Læknablaðið - 15.10.2000, Blaðsíða 14
FRÆÐIGREINAR / BARNALÆKNINGAR
viðkomandi skóla rannsakaðir. Útilokuð frá
rannsókninni voru börn og unglingar með líkamlegar
fallanir eða langvinna sjúkdóma, sem hugsanlega
gætu haft áhrif á vöxt þeirra eða þroska.
Ofangreind aðferð var samþykkt af Tölvunefnd.
Rannsóknin fór fram í samráði við landlækni og var
samþykkt af siðaráði landlæknisembættisins. Fengið
var leyfi skólayfirvalda til að rannsóknin færi fram í
húsnæði skólanna og skólahjúkrunarfræðingar
Tafia I. Brjóstaþroski stúlkna samkvæmt stiggreiningu Tanners (2-5). Birtur er fjöldi
einstaklinga, meðalaldur við hvert stig ásamt staöalfrávikum og mestu frávikum.
Fjöldi Meóal- aldur Staóal- frávik Minnsti aldur Mesti aldur
2 402 10,84 1,43 5,89 13,89
3 278 12,46 1,35 9,22 15,99
4 513 13,88 1,29 10,29 16,58
5 292 14,72 1,05 11,77 16,88
Tafla II. Fjöldi stúlkna á mismunandi aldri, sem hafa náð hverju stigi brjóstaþroska samkvæmt stiggreiningu Tanners.
Aldur 1 2 3 4 5 Ekki skráó Földi
6 72 3 - - - 3 78
7 272 8 - - - 6 286
8 212 11 - - - 8 231
9 226 41 2 - - 10 279
10 183 86 15 í - 7 292
11 134 116 50 25 - 4 392
12 41 84 80 46 9 9 269
13 7 43 70 122 30 17 289
14 2 8 36 142 73 14 275
15 - - 16 112 89 24 244
16 - - 8 59 86 75 228
17 " 1 2 148 151
Tafla III. Kynháraþroski stúikna samkvæmt stiggreiningu Tanners (2-5). Birtur er
Ijöldi einstaklinga, meðalaldur við hvert stig ásamt staðalfrávikum og mestu frávikum.
Fjöldi Meóalaldur Staðalfrávik Minnsti aldur Mesti aldur
2 275 11,46 1,25 7,45 15,94
3 234 12,77 1,37 9,62 16,07
4 581 13,95 1,30 9,75 16,88
5 267 14,86 0,94 11,53 16,84
Tafla IV. Fjöldi stúlkna á mismunandi aldri.sem hafa náð hverju stigi kynháraþroska samkvæmt stiggreiningu Tanners.
Aldur Stig Tanners Ekki skráð Fjöldi
1 2 3 4 5
6 77 - - - - i 78
7 282 í - - - 3 286
8 227 - - - - 4 231
9 262 12 - - - 5 279
10 239 42 9 í - 1 292
11 196 83 29 19 - 2 329
12 68 71 66 61 2 1 269
13 21 44 62 132 19 11 289
14 1 13 38 151 69 3 275
15 - 1 17 132 88 6 244
16 - 1 12 77 85 53 228
17 3 1 147 151
viðkomandi skóla veittu aðstoð við undirbúning og
framkvæmd rannsóknarinnar. Fengið var skriflegt
samþykki foreldra fyrir þátttöku barnanna.
Rannsóknin, það er mælingar og líkamsskoðanir
barna og unglinga, fór fram á tímabilinu 1983-1987
og var framkvæmd af höfundum þessarar greinar,
sem eru allir sérfræðingar í barnalækningum.
Framkvæmd var almenn líkamsskoðun auk þess sem
mæld var þyngd og hæð barnanna, sitjandi og
standandi. Mæld var þykkt húðfellinga á upphand-
legg og baki. Leitað var upplýsinga um fæðingar-
þyngd, fjölda systkina og röð barns í hópi systkina,
hvort barnið var fleirburi, fjölskyldustærð, aldur
foreldra og störf. í heilsufarssögu komu fram upplýs-
ingar um uppruna barnsins, langvinna sjúkdóma og
sjúkrahúslegur. Kynþroskastig voru ákvörðuð sam-
kvæmt aðferð Tanners (4).
Fimm stig kynháravaxtar voru metin sem hér
segir:
Stig 1. Fyrir kynþroska. Kynháravöxtur greinist
ekki frá öðrum líkamshárvexti svo sem á
kviði.
Stig 2. Fíngerður vöxtur af tiltölulega ljósum og lítið
lituðum, dúnkenndum hárvexti á skapabörm
um.
Stig 3. Greinilega dekkri, grófari og hrokknari
hárvöxtur, sem dreifist kringum kynfærin.
Stig 4. Kynhár eru nú eins og á fullorðinni konu, en
ná yfir tiltölulega minna svæði.
Stig 5. Kynhár fullvaxin með dreifingu eins og sést
hjá fullorðnum konum, kynhár ná niður á
læri beggja vegna og stöku sinnum upp
miðlínu.
Proski brjósta var einnig metinn í fimm stigum:
Stigl. Fyrir kynþroska. Engin merki um stækkun
brjóstkirtla.
Stig 2. Smávægileg stækkun á brjóstkirtli undir
geirvörtunni 1-3 cm í þvermál.
Stig 3. Vöxtur brjóstkirtilsins nær nú vel út fyrir
geirvörtu og er mýkri viðkomu.
Stig 4. Brjóstkirtillinn nálgast fulla stærð en svæðið
umhverfis geirvörtuna (areola) bungar fram.
Stig 5. Fullvaxinn brjóstkirtill. Aðurnefndar breyt
ingar á geirvörtum í flestum tilfellum
gengnar til baka.
Stúlkur voru spurðar hvort tíðablæðingar væru
hafnar og svarið já eða nei skráð.
Að auki voru framkvæmdar nákvæmar mælingar
á sitjandi og standandi hæð, þyngd, höfuðummáli og
húðfitulagi.
Tölfræðilegar aðferðir: Tölfræðilegar niðurstöður
voru skráðar í tölvuforritinu FileMaker Pro. í því
forriti voru reiknuð meðaltöl og staðalfrávik. Hvert
aldursár var skilgreint þannig að öll börn fædd frá og
með -0,50 ár til og með +0,49 ár voru reiknuð saman
í einum hópi. Dæmi: Til 12 ára stúlkna töldust þær
stúlkur sem voru 11,50 ára til og með 12,49 ára.
650 Læknablaðið 2000/86