Skessuhorn - 04.12.2013, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2013
Allir til
fyrirmyndar
HVALF.G: Allir ökumenn voru
til fyrirmyndar þegar lögreglan
var við hraðamælingar í Hval-
fjarðargöngum á þriðjudaginn í
liðinni viku. Fylgst var með öku-
tækjum sem var ekið Hvalfjarðar-
göng í norðurátt, um einn km frá
syðri munni ganganna. Á einni
klukkustund, rétt eftir hádegi,
fóru 92 ökutæki þessa akstursleið
og var þeim öllum ekið á lögleg-
um hraða, en þarna er 70 km há-
markshraði. Meðalhraði öku-
manna var 68. Vöktun lögregl-
unnar í Hvalfjarðargöngunum er
liður í umferðareftirliti hennar á
höfuðborgarsvæðinu.
–mm
Óökuhæfir
í umferðinni
AKRANES: Tveir ökumenn
voru í liðinni viku færðir á lög-
reglustöð á Akranesi. Annar var
grunaður um akstur undir áhrif-
um fíkniefna og hinn um ölvun
við akstur. Sá sem var grunaður
er um að aka undir áhrifum fíkni-
efna kom svo á lögreglustöðina
skömmu síðar með annan aðila
sem átti að sækja fyrir hann bif-
reiðina. Það gekk heldur brös-
uglega þar sem sá reyndist svipt-
ur ökuréttindum. Tvær bifreið-
ar lentu utan vegar eftir árekst-
ur á Akrafjallsvegi um miðja vik-
una. Meiðsli urðu einhver á fólki
en ekki talin alvarleg. Þá var ekið
á ljósastaur á lóð tónlistarskólans.
Ekki er vitað hver var þar á ferð
en staurinn er talsvert boginn.
–þá
Málþing um
eineltismál
HVALFJ.SV: „Það þarf heilt
samfélag til að ala upp barn-
ið þitt,“ er yfirskrift málþings
um eineltismál sem haldið verð-
ur í Heiðarskóla í Hvalfjarðar-
sveit miðvikudaginn 11. des-
ember nk. kl. 17:30. Foreldra-
félag leik- og grunnskóla Hval-
fjarðarsveitar ásamt fræðslu- og
skólanefnd boða til málþingsins.
Meðal gesta verður Páll Óskar
Hjálmtýsson poppstjarna og sýnd
heimildamynd. Magnús Stefáns-
son frá Marita fræðslunni flytur
erindi sem og Bryndís Jónsdótt-
ir framkvæmdastjóri SAMFOK.
Fræðslu- og skólanefndin býður
gestum málþingsins upp á súpu
og brauð, enda þingið haldið í
kringum kvöldmatartíma.
–þá
Nýskráðum fyrir-
tækjum fjölgar
LANDIÐ: Í októbermánuði
voru nýskráð 181 einkahlutafélög
hér á landi, til samanburðar við
155 í október 2012. Nýskráning-
ar voru flestar í fasteignaviðskipt-
um. Fyrstu tíu mánuði ársins var
fjöldi nýskráninga 1.613, en það
er 9,5% aukning frá sama tíma í
fyrra þegar 1.473 fyrirtæki voru
skráð. Þá voru 117 fyrirtæki tek-
in til gjaldþrotaskipta í október-
mánuði. Fyrstu tíu mánuði ársins
var fjöldi gjaldþrota 787, en það
er 13,6% fækkun frá sama tíma-
bili í fyrra þegar 911 fyrirtæki
urðu gjaldþrota. Flest gjaldþrot
það sem af er árinu er í flokknum
heild- og smásöluverslun, við-
gerðir á vélknúnum ökutækjum,
samtals 162.
-mm
Fallið frá lán-
tökuheimild
AKRANES: Á fundi bæj-
arráðs Akraness sl. föstudag
var samþykkt tillaga að við-
auka vegna fjárhagsáætlunar
yfirstandandi árs. Í fyrsta lið
viðaukans er gert ráð fyrir já-
kvæðri rekstrarafkomu sam-
stæðunnar að fjárhæð fimm
milljónir króna og hand-
bæru fé frá rekstri að fjár-
hæð 544 milljónir. Rekstr-
arniðurstaða samstæðunn-
ar miðast við stöðuna eft-
ir fyrstu níu mánuði ársins,
en þá var útkoman jákvæð
um 60 milljónir og handbært
fé frá rekstri 403 milljónir.
Bæjarráð fellur frá ákvörðun
um lántökuheimild frá 27.
júní sl. að fjárhæð 100 millj-
ónir króna en vegna rekstr-
arstöðu Akraneskaupstaðar
er ekki þörf á henni lengur,
segir í bókun frá bæjarráðs-
fundinum. Samþykkt fund-
arins var að öðru leyti vísað
til formlegrar afgreiðslu bæj-
arstjórnar.
-þá
Aðventuljós
í Borgarkirkju-
garði
MÝRAR: “Fjölmargir hafa
þann sið í heiðri að koma
fyrir aðventuljósum á leiðum
ástvina sinna í kirkjugarðin-
um á Borg á Mýrum. Á liðn-
um árum hefur ekki verið
innheimt gjald vegna kostn-
aðar við lýsinguna. Nú beinir
sóknarnefnd hins vegar þeim
tilmælum til þeirra sem sjá
sér fært að þeir greiði krónur
2000 inn á reikning nr. 0354
03 403383 í Arionbanka. Kt.
480169-6979. Með ósk um
góðar stundir á aðventu og
jólum. Sóknarnefnd Borgar-
kirkju.”
Í síðasta tölublaði Skessuhorns var
listi yfir viðburði í sóknum á Vest-
urlandi á aðventu. Við vinnslu
listans fyrir Reykholtskirkju í Borg-
arfirði urðu mistök þar sem rangt
var farið með upplýsingar um tón-
leika í kirkjunni á aðventu.
Hér eru réttar upplýsingar um
tónleika í Reykholtskirkju á að-
ventu og um jól:
3. desember, kl. 18:30. Fram-
haldsprófstónleikar á vegum Tón-
listarskóla Borgarfjarðar. Anna
Sólrún Kolbeinsdóttir spilar.
6. desember, kl. 20:30: Aðventu-
tónleikar Reykholtskórsins. Stjórn-
andi: Viðar Guðmundsson.
14. desember, kl. 15:00. Jólatón-
leikar Freyjukórsins og Karlakórs
Kjalnesinga.
28. desember, kl. 21:00. Jólatón-
leikar Uppsveitarinnar.
Nánari upplýsingar um viðburði í
Reykholtskirkju og Snorrastofu má
finna á vefsíðu Snorrastofu: www.
snorrastofa.is Þetta leiðréttist hér
með og beðist velvirðingar á mistök-
unum.
grþ
Íbúi í Snæfellsbæ sem var á göngu
við náttúruperluna Skarðsvík að
morgni mánudagsins 25. nóvem-
ber sl. kom auga á tvö hrosshræ
sem hent hafði verið fram af gömlu
ruslahaugunum á Hellissandi, um
200 metra frá Skarðsvíkinni. Veg-
farandinn sagði að slík umgengni
væri til háborinnar skammar; að
henda hræjum svona út í náttúruna
í staðinn fyrir að urða þau eða koma
á gámastöðvar. „Þetta var ógeðsleg
aðkoma sagði þessi sami heimildar-
maður.“ Þarna í fjörunni lágu því
innyfli, hausar og fætur af hross-
um sem slátrað hafði verið skömmu
áður. af
Tveir bílar enduðu útaf Akrafjalls-
vegi um klukkan 6:40 sl. föstu-
dagsmorgun eftir umferðar-
óhapp sem varð rétt austan við
vegamótin að Vestra Reyni. Til-
drög óhappsins eru rakin til fram-
úraksturs. Þegar ökumaður var að
aka fram úr tveimur bílum, ætlaði
bílstjóri bílsins í miðjunni einn-
ig að aka fram úr fremsta bílnum
með þeim afleiðingum að bílarnir
tveir sem voru í framúrakstri rák-
ust saman. Báðir höfnuðu bílarnir
út af vegi og stungust inn í skurð-
barm. Að sögn lögreglu skemmd-
ust báðir bílarnir mikið en talið er
að fólk í þeim hafi sloppið án telj-
andi meiðsla. þá/ Ljósm. hlh.
Árétting vegna tónleika í Reykholtskirkju
Sláturúrgangi hent í fjöruna við Skarðsvík
Umferðaróhapp á Akrafjallsvegi