Skessuhorn - 04.12.2013, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2013
Opið hús var í hæfingarhluta Fjöl-
iðjunnar á Akranesi í gær, 3. des-
ember, af tilefni alþjóðlegum degi
fatlaðra. Margir mættu á opið hús
og nóg var um að vera. Boðið var
upp á heitt súkkulaði með rjóma,
piparkökur og konfekt. Þóra
Gríms sagnaþula sagði tvær sög-
ur og nemendur úr tónlistarskól-
anum léku á harmonikkur og fiðl-
ur. „Þetta er í fyrsta sinn sem við
tökum við okkur og höldum upp á
þennan dag. Við rekum líka Fjöl-
iðjuna í Borgarnesi. Samstarf-
ið slitnar nú um áramót og tekur
Borgarbyggð þá við þeim hluta.
Af því tilefni ákváðum við að hafa
þetta saman í dag,“ sagði Ásta Pála
Harðardóttir, yfirþroskaþjálfi hjá
Fjöliðjunni á Akranesi í samtali við
Skessuhorn.
Handverk var til sölu í Fjöliðj-
unni. „Við erum að selja borð-
tuskur sem unnar eru í Fjöliðjunni
á Akranesi, tölur og bókamerki.
Mikil vinna hefur farið í að klippa
tölurnar af flíkum og pakka þeim í
fallegar umbúðir. Einnig erum við
að selja handverk, svo sem púða
og trévörur sem unnið hefur ver-
ið að í Fjöliðjunni í Borgarnesi,“
sagði Ásta Pála. Á gangi Fjöliðj-
unnar var skemmtileg myndlistar-
sýning, þar sem sýndar voru teikn-
ingar eftir starfsfólk í Fjöliðjunni á
Akranesi. grþ
Í liðinni viku var frumsýnt nýtt
leikrit í Grundaskóla á Akranesi og
fjallar það um Strumpana. Leikrit-
ið var sýnt á sal skólans og flutt fyr-
ir nemendur Grundaskóla og elstu
deildir leikskólanna á Akranesi.
Verkið var lokaverkefni leiklistar-
vals unglingadeildar á haustönn.
Nemendur í leiklistardeildinni
skrifuðu handritið sjálfir og æfðu
verkið. Sviðsmyndin var samvinnu-
verkefni allra deildanna á listabraut
en unnið hefur verið að henni síð-
an í haust. Leikstjórn og búning-
ar voru hannaðir af nemendum og
kennurum á listabraut.
Leikritið og öll umgjörð þess var
einstaklega vel heppnuð og voru
leikskólabörn á Akranesi heilluð
af sýningunni. Við leyfum mynd-
um sem teknar eru á þriðju sýningu
leikritsins að tala sínu máli. grþ
Opið hús í Fjöliðjunni á Akranesi
Mikil gleði var á opnu húsi Fjöliðjunnar og stillti þessi flotti hópur sér upp fyrir myndatöku.
Emma Rakel Björnsdóttir gaf gestum heitt súkkulaði með rjóma.
Handverk var til sölu á opnu húsi Fjöliðjunnar. Þar á meðal fallegar prjónavörur.
Eva Dögg Héðinsdóttir er mikil listakona. Teikningar af dýrum eftir hana eru til
sýnis á ganginum í Fjöliðjunni.
Heiðrún Hermannsdóttir á fallegar myndir á sýningunni.
Strumpaævintýri í Grundaskóla
Æðstistrumpur leggur á ráðin með strumpunum sínum. Hér sést að leikmyndin er
vel gerð og skemmtileg.
Kjartan galdrakarl og kötturinn
Brandur komu að sjálfsögðu við sögu.
Æðstistrumpur hrærir í potti.
Svokallaðir „Strúmpar“ koma einnig við sögu en þeir eru bleikir. Hér gengur
Strúmpi með Strympu.
Hugsað var fyrir hverju smáatriði við
gerð búninganna. Dindlar strumpanna
eru á sínum stað.