborði í boði brauðgerðanna á
Snæfellsnesi.
„Fellaskjól vill koma á framfæri
þökkum til vina og velunnara fyr-
ir að gefa sér tíma í dagsins önn
til að gleðjast með þeim á þess-
um tímamótum. Markið hefur ætíð
verið sett hátt og vandað til verka
við að halda heimilinu í hópi þeirra
glæsilegustu í landinu. Fellaskjól er
sjálfseignastofnun, rekin af félaga-
samtökum en ekki bæjarfélaginu.
Því er ekki um auðugan garð að
gresja í fjármálum þegar ráðast þarf
í breytingar til batnaðar. Þökk sé
hinum stóru og smáu afmælisgjöf-
um sem bárust heimilinu er hægt
að láta marga drauma rætast,“ seg-
ir Hildur Sæmundsdóttir formað-
ur stjórnar Fellaskjóls. Hún seg-
ir að næst standi til að byggja nýtt
anddyri úr áli og gleri. „Þar verður
sannkölluð sólstofa þar sem heim-
ilisfólk getur notið þess að rækta
blóm og grænmeti að eigin frum-
kvæði við frábærar aðstæður. Einn-
ig verður sett upp merking á heim-
ilið með nýju merki frá sr. Jóni Þor-
steinssyni. Að lokum vil ég geta
þess að þessi frábæra þátttaka íbúa
er hvatning til að takast á við stækk-
un Fellaskjóls á næstu árum,“ seg-
ir Hildur.
grþ /Ljósm. tfk
Salóme Guðmundsdóttir veflista-
kona á fimmtíu ára starfsafmæli um
þessar mundir. Af því tilefni held-
ur hún vinnustofusýningu í kjall-
ara Grensáskirkju í Reykjavík um
þessar mundir. Salóme, eða Sallý
eins og hún er gjarnan kölluð, bjó á
Akranesi um áratuga skeið en fluttu
til Reykjavíkur aldamótaárið. Hún
sagði blaðamanni frá því helsta í
starfi sínu. „Þetta er í annað sinn
sem ég held sýningu hér í kirkj-
unni, ég var líka með eina í fyrra-
haust. Ég hef bara boðið vinum og
kunningjum, sem koma svo aftur
með vini sína og þannig hefur þetta
spurst út,“ segir hún.
Var ákveðin í að læra
vefnað sem barn
Fimmtíu ár eru síðan Sallý byrjaði
að læra vefnað hjá Guðrúnu Vig-
fúsdóttur veflistakonu og hefur lít-
ið stoppað síðan hún byrjaði. „Ég
átti heima á Ísafirði sem barn. Við
bjuggum niðri á tanganum, rétt
við Húsmæðraskólann. Þegar ég
var lítil og gekk framhjá honum,
þá hugsaði ég alltaf að ég ætlaði að
læra að vefa. Ég var alveg ákveðin í
því. Ég var svo heppin að foreldr-
ar mínir þekktu Guðrúnu og hún
tók mig í læri. Ég lærði hjá henni
almennan vefnað í tvö ár.“ Sal-
óme hefur einnig lært hjá fleirum
og kynnt sér vefnað annarra þjóða.
„Ég fór á mörg námskeið hér fyr-
ir sunnan og í Húsmæðraskólan-
um í Reykjavík. Seinna fór ég svo
til Norðurlandanna og kynnti mér
vefnað í Svíþjóð og Finnlandi. Það
var mjög lærdómsríkt að sjá hvað
þeir voru að gera.“
Salóme fékk sér sinn fyrsta vef-
stól fyrir um fjörutíu árum. Þá gat
hún ofið heima hjá sér og not-
aði hann mikið. „Um 1985 fékk ég
mér stærri vefstól og þá gat ég far-
ið að vefa stærri hluti. Kjólefni, stór
veggteppi og gólfmottur til dæm-
is. Ég óf ýmislegt handa sjálfri mér,
svo sem kjóla, pils og vesti. Einn-
ig handa dóttur minni á meðan hún
var lítil.“
Kenndi vefnað
á Akranesi
Salóme bjó á Akranesi í 35 ár, frá
1965 til 2000. Hún var gift Guðjóni
Bergþórssyni, skipstjóra á Akranesi,
en hann lést fyrir nítján árum. Þau
eignuðust eina dóttur, Láru Huld,
sem er sýslumaður á Hólmavík.
Lára Huld á einn fjórtán ára dreng
sem heitir Guðjón Alex. Stuttu eft-
ir andlát Guðjóns flutti Salóme til
Reykjavíkur. Í dag er hún í sambúð
með Gunnari Richter. Hann vinn-
ur líka í handverki en hann sker út
ýmsa fallega hluti úr tré.
Á meðan Salóme bjó á Akranesi
var hún mjög virk í veflistinni. „Ég
var með vefstofu á neðri hæð í húsi
tengdaforeldra minna á Skólabraut í
mörg ár. Ég kenndi hjá Námsflokk-
um Akraness í átta ár og hélt fjöl-
mörg námskeið.“ Hún hélt nokkrar
einkasýningar á handverki sínu og
tók einnig þátt í mörgum samsýn-
ingum. Akraneskaupstaður, Vina-
Eva Jódís Pétursdóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri og Hildur Sæmundsdóttir for-
maður stjórnar ásamt fjölda ungra langömmu- og afabarna.
Afmælishátíð á Dvalar- og
hjúkrunarheimilinu Fellaskjóli
Heimilismenn og gestir nutu skemmtilegrar hátíðardagskrár.
Veflistakona heldur vinnustofusýningu
Hefur ofið í hálfa öld og lítið stoppað
minni, Grundaskóli og Heilbrigð-
isstofnun Vesturlands eru meðal
þeirra sem eiga verk eftir Salóme.
Gaf hökul og stólu í
Hólskirkju
Salóme er fædd og uppalin á Ísa-
firði. Foreldrar hennar voru Lára
Veturliðadóttir og Guðmundur
M. Ólafsson en þau eru bæði lát-
in. Faðir hennar hefði fagnað 100
ára afmæli í fyrrasumar ef hann
hefði lifað. „Faðir minn var fædd-
ur og uppalinn á Bolungarvík. Af
því tilefni að hundrað ár voru liðin
frá fæðingardegi hans, gaf ég hök-
ul og stólu í Hólskirkju í Bolungar-
vík. Við systkinin erum fjögur á lífi
af sjö. Það var haldin minningar-
messa um föður okkar og við mætt-
um öll ásamt mökum og börnum
sem komust. Í þeirri messu afhenti
ég hökulinn.“ Salóme hafði lengi
haft áhuga fyrir því að vefa hök-
ul en ekki treyst sér til þess. „Svo
ákvað ég bara að gera það. Ég útbjó
munstrið, teiknaði það upp og óf
hann svo. Hökullinn er ofinn úr ís-
lenskri ull. Táknin eru ofin með ís-
lenskum glitvefnaði,“ útskýrir hún.
Það var mikil vinna í kringum hök-
ulinn og tók ár að klára hann frá
því að Salóme teiknaði hann fyrst.
Hann var að lokum afhentur Odd-
nýju Kristjánsdóttur klæðskera-
meistara sem saumaði hann.
Salóme hefur aðallega gert „lö-
bera“ á borð undanfarin ár, ásamt
litlum veggteppum. „Það nýj-
asta sem ég geri núna eru diska-
mottur og löberarnir. Ég ætla líka
að halda áfram að vefa í kjóla og
skokka, svona fyrir sjálfa mig. Jafn-
vel kápu,“ segir hún. Salóme saum-
ar sjálf úr efnunum en fær hjálp
við að sníða þau. Verkin hafa ekki
verið til sölu en hún hefur hugsað
sér að koma þeim inn í verslun, þá
helst diskamottunum og löberun-
um. Henni finnst róandi að setjast
við vefstólinn og hlustar á tónlist á
meðan. „Ég hef óskaplega gaman
af því að vefa og ég hlakka til hvers
dags,“ heldur hún áfram. Aðspurð
hvaðan hún fær innblástur að verk-
um sínum segist hún fá hugmynd-
ir að mynstrum og litum úr um-
hverfinu. „Ég horfi oft til himins-
ins og fæ þá hugmyndir af litasam-
setningu. Ég er með fallegt útsýni
út um eldhúsgluggann hjá mér og
horfi oft á himininn.“
Hefur einnig lokið
söngnámi
Salóme hefur ekki einungis áhuga
á vefnaði. Hún býr einnig til skart-
gripi úr þæfðri ull og hefur brenn-
andi áhuga á söng. Hún syngur
nú í kirkjukórnum í Grafarholti.
„Ég ætlaði mér líka að verða söng-
kona sem barn. Ég lærði hjá Guð-
mundu Elíasdóttur óperusöng-
konu. Ég kynntist henni á Akranesi
og það var yndislegur tími. Ég var
á þessum tíma að kenna eldri borg-
urum vefnað inni á Höfða. Sam-
hliða því var ég í söngnámi og var
að syngja í kirkjukórnum. Það var
svo gaman á þessum tíma, mikið líf
í kringum mig þá. Ég lærði upp-
haflega hjá Guðmundu á meðan
hún bjó á Akranesi. Svo flutti Guð-
munda suður og ég fór bara á eft-
ir henni. Við náðum vel saman og
ég útskrifaðist með áttunda stig í
söng. Ég hélt svo útskriftartónleika
í Akraneskirkju nokkrum árum síð-
ar, þegar ég var fimmtug. Ég gerði
það nú bara að gamni mínu að klára
þetta með því að syngja á tónleik-
um,“ segir Salóme söngelska vef-
listakonan að lokum.
grþ
„Lífið er saltfiskur“ heitir þetta vegg-
teppi. Í það eru meðal annars notuð
hrosshár.
Salóme situr við stóra vefstólinn. Í honum má sjá að hún er byrjuð á nýju kjólefni.
Salóme gaf hökul og stólu til Hóls-
kirkju í Bolungarvík. Hér er hún að
skrýða sr. Ástu Ingibjörgu Péturs-
dóttur. Ljósm. úr einkasafni.
Salóme ásamt dóttur sinni, Láru Huld, og barnabarninu Guðjóni Alex. Myndin er
tekin í Bolungarvík. Ljósm. úr einkasafni.
Diskamottur og löber eftir vef-
listakonuna.