Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.2000, Side 20

Læknablaðið - 15.10.2000, Side 20
FRÆÐIGREINAR / BARNALÆKNINGAR r Tafla I. Kynháraþroski drengja samkvæmt stiggreiningu Tanners (2-5). Birtur er f/öldi einstaklinga, medataidur við hvert stig ásamt staðalfrávikum og mestu frávikum. Meöal- Staöal- Minnsti Mesti Stig Fjöldi aldur frávik aldur aldur 2 385 12,74 1,37 7,40 16,87 3 162 13,87 0,98 11,05 16,61 4 342 14,63 0,95 11,65 16,56 5 156 15,17 0,80 12,01 16,59 Tafla II. Fjöldi drengja á mismunandi aldri, sem hafa náð hverju stigi kynháraþroska samkvæmt stiggreiningu Tanners. Stiggreining Tanners Aldur 1 2 3 4 5 Ekki skráö 6 97 - - - - 0 7 238 í - - - 4 8 270 2 - - - 3 9 254 5 - - - 3 10 285 17 - - - 4 11 267 34 2 - - 9 12 160 103 16 4 í 4 13 88 103 42 33 4 2 14 23 83 62 113 26 0 15 5 26 35 111 61 2 16 t - 6 3 77 63 46 Tafla III. Rúmmái eistna mælt í millilítrum (Ml) með eistnamæli (orchidometer) Praders. Taflan sýnir fjölda drengja við hverja mælieiningu, meðalaldur og staðalfrávik, minnsta og mesta aidur. Ml Fjöldi Meóal- aldur Staóal- frávik Minnsti aldur Mesti aldur í 337 8,31 1,50 5,52 13,09 2 1027 9,17 1,73 5,52 14,97 3 239 10,90 1,69 5,93 14,92 4 115 11,89 1,08 7,30 14,34 5 87 12,60 1,03 10,26 14,80 6 101 12,82 0,98 10,47 15,82 8 117 13,12 1,20 10,74 16,37 10 141 13,84 1,00 11,37 16,16 12 161 14,10 0,97 11,05 16,64 15 172 14,54 1,08 11,65 16,87 20 191 15,03 0,86 12,55 16,59 25 43 15,05 0,91 13,30 16,28 Efniviður og aðferðir Rannsóknin var hluti af stærri og umfangsmeiri rannsókn þar sem nemendur í grunnskólum og framhaldsskólum víðs vegar um landið voru skoðaðir. Aðaltilgangur rannsóknarinnar var að meta vöxt og þroska íslenskra barna (10,11). I upphafi var valinn úrtakshópur barna af höfuð- borgarsvæðinu á aldrinum 6-16 ára. Samkvæmt töl- fræðilegum ráðleggingum var hópurinn valinn þannig að skólabörn fædd fjórða dag hvers mánaðar, það er fyrsta, fimmta, níunda, þrettánda og svo framvegis, voru beðin um að taka þátt í rannsókninni. Utan höfuðborgarsvæðisins var úrtakshópurinn valinn á nokkuð annan hátt. Þar voru valdir ákveðnir grunnskólar og framhaldsskólar í öllum lands- fjórðungum og allir nemendur viðkomandi skóla rannsakaðir. Útilokuð frá rannsókninni voru börn og unglingar með líkamlegar fatlanir eða langvinna sjúkdóma, sem hugsanlega gætu haft áhrif á vöxt þeirra eða þroska. Tölvunefnd samþykkti að úrtakshópurinn yrði valinn úr þjóðskrá. Rannsóknin fór fram í samráði við landlækni og var samþykkt af siðaráði land- læknisembættisins. Fengið var leyfi skólayfirvalda til að rannsóknin færi fram í húsnæði skólanna og skólahjúkrunarfræðingar viðkomandi skóla veittu aðstoð við undirbúning og framkvæmd rannsóknar- innar. Foreldrar veittu skriflegt leyfi fyrir þátttöku barna sinna í rannsókninni. Allar mælingar og skoðanir voru framkvæmdar af höfundum þessarar greinar, sem allir eru barnalæknar. Framkvæmd var almenn líkamsskoðun auk þess sem mæld var þyngd og hæð barnanna, sitjandi og standandi. Mæld var þykkt húðfellinga á upphandlegg og baki. Leitað var upplýsinga um fæðingarþyngd, fjölda systkina og röð barnsins í hópi systkina, hvort barnið var fleirburi, fjölskyldustærð, aldur foreldra og störf. í heilsufarssögu komu fram upplýsingar um uppruna bamsins (þjóðerni/kyn- þátt), langvinna sjúkdóma og sjúkrahúslegur. Fimm stig kynháravaxtar voru metin samkvæmt aðferð Tanners (1). Stig 1. Fyrir kynþroska. Kynháravöxtur greinist ekki frá öðrum líkamshárvexti svo sem á kviði. Stig 2. Fíngerður vöxtur af tiltölulega löngum og lítið lituðum, dúnkenndum hárvexti aðallega við rætur reðurs. Stig 3. Greinilega dekkri, grófari og hrokknari hárvöxtur í kringum kynfærin. Stig 4. Kynhár eru nú eins og á fullorðnum en ná yfir tiltölulega minna svæði en hjá flestum fullvöxnum körlum, engin dreifing niður á læri né upp að nafla. Stig 5. Kynhár fullvaxin að magni til og dreifing eins og á fullorðnum, kynhár ná niður á lærin beggja vegna og í flestum tillfellum upp undir naflann. Stærð eistna var metin í millilítrum rúmmáls samkvæmt eistnamæli (orchidometer) Praders (12). Að auki voru framkvæmdar nákvæmar mælingar á sitjandi og standandi hæð, þyngd, höfuðummáli og húðfitulagi. Tölulegar niðurstöður voru skráðar í tölvufor- ritinu FileMaker Pro. í því forriti voru reiknuð meðaltöl og staðalfrávik. Hvert aldursár var skil- greint þannig að öll börn fædd frá og með -0,50 ár til og með +0,49 ár voru reiknuð saman í einum hópi. Dæmi: Til 12 ára drengja töldust þeir drengir sem voru 11,50 ára til og með 12,49 ára. Ekki var tekið tillit til búsetu við útreikninga á niðurstöðum þessa hluta rannsóknarinnar, en tölfræðilegur munur fannst ekki á vexti barna af höfuðborgarsvæðinu borið saman við börn af landsbyggðinni (10). 656 Læknablaðið 2000/86
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.