Skessuhorn - 04.12.2013, Síða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2013
Ákveðið hefur verið að ljósin á
jólatrénu á Akratorgi á Akranesi
verði tendruð á laugardaginn, 7.
desember klukkan 16. Dagskrá
viðburðarins verður með hefð-
bundnum hætti en auk ávarpa
og tónlistar er von á góðum og
skemmtilegum gestum sem jafn-
an virðast þefa upp viðburð sem
þennan, svo sem jólasveinunum
í Akrafjalli. Sem kunnugt er hafa
að undanförnu staðið yfir fram-
kvæmdir við breytingar á Akra-
torgi. Vegna góðrar stöðu fyrri
áfanga þeirra framkvæmda segir
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri
að hægt verði að tryggja öryggi
gesta þegar kveikt verður á jóla-
trénu. Bæjartréð verði því þar eins
og vanalega. Meðal annars er búið
að ganga frá hellulögn á því svæði
sem er næst verslunum við torg-
ið. Þá er einnig búið að ganga frá
annarri hleðslunni af tveimur á
torginu. „Okkur er því ekkert af
vanbúnaði að koma jólatrénu fyr-
ir og þurfum því ekki að grípa til
plans B með staðsetningu trés-
ins annars staðar í bænum,“ seg-
ir Regína. Eins og síðustu árin er
jólatréð fengið úr Hvammsskógi í
Skorradal. þá
Síðastliðinn laugardag var haldinn
opinn stefnumótunarfundur um
atvinnumál á Akranesi. Fundur-
inn bar yfirskriftina: „Framtíð við
Faxaflóa - sköpum 1000 ný störf.“
Yfir hundrað manns mættu á fund-
inn. Sýndu íbúar á Akranesi með
því áhuga á atvinnumálum í þeirra
heimabæ. Til fundarins var beint
öllum áhugasömum, ekki síst þeim
sem vilja hafa áhrif á hvert skuli
stefna á næstu árum í atvinnumál-
um. Ragna Árnadóttir formaður
Samráðsvettvangs um aukna hag-
sæld á Íslandi opnaði umræðuna.
Hún sagði frá hlutverki Samráðs-
vettvangs, sem er meðal annars að
setja efnahagsleg markmið Íslands
til 2030. Ingibjörg Valdimarsdótt-
ir, formaður starfshóps um at-
vinnu- og ferðamál Akraneskaup-
staðar, sagði frá markmiðum sem
sett hafa verið um að skapa ný störf,
snúa vörn í sókn og skapa stefnu til
framtíðar. Guðfinna Bjarnadóttir,
ráðgjafi og fyrrum rektor við Há-
skóla Reykjavíkur, stýrði fundinum
sem var fyrsti opni íbúafundurinn í
röð nokkurra hjá Akraneskaupstað
sem munu bera yfirskriftina Fram-
tíð við Faxaflóa.
Frumkvöðlar héldu
örfyrirlestra
Nokkrir frumkvöðlar í atvinnulíf-
inu á Akranesi héldu fimm mín-
útna örfyrirlestra. Sögðu þeir frá
fyrirtækjum sínum, hugmyndum
og áherslum. Þeir sem stigu í pontu
voru Eva Laufey Kjaran Her-
mannsdóttir rithöfundur og fjöl-
miðlakona, Rolf Hákon Arnarson
framkvæmdastjóri Akraborgar, Ing-
ólfur Árnason framkvæmdastjóri
Skagans hf., Ólöf Linda Ólafsdótt-
ir frá Vigni G. Jónssyni hf., Hlédís
Sveinsdóttir eigandi kindur.is, Arn-
ar Ólafsson frá Stálfélaginu, Pétur
Þorleifsson Norðanfiski hf. og Ís-
ólfur Haraldsson frá Vinum Hall-
arinnar.
Í þessum stuttu fyrirlestrum kom
meðal annars fram að mikilvægt er
að setja sér markmið. Næg tækifæri
séu til staðar á Akranesi og að sam-
legðaráhrif milli fyrirtækja á svæð-
inu séu meiri en fólki grunar. Fram-
boð sé af góðu starfsfólki á Akra-
nesi. Gleðin sé vanmetin orkulind,
því erfitt sé að ná árangri án gleði
og trúar. Þá flutti Regína Ásvalds-
dóttir bæjarstjóri erindi á fundinum
um Akranes hér og nú. Hún greindi
frá helstu niðurstöðum íbúa- og
fyrirtækjakönnunar SSV fyrir árið
2013 og dró fram staðreyndir til
fróðleiks um bæjarfélagið.
Er það hafið
eða fjöllin...
Ásbjörn Björgvinsson ráðgjafi og
rekstrarstjóri hjá Special Tours í
Reykjavík og formaður Ferðamála-
samtaka Íslands kynnti sína reynslu
af ferðamálum. Hans erindi bar yf-
irskriftina „Er það hafið eða fjöllin
sem laða mig hér að?“ Það fjallaði
um þá möguleika sem Akranes
kann að eiga í sjávartengdri ferða-
þjónustu. „Það vantar að Akra-
nes stimpli sig betur inn gagnvart
ferðamönnum. Hér er góð þjón-
usta fyrir íbúa en ekki fyrir ferða-
Kveikt á jólatrénu á
Akratorgi á laugardaginn
Vel mætt á stefnumótunarfund á Akranesi
menn,“ sagði hann af hreinskilni.
Akranes ætti að skilgreina sig sem
hluta af ferðaþjónustunni. Ekkert
væri á svæðinu sem dregur ferða-
menn að. Það vantaði því að sköp-
uð yrði sú ímynd sem getur valdið
því að ferðamenn langi til að koma
á Akranes.
Einnig voru pallborðsumræður
um tækifæri Akraness í öðrum at-
vinnumálum. Þar tóku þátt Ólaf-
ur Páll Gunnarsson dagskrárgerð-
armaður, Ólafur Adolfsson lyfsali,
Anna Lydia Sigurðardóttir verk-
efnastjóri hjá Fosshótelum, Sæv-
ar Freyr Þráinsson forstjóri Símans
og Rakel Óskarsdóttir verslunar-
rekandi. Þau fengu öll eina spurn-
ingu: „Hvernig er hægt að efla at-
vinnulífið á Akranesi?“ Þeim fannst
vanta markmiðasetningu og hvatn-
ingu fyrir frumkvöðlastarf. Bæta
þurfi upplýsingaflæði, samgöngur
og samvinnu milli sveitarfélaga.
Fólksferja og
bætta ímynd
Á fundinum var spurningalista dreift
til þátttakenda. Þeir voru beðnir að
svara skriflega ýmsu sem tengdist
atvinnumálum á svæðinu. Eftir há-
degismat var þátttakendum skipt í
sjö vinnuhópa. Farið var yfir málin
með spurningalistana til hliðsjónar.
Hópstjórar voru fulltrúar í atvinnu-
og ferðamálanefnd og bæjarstjóri:
Guðni Tryggvason, Helga Rún
Guðmundsdóttir, Hörður Svav-
arsson, Ingibjörg Valdimarsdótt-
ir, Katla María Ketilsdóttir, Ólafur
Adolfsson auk Regínu Ásvaldsdótt-
ur bæjarstjóra. Hún hljóp í skarð-
ið fyrir Sævar Frey Þráinsson for-
stjóra Símans sem þurfti að sinna
öðrum verkefnum eftir hádegi.
Margar hugmyndir komu fram úr
hópavinnunni um atvinnusköp-
un. Var ferðaþjónusta sérstaklega
nefnd ásamt miðbænum á Akra-
nesi. Mörgum þótti framhaldsvinna
á áli vænleg ásamt fullvinnslu sjáv-
arafurða. Einnig komu fram hug-
myndir um fólksferju á milli Akra-
ness og Reykjavíkur ásamt öðrum
hugmyndum um bættar samgöng-
ur. Þá var ljóst að fólki þykir nauð-
synlegt að bæta ímynd Akraness út
á við. Það mætti gera með öflugra
markaðsstarfi.
Niðurstöður fundarins
ekki ofan í skúffu
„Það var ákveðinn kraftur sem
leystist úr læðingi á fundinum. Við
skynjuðum hann vel. Við erum öll
sammála því að fylgja eftir þess-
ari gleði og jákvæðni sem var ein-
kennandi. Það er mikilvægt að taka
á málunum sem fyrst. Niðurstöð-
ur fundarins munu ekki fara ofan
í skúffu,“ segir Regína bæjarstjóri.
Eftir fundinn fannst henni standa
upp úr hve mörg góð fyrirtæki eru á
svæðinu. „Hér er líka mikið af ungu
fólki sem er með fínar hugmyndir.
Það var gaman að hlusta á öll örer-
indin. Þar var búið að blanda sam-
an fólki með mikla reynslu og fólki
sem er að stíga sín fyrstu skref.“
Aðspurð um næstu skref seg-
ir Regína að unnið verði úr þeim
minnispunktum sem urðu til í
hópavinnunni. Atvinnu- og ferða-
málanefndin muni svo móta stefnu
og aðgerðaplan, meðal annars út frá
þeim hugmyndum sem fram komu
á fundinum. grþ
Meðlimir í atvinnu- og ferðamálanefnd Akraneskaupstaðar, sem allir voru hópstjórar, ásamt Regínu Ásvaldsdóttur bæjar-
stjóra, Guðfinnu Bjarnadóttur fundarstjóra og Sædísi Alexíu Sigurmundsdóttur verkefnastjóra. Á myndina vantar Sævar Frey
Þráinsson sem einnig var hópstjóri.
Róberta Lilja Ísólfsdóttir flutti listavel stutta kynningu með föður sínum, Ísólfi
Haraldssyni frá Vinum Hallarinnar.
Líflegar umræður sköpuðust í anddyri tónlistarskólans í hádegishléinu.
Þátttakendum var skipt í sjö hópa. Á myndinni má sjá hóp 1 ásamt hópstjóranum
Guðna Tryggvasyni.
Hópavinna í fullum gangi.