Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2000, Blaðsíða 83

Læknablaðið - 15.10.2000, Blaðsíða 83
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BROSHORNIÐ Bjarni Jónasson skrifar Sendið efni í anda læknaskops í Broshornið, Læknablaðinu, Hlíðasmára 8, 200 Kópavogi eða í bréfasíma 564 4106 eða á netfang: bjarni.jonasson@ gb.hgst.is Getið þess hver sendir, en það sem birtist verður undir dulnefni. Læknablaðið áskilur sér rétt til að lagfæra texta. Höfundur er heilsugæsiulæknir í Garðabæ og stjórnarmaður í Nordisk Selskap for Medisinsk Humor. Með niðurgang úr óbyggðum Ferðasaga Ánægður hópur útivistarfólks er á leið í bæinn í rútu eftir velheppnaða fjögurra daga gönguferð um suðurhálendi íslands. Reyndar voru ekki allir hressir í ferðinni því fararstjórinn varð veikur á þriðja degi með niðurgangi, innantökum og miklum slappleika. Veikindi mannsins höfðu ekki farið leynt og hann varð var við samúð í hópnum, þegar hann neyddist til að segja skilið við ferðafélagana af heilsufars- ástæðum næstsíðasta daginn. Hann var síðan sóttur á jeppa í óbyggðirnar, en sameinaðist hópnum á ný til þess eins að verða samferða í rútunni til Reykjavíkur. Pá er hann síst betri til heilsunnar. Á Fjallabaksleið nyrðri, nánar í Kýlingum, biður fararstjórinn bílstjórann um að stoppa til að hann geti gengið örna sinna. Hann veifar klósettpappírsrúllunni til sam- ferðafólksins og kallar aftur í rútuna: „Nú ætla ég að skreppa á klósettið“. Þegar fararstjórinn gengur niður tröppurnar á rútunni heyrist í lækni sem situr framarlega: „Hvernig kemstu svo í bæinn?“ í upphafi.... Alskeggjaður karlmaður á efri árum, íklæddur kufli og í sandölum kemur til læknisins. „Enginn vill hlusta á mig lengur, læknir og allir eru að gefast upp á mér, af því ég tel mig vera Guð.“ „Það hljómar ekki vel. Hvernig byrjaði þetta eiginlega,“ spurði læknirinn? „Látum okkur nú sjá,“ sagði sá skeggjaði, „í upphafi skapaði ég himin og jörð.“ Flottur gaur Einn af glæsilegri læknum bæjarins bauð konu sinni út að borða. Myndarleg, ljóshærð kona gengur í veitingasalinn og sest við næsta borð. Hún veifar kumpánalega til læknisins, sem kinkar kolli á móti. Eiginkonan tekur eftir þessum samskiptum og gefur manni sínum illt auga. „Svona, svona, elskan mín, þetta er bara kona sem ég hef hitt í vinnunni," segir eiginmaðurinn. „Já, einmitt það. Þinni eða hennar?“ Hóstað lengi Maður með flensu kom til læknis, sem hafði það orðspor að vera sérlega viðutan. „Komdu úr að ofan og hóstaðu þegar ég banka á þér bakið,“ sagði læknirinn. Svona gekk það í hálfa klukkustund, þegar lækninum fannst nóg komið, hætti að banka manninn og bað hann um að klæða sig. „Heyrðu annars," sagði læknirinn, „hvað ertu eiginlega búinn að vera með þennan hósta lengi?“ Breyttur lífsstíll Miðaldra maður kom til læknis og vildi fá almenna læknisskoðun. Eftir að hafa hlustað á manninn og skoðað hann, segir læknirinn alvarlegur í bragði: „Þú verður að gjörbreyta líferni þínu. Þú átt að hætta að borða feitmeti, hætta að reykja og hætta að drekka áfengi. Ég segi þér í fúlustu alvöru, að þú hefur sex vikur til að breyta þessu.“ „Allt í lagi,“ sagði maðurinn. Síðan liðu fimm vikur og þá skipti hann um lækni. Með opinn munninn Þreytuleg kona kom til heimilislæknisins og bar sig illa. „Eg kem út af manninum mínum,“ sagði konan. „Hvert er vandamálið," spurði læknirinn. „Hann heldur að hann sé ísskápur.“ „Hvað ertu að segja. Það hljómar eins og raunverulegt vandamál," sagði læknirinn. „Þetta hlýtur að vera erfitt fyrir þig.“ „Þú getur rétt ímyndað þér að það er hreint út sagt hræðilegt," sagði konan. „Hann sefur til dæmis alltaf með opinn munninn og ég get lítið sofið fýrir birtunni úr honum.“ Veikt hjarta Eldri borgari með hjartasjúkdóm á allháu stigi kom til læknis, sem var þekktur fyrir að vera ekki meðal þeirra ljúfustu í mannlegum samskiptum. Sjúklingurinn hafði hins vegar gengið til læknisins í nokkur ár og kunni því ekki við að leita annað. Sjúklingurinn var fremur uppburðarlítill og það var ekki fyrr en að skoðun lokinni, sem hann segir lækninum frá því hvers vegna hann sé í rauninni mættur á stofuna. „Ég hef fundið fyrir því hvað eftir annað, að hjartað slær óreglulega," sagði hann. „Hafðu engar áhyggjur af því,“ sagði læknirinn. „Við stoppum það fljótlega.“ Tréfóturinn Gamall karl kom til læknis og bar sig aumlega. „Hvað gengur eiginlega að þér?“ spurði læknirinn. „Mig verkjaði svo rosalega undan tréfætinum í nótt að ég er alveg ósofinn," sagði karlinn. „Það var nú verra. Passar hann ekki almennilega á þig eða hvað?“ „Jú, hann passar alveg ágætlega. Ég var hins vegar rétt að festa blund þegar konan barði mig í hausinn með fætinum." Læknablaðið 2000/86 713
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.