Skessuhorn - 04.12.2013, Síða 31
31MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2013
Dagbjartur Dagbjartsson og Bjarni Þór Bjarnason kynna
Stolin krækiber - skopmyndaskreytt úrval vísnaþátta
í Eymundsson á Akranesi laugardaginn 7. des. kl. 12-15.
BÓKAKYNNING OG ÁRITUN
Guðbjörn Guðmundsson bóndi
í Magnússkógum í Hvammssveit
hefur gegnt starfi landpósts nán-
ast samfellt frá því að mjólkur-
bílstjórarnir í Dölunum hættu að
flytja póstinn heim á bæina árið
1975. „Anna Gísladóttir stöðvar-
stóri Pósts og Síma í Búðardal bað
föður minn Guðmund Halldórsson
þá að taka að sér póstburðinn í vest-
urhluta sýslunnar því enginn hafði
sótt um starfið þegar það var aug-
lýst. Hann var þá orðinn sjötugur
og ekki alveg í stakk búinn að sinna
starfinu í verstu vetrarveðrunum.
Faðir minn bað því mig að taka við
starfinu. Síðan hef ég lengst af verið
póstur. Fyrst í Dölum vestan Búð-
ardals í samvinnu við annan mann
og nú síðustu ár í Reykhólasveit,“
sagði Guðbjörn þegar blaðamað-
ur hitti hann í hádegismat á Stað
í Reykhólasveit á dögunum. Guð-
björn hefur þau forréttindi póst-
manna í landinu að fá frían hádeg-
ismat hvern virkan dag vikunnar
sem hann er að sinna sínum störf-
um. Þar nýtur hann frábærrar gest-
risni hjónanna á Stað, Eiríks Snæ-
björnssonar og Sigfríðar Magnús-
dóttur. „Það er alltaf veisla hérna.
Á þessum bæ hefur það alltaf ver-
ið þannig að öllum gestum er boðið
í mat. Ég finn mig reyndar orðinn
eins og einn af fjölskyldunni,“ segir
Guðbjörn og brosir.
Skemmtilegt starf
Guðbjörn segir starf landpóstsins
mjög skemmtilegt. „Þetta er starf
sem hentar mér mjög vel. Ég kynn-
ist mörgu skemmtilegu fólki og hef
eignast marga frábæra vini í gegn-
um starfið. Fólk kann líka vel að
meta þá þjónustu sem við land-
póstarnir veitum. Yfir sumarið til
dæmis þegar bændum vantar vara-
hluti í dráttarvélina eða heyvinnu-
tækin, og panta þá hvort heldur
frá Selfossi eða Reykjavík, þá er ég
mættur með þá heim að bæ dag-
inn eftir. Við afgreiðum póstkröf-
ur og ábyrgðarbréf. Ég er iðulega
með póstkröfur fyrir háar fjárhæð-
ir í bílnum. Svo er ég líka með mið-
ur skemmtilegri sendingar eins og
birtingar og stefnur. Þær eru sem
betur fer í miklum minnihluta. Bíll-
inn er í raun bara pósthús á hjólum
þar sem fólk getur póstlagt böggla
og bréf, fengið afgreiddar póstkröf-
ur og aðrar sendingar og greitt fyr-
ir fengna þjónustu.
Ætlaði að hætta
Um árabil eða í rúm tuttugu ár sá
Guðbjörn um póstdreifinguna í
Dalasýslu vestan Búðardals í sam-
vinnu við Kristján Sæmundsson frá
Neðri-Brunná í Saurbæ. Guðbjörn
ætlaði reyndar að hætta í póstflutn-
ingunum rétt fyrir 1980, enda þá
nýtekinn við búskap í Magnússkóg-
um. Þá tók nágranni hans Krist-
inn Sigurðsson á Leysingjastöðum
í Hvammssveit við af Guðbirni í
póstflutningunum og gegndi starf-
inu í tvö ár. Þegar síðan Kristinn
flutti af svæðinu tók Guðbjörn aft-
ur við starfinu. Kona Guðbjörns,
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, var
með póstflutningana á móti Krist-
jáni á Brunná eftir að Guðbjörn tók
við póstdreifingu í Reykhólasveit-
inni. Sinnti hún dreifingu í Dölum
vestan Búðardals þar til fyrir um
tveimur árum. Í dag leysir Jóhanna
Guðbjörn af í póstferðum í Reyk-
hólasveitina þegar með þarf.
Ók of mikið
Póstþjónusta í Reykhólasveit var
boðin út fyrir um það bil sex árum.
Guðbjörn fékk þá flutninga. Eftir
að hann var búinn að keyra í nokkr-
ar vikur var gerð athugasemd við
uppgefinn kílómetrafjölda. Guð-
björn hafði þá keyrt póstinn heim á
hvern bæ eins og venja var. Þá kom
í ljós að það var ekki samkvæmt út-
boðinu heldur átti að flytja póst-
kassana niður að þjóðvegi sem var
svo gert í framhaldinu. Guðbjörn
fer með póstinn hvern virkan dag
vikunnar á Reykhóla og nágrenni,
en þrjá daga vikunnar keyrir hann
einnig út póst í Gufudalsveitina þar
sem enn eru sjö bæir í byggð vest-
an Bjarkalundar. Þegar borinn er
út póstur á allt svæðið er keyrslan
u.þ.b. 300 kílómetrar. Þá daga sem
ekki er farið í Gufudalssveitina eru
þeir um 200 kílómetrarnir. „Ég fer
með póst á um hundrað heimili.
Þar af er um helmingurinn í þorp-
inu á Reykhólum. Það er alltaf jafn
skemmtilegt að fara með póstinn,“
sagði Guðbjörn að endingu.
þá
Tók við póstflutningunum af mjólkurbílstjórunum
Guðbjörn við póstbílinn, hér staddur á hlaðinu á Stað í Reykhólasveit. Ljósm. es.
Guðbjörn í hádegismat á Stað í Reykhólasveit. Honum á hægri hönd er yngri
bóndinn á Stað, Kristján Þór Ebenezerson.