Skessuhorn - 04.12.2013, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2013
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á
þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Skilafrestur smáauglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.480 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar
greiða kr. 2.150. Verð í lausasölu er 600 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Þórhallur Ásmundsson, blaðamaður th@skessuhorn.is
Guðný Ruth Þorfinnsdóttir, blaðamaður gudny@skessuhorn.is
Heiðar Lind Hansson, blaðamaður hlh@skessuhorn.is
Magnús Þór Hafsteinsson, blaðamaður mth@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Pálína Alfreðsdóttir palina@skessuhorn.is
Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is
Umbrot:
Ómar Örn Sigurðsson omar@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Ábyrgð felst í skoðanafrelsi
Leiðari
Það má eiginlega segja að það hafi verið í senn tregafullt, erfitt og vissulega
líka á stundum gleðilegt að fylgjast með umræðunni á samfélagsmiðlunum
síðustu vikuna. Nú á ég marga ágæta vini á Fésbókinni og er þakklátur fyrir
að rækta tengsl við þá með þessum hætti. Þótt maður hitti þetta fólk sjald-
an í eigin persónu, þá einhvern veginn gjörþekkir maður það engu að síður.
Raunverulegar skoðanir fólks á þjóðmálunum endurspeglast svo vel í skrif-
um, „lækum“ og umræðunni á þessum samskiptavef sem flestir nota. Þess-
ir vinir mínir eru allt frá því að vera yst á vinstri væng stjórnmálanna og til
þess að vera lengst til hægri og allt þar á milli. Þarna eru þjóðernissinnaðir
rétttrúnaðarsinnar í bland við íhaldssama sjálfstæðismenn, frjálslynda sjálf-
stæðismenn og svo náttúrlega dass af vinstri grænum, samfylkingarfólki,
pírötum og fólki með Bjarta framtíð. Svona dágóð blanda af litrófi stjórn-
málanna í dag. Öllu þessu fólki hleypir maður svo inn í líf sitt í hvert skipti
sem opnað er fyrir tölvuna. Stundum er meirihluti umræðunnar mannbæt-
andi, stundum ekki. Þá er betra að gefa tölvunni frí. Það er nefnilega þann-
ig að of mikil neikvæðni skaðar. Hún dregur úr manni kraftinn þótt það
hafi ekki verið ætlunin að láta það gerast.
Þau málefni liðinnar viku sem stóðu upp úr í fréttalegu tilliti voru nokk-
ur. Harkalegar uppsagnir starfsmanna Ríkisútvarpsins tóku toll. Um RUV
kjósa allir að hafa skoðanir enda er það réttur íslenskra þegna að hafa þær.
Þetta er jú almanna fjölmiðill. Flestir vilja veg og vanda RUV sem mest-
an, en ekki þó allir. Það kom mér á óvart hversu grimmúðleg þessi um-
ræða varð á samfélagsmiðlunum í vikunni. Sjónarmið beggja málsaðila skil
ég vel, nema þegar umræðan er komin út í skítkast, róg og níð sem hef-
ur ekkert með eðlileg skoðanaskipti að gera. Ég skil að það þurfi að hag-
ræða hjá RUV eins og í öðrum ríkisstofnunum. Ég skil líka að það þurfi
að vernda íslenska dagskrárgerð og standa vörð um hlutlaust almannaút-
varp og sjónvarp, kannski ekki síst Rás 1 og þáttagerð sem markaðsöflin
hafa ekki áhuga fyrir. En grimmdin sem fylgdi ummælum fólks með eða á
móti var of mikil.
En það átti eftir að reynast miklu fleira í fréttum vikunnar. Átakanleg lýs-
ing á harmleik í Hraunbæ í Reykjavík vakti fólk illa sem kveikti á útvarpinu
á mánudagsmorguninn. Þá varð gagnaleki frá fjarskiptafyrirtækinu Voda-
fone um helgina. Upplýsingar sem höfðu að geyma persónuleg mál fjölda
fólks fóru sem eldur í sinu um netheima. Ég leyfi mér að minna fólk á að
það er lögbrot að miðla slíkum illa fengnum upplýsingum og fordæmi þá
sem fá eitthvað út úr því að kafa ofan í einkalíf fólks eins og því komi það
eitthvað við. Svo ég tali nú ekki um fréttamenn sem sögðu fréttir í sjón-
varpið um helgina þar sem ýmsum samskiptum nafnkunnra stjórnmála-
manna var lýst. Hvílík lágkúra!
Frétt vikunnar var þó engu að síður ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að
koma til móts við skuldsett heimili. Sú aðgerð sem slík þurfti svo sem ekki
að koma neinum á óvart, enda fékk ríkisstjórnin meirihluta á þingi út á ná-
kvæmlega loforð um slíkar aðgerðir. Þess vegna ætlaði ég ekki að trúa því
þegar fólk fór að lýsa vantrú, fyrirlitningu og óvild í garð forystumanna rík-
isstjórnarinnar fyrir það eitt að standa við þau loforð sem þeir höfðu gef-
ið í aðdraganda kosninganna. Ég minni á að þetta var vilji meirihluta þjóð-
arinnar, hvaða skoðun sem menn hafa á aðgerðunum. Að til væru svona
margar ólíkar skoðanir á ekki flóknari aðgerð, kom mér engu að síður á
óvart. Allt eftir því hvar fólk stóð í pólitík, hversu mikið það sjálft skuld-
ar eða jafnvel er skuldlaust. En það er bara allt í lagi, ég virði skoðanir
allra sem setja þær fram með hófstilltum hætti. Orðræða um ólíkar skoð-
anir leiðir til framfara, en hvassyrtur fúkyrðaflaumur er til tjóns. Hvet því
að endingu þá sem ganga um gleðinnar dyr samfélagsmiðlanna að gæta
hófs því mikilli ábyrgð fylgja þau forréttindi að hafa skoðanafrelsi. Það hafa
nefnilega ekki allir jarðarbúar.
Magnús Magnússon.
Stjórnendur Faxaflóahafna til-
kynntu á dögunum styrkveitingar
til samfélagsverkefna á starfssvæði
fyrirtækisins. Þetta var gert um leið
og minnst var 100 ára tímamóta
hjá Faxaflóahöfnum og kynnt út-
gáfu bókarinnar um hafnir Faxa-
flóahafna, Hér heilsast skipin, sem
Guðjón Friðriksson sagnfræðing-
ur skráði. Styrkirnir nema alls 11,5
milljónum króna og öll tengjast
verkefnin sem fá styrki sögu Faxa-
flóahafna. Meðal þeirra er um-
hverfisverkefni á Breiðinni á Akra-
nesi sem fá 1,5 milljón króna. End-
urbygging Grímshúss í Borganesi
fær eina milljón króna, sömu upp-
hæð og Hernámssafnið að Hlöðum
á Hvalfjarðarströnd. Stærstu styrk-
veitingarnar fara til endursmíði á
Aðalbjörgu RE 5 og endurbóta á
dráttarbátnum Magna. Hvort verk-
efni um sig fær fjögurra milljóna
króna styrk. þá
Eldur kom upp í flutningabíl með
löngum tengivagni sem var á leið
yfir Þröskulda, milli Hólmavíkur og
Reykhólasveitar, síðdegis á fimmtu-
daginn í liðinni viku. Vegfarandi sem
átti leið þarna um segir bílstjóra
flutningabílsins hafa reynt að slökkva
eldinn en á endanum þurft að sætta
sig við að horfa á bílinn brenna. Að
sögn lögreglunnar á Vestfjörðum er
flutningabíllinn nánast ónýtur eftir
brunann.
þá/ Ljósm. Oddur Jónsson.
Foreldradagur samtakanna Heim-
ilis og skóla fór fram í þriðja sinn í
Hjálmakletti í Borgarnesi föstudag-
inn 22. nóvember sl. Yfirskrift dags-
ins að þessu sinni var „Komdu, ég
þarf að hlusta á þig,“ þar sem þátt-
takendur gerðu tilraun til að svara
því hvernig foreldrar geta unn-
ið að forvörnum og stuðlað að vel-
ferð barna sinna. Efnt var til fræð-
andi og skemmtilegrar dagskrár
sem m.a. góður hópur foreldra og
forráðamanna tók þátt í. Þrjú fram-
söguerindi voru flutt og voru frum-
mælendur þeir Ketill B. Magnús-
son formaður Heimils og skóla, Dr.
Viðar Halldórsson félagsfræðingur,
sem kynnti nýja rannsókn frá Rann-
sóknum og greiningu, og Jóna Kar-
en Sverrisdóttir ráðgjafi hjá Capa-
cent sem kynnti niðurstöður nýrr-
ar SAFT könnunar um netnotkun
ungmenna.
Að erindum loknum fór fram
vinna í þremur málstofum; um for-
varnir gegn áfengis- og vímuefna-
neyslu, netfíkn og hegðun á netinu
og einelti. Stjórnendur í málstofum
voru þau Guðrún Björg Ágústs-
dóttir ráðgjafi hjá Vímulausri æsku
– Foreldrahúsi, Eyjólfur Örn Jóns-
son sálfræðingur og Páll Ólafsson
félagsráðgjafi. hlh
Helga María AK kom til hafnar í
Reykjavík laust fyrir hádegi á föstu-
daginn eftir tæplega sex sólarhringa
siglingu frá Gdansk í Póllandi. Þar
var þessum fyrrum frystitogara HB
Granda breytt í ísfisktogara. Vel
var tekið á móti Eiríki Ragnarssyni
skipstjóra og öðrum skipverjum
við komuna til Reykjavíkur. Sama
dag hófst vinna við niðursetningu
á búnaði á millidekki Helgu Maríu
og er reiknað með að það verk taki
rúman mánuð. Gangi allt eftir ætti
Helga María því að komast til veiða
í byrjun nýs árs.
,,Útlitslega eru breytingarn-
ar ekki miklar á skipinu en þó er
búið að loka skutnum og skipið lít-
ur út fyrir að vera stærra fyrir vikið.
Breytingar á vistarverum eru tölu-
verðar. Það er búið að færa eldhús-
ið og borðsalinn framar í skipið og
tvær af íbúðunum voru nýttar undir
nýja setustofu. Á millidekkinu hafa
flökunarvélar og frystitæki ver-
ið fjarlægð en í staðinn er kominn
nýr búnaður; færibönd, þvottakör
og flokkari en það er í fyrsta skipti
að slíkt tæki kemur um borð í þetta
skip. Reyndar hef ég aldrei séð jafn
mikinn búnað í ísfisktogara áður og
ef eitthvað er þá er hann meiri en sá
sem við höfðum á meðan aflinn var
flakaður og frystur um borð,“ segir
Eiríkur Ragnarsson skipstjóri.
mm
Faxaflóahafnir styrkja
verkefni á Vesturlandi
Grímshúsið í Borgarnesi. Hernámssetrið á Hvalfjarðarströnd. Breiðin á Akranesi.
Flutningabíll brann
á Þröskuldum
Helga María AK komin til landsins
Loftur Bjarni Gíslason, Eiríkur
Ragnarsson og Torfi Þorsteinsson við
skipshlið eftir að Helga María AK kom
til hafnar.
Mynd/HB Grandi: Kristján Maack.
Frá Foreldradeginum í Hjálmakletti.
Forvarnir og velferð barna
rædd á foreldradeginum