Læknablaðið - 15.10.2000, Blaðsíða 7
FRÁ RITSTJÓRN
Tafla eða tjald
Þegar Þetta er
skrifað sstanda yfir
hinum megin á
hnettinum „sumar“-
Ólympíuleikarnir. þar
sem um 11.000 kepp-
endur frá um 200
löndum þreyta kepp-
ni í hinum ýmsu
íþróttagreinum. Fyrir
keppendur er þetta
ekki bara hápunktur
íþróttaársins heldur lokapunktur strangra æfinga
sem staðið hafa mánuðum eða jafnvel árum
saman og hjá flestum þýtt blóð, svita og tár.
Einn skugga leggur þó frá þessum vöðvastæltu
íþróttamönnum, en það er óeðlileg og ólögleg
notkun lyfja er tengist íþróttaiðkun þeirra, en
skuggi þessi lýsist venjulega upp á stórmótum
sem Ólympíuleikarnir eru. Sannarlega höfðu
skipuleggjendur í Ástralíu áhyggjur af þessu og
kynntu, nokkrum vikum fyrir leikana, að hart
yrði gengið fram í að greina ólöglega notkun lyfja
og efna og þau greind í blóði í stað þvags eins og
áður tíðkaðist. Þessi nýjung hafði strax þau áhrif
að keppendur er vissu upp á sig ólöglega notkun
ákváðu að vera heima. Sérstaklega var tekið til
þess að blóðgreiningin gagnaðist vel við að greina
Erythropoietin, en á síðari árum hafa íþrótta-
menn orðið uppvísir að ólöglegri notkun lyfja er
innihalda efnið.
Erythropoietin er hormón, forstig þess mynd-
ast í nýrum og ummyndast í virkt efni í blóði
þegar aukins ildisflutnings blóðs til vefja er þörf,
eins og við lækkun hlutþrýstings ildis í blóði, eða
ef styrkur blóðrauða eða fjöldi rauðra blóðkorna
minnkar. Erythropoietin hvetur þroska og
nýmyndun rauðra blóðkorna í blóðmyndandi
líffærum, merg, og er talið að hormónið hafi áhrif
bæði á blóðrauðann og rauðkomin. Þannig má
hugsa sér að ef aukin þörf er á ildi í vefjum þá
komi þrennt tii: aukið slagmagn, hraðari
hjartsláttur eða aukning á ildisflutningseiningum
blóðs, blóðrauða og rauðkornum. Með æfingu
má hafa áhrif á fyrri tvo þættina en á magn
blóðrauða má hafa áhrif beint með notkun
Erythropoietin eða óbeint með ýmsum aðferð-
Höfundur er sérfræðingur í háls-, nef- og eyrnalækningum á
Landspítala Fossvogi.
um. Lengi hefur verið vitað að æfingar í háfjalla-
umhverfi auka úthald þegar komið er í lægri
hæðir og er talið að þar sé á ferðinni áhrif lágs
ildisþrýstings til fjalla á Erythropoietin - merg-
öxulinn. Það er ekki allra að stunda æfingar í
þannig umhverfi og kemur þar helst til kostnaður
og langt úthald fjarri fjölskyldu og heimahögum.
í Morgunblaðinu þriðjudaginn 12. september
var viðtal við einn íslensku Ólympíufaranna og á
mynd er fylgdi umfjölluninni sat hann brosandi í
dyragætt nýjasta tækniundursins, svokölluðu
háfjallatjaldi [sjá nánari upplýsingar:
www.hypoxictent.com]. í tjaldinu mátti skapa
ildis- (hýpoxískar) aðstæður sem í háfjöllum væri
og nægði að sofa í tjaldinu til að kalla fram svörun
í líkamanum, svörun er felur í sér aukningu á
Erythropoietini í blóði og síðan aukningu á
ildisflytjandi einingum blóðs. Þannig eru það ekki
einungis nýjustu lyf og efni sem íþróttamenn
freistast til að nota heldur hafa þeir tekið í
þjónustu sína hátækniiðnaðinn með öllu því
nýjasta sem þar er að finna. Þessi iðnaður lyfja og
hátækni hefur sannarlega dansað með, en á þeim
bæjum er það meðal annars þekking lækna sem
skapar og kemur því miður oft á framfæri við
íþróttamennina ólöglegri notkun afurðanna.
Þessi iðnaður er kominn af stað og veltir
milljörðum, og það sem verra er, hann er skrefinu
á undan þeim er leita uppi og kanna lögmæti
afurðanna og gullin gagnast venjulega þeim
einum er geta borgað. Það er því ef til vill ekki
svo mikill munur á töflu eða tjaldi þegar
lokaniðurstaðan verður sú sama, munurinn er
helstur sá hverjir hafa ráð á borga hvað. Læknar,
verum ekki sölumenn á þessum markaði, verum í
hinu sanna sigurliði!
Hannes Petersen
Frágangur
fræðilegra greina
Höfundar sendi tvær gerðir
handrita til ritstjórnar
Læknablaðsins, Hlíðasmára
8, 200 Kópavogi. Annað án
nafna höfunda, stofnana og
án þakka sé um þær að ræða.
Greininni fylgi yfirlýsing
þess efnis að allir höfundar
séu lokaformi greinar
samþykkir og þeir afsali sér
birtingarrétti til blaðsins.
Handriti skal skilað með
tvöföldu línubili á A-4
blöðum. Hver hluti skal
byrja á nýrri blaðsíðu í
eftirtalinni röð:
• Titilsíða, höfundar,
stofnanir, lykilorð
• Ágrip og heiti greinar á
ensku
• Ágrip á íslensku
• Meginmál
• Þakkir
• Heimildir
Töflur «g niyndir skulu vera á
ensku eða íslensku, að vali
höfunda.
Tölvuunnar myndir og gröf
komi á rafrænu formi ásamt
útprenti. Tölvugögn (data)
að baki gröfum fylgi með.
Sérstaklega þarf að semja
um birtingu litmynda.
Eftir lokafrágang berist allar
greinar á tölvutæku formi
með útprenti. Taka skal fram
vinnsluumhverfi.
Sjá upplýsingar um frágang
fræðilegra greina:
http://www.icemed.is/
laeknabladid
Umræðuhluti
Skilafrestur efnis í umræðu-
hluta er 20. hvers mánaðar
nema annað sé tekið fram.
Læknablaðið 2000/86 643