Skessuhorn - 04.12.2013, Blaðsíða 25
25MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2013
MIKIÐ ÚRVAL AF SMUREFNUM OG OLÍUM FYRIR
ALLAN IÐNAÐ. KÍKTU Í KEMI OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ!
SMUROLÍUR
OG SMUREFNI
Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 544 5466
Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00.
Einstakar
jólagjafapakkningar
frá label.m
Jólaklippinguna færðu hjá okkur
Helena og Marín
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
Vaxtarsamningur Vesturlands
Opið hús frá kl. 16.00 til 19.00 í bæjar-
þingsalnum á Akranesi, að Stillholti 16 -18,
3. hæð fimmtudaginn 5. desember næstkomandi.
Atvinnuráðgjafi frá SSV verður á staðnum og veitir ráðgjöf
varðandi umsóknir í sjóð Vaxtarsamnings Vesturlands en
umsóknarfrestur rennur út 9. desember næstkomandi.
Upplýsingar um markmið, úthlutunarreglur og
fleira má finna á www.vaxtarsamningur.is.
Heitt á könnunni.
Allir velkomnir.
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
0
1
3
Reykholtskórinn býður til aðventu-
tónleika í Reykholtskirkju föstu-
daginn 6. desember nk. kl. 20:30.
Stjórnandi kórsins er Viðar Guð-
mundsson og leikur hann einn-
ig með á píanó og orgel. Á tromp-
et spilar Michael Roger Vägsjö.
Einsöng syngja Barbara Guð-
bjartsdóttir, Dagný Sigurðardóttir,
Lára Kristín Gísladóttir og Snorri
Hjálmarsson. Eftir tónleikana verð-
ur boðið upp á veitingar í safnaðar-
sal kirkjunnar.
Aðgangseyrir er enginn, en þeim
sem vilja styrkja starf kórsins er
bent á söfnunarbauk sem verður á
staðnum. Allir eru velkomnir, seg-
ir í tilkynningu frá Reykholtskórn-
um.
mm/ Ljósm. Guðlaugur Óskarsson.
Bjarni Valtýr Guðjónsson í Borg-
arnesi sendi á dögunum frá sér
sína fjórðu ljóðabók. Fyrsta ljóða-
bók hans, „Ég leita þín vor“ kom út
2009. Nýja bókin heitir „Hvert sem
ég lít.“ Það er Sigurjón Þorbergs-
son sem er útgefandi bókarinnar.
Bjarni Valtýr er mikill unnandi ís-
lenskrar náttúru og fornsagna. Það
er sem fyrr aðal viðfangsefni hans
í ljóðagerðinni. Andi rómantísku
stefnunnar frá Jónasi og félögum
svífur því yfir skrifborði Bjarna
Valtýs eða hvar sem ljóð hans verða
til. Í ljóðinu „Ágústkvöldi“ segir til
dæmis í öðru af fimm erindum:
Hverfur af tindunum síðla sól,
sígur að húmskugginn blíði.
Fuglarnir velja sér friðsæl ból,
finna sitt örugga hvíldarskjól.
Sofnar þá söngurinn fríði.
Útgáfukynning á ljóðabókum
Bjarna Valtýs verður í Félagsbæ,
safnaðarheimilinu í Borgarnesi,
fimmtudaginn 5. desember klukkan
19. Auk höfundar er gert ráð fyrir
að upplesarar verði: Snjólaug Guð-
mundsdóttir, Sigrún D. Elíasdóttir,
Guðbrandur Brynjúlfsson og Guð-
brandur Guðbrandsson.
þá
„Okkar vinsæli jólamarkaður verð-
ur haldinn sunnudaginn 8. des-
ember n.k. að Breiðabliki í Eyja-
og Miklaholtshreppi. Hefst mark-
aðurinn klukkan 12 og stendur til
kl. 18. Á boðstólnum á markaðin-
um verður ýmiskonar handverk og
matvörur úr sveitinni. Það er því
alveg upplagt að koma í rólegheit-
in út í sveit og versla jólagjafir og fá
sér heitt súkkulaði og vöflur og eiga
góða stund,“ segir í tilkynningu frá
aðstandendum sveitamarkaðarins.
mm
Jólin alls staðar – tónleikar í kirkjunum á Akranesi og í Borgarnesi
fólks. Þau munu koma víða við og
eru nú þegar áætlaðir yfir 20 tón-
leikar. Efnisskráin er hátíðleg en
í senn skemmtileg og því tilvalin
fyrir alla fjölskylduna. Auk þeirra
koma fram barnakórar frá hverj-
um stað fyrir sig. Miðaverði er
3.990 krónur. Hér á Vesturlandi
eru tvennir tónleikar fyrirhugað-
ir. Hópurinn verður í Akranes-
kirkju sunnudaginn 8. desember
klukkan 21:00 og Borgarneskirkju
mánudaginn 9. desember klukkan
20:00. „Miðasala er í fullum gangi
á midi.is og hvetjum við fólk til að
næla sér í miða í tæka tíð í þeirri
kirkju sem því er næst. Einnig er
hægt að kaupa miða við inngang-
inn svo framarlega sem ekki sé
uppselt,“ segir í tilkynningu frá
hópnum.
mm
Aðventutónleikar Reykholts-
kórsins á föstudaginn
Kápa nýju ljóðabókar Bjarna Valtýs.
Fjórða ljóðabókin frá Bjarna Valtý
Sveitamarkaður í
Breiðabliki á sunnudaginn
Þriðjudaginn 3. desember hefst
tónleikaröð undir yfirskrift-
inni: Jólin alls staðar. Þar munu
söngvararnir Greta Salóme, Frið-
rik Ómar, Heiða Ólafs og Jógv-
an Hansen heimsækja kirkjur
vítt og breitt um landsbyggð-
ina ásamt einvalaliði tónlistar-