Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2000, Blaðsíða 9

Læknablaðið - 15.10.2000, Blaðsíða 9
FRÆÐIGREINAR / RITSTJÓRNARGREIN þegar þú ert orðinn stór Ásgeir Haraldsson. Heimildir 1. Dagbjartsson A, Þórsson ÁV, Pálsson GI, Arnórs- son VH. Hæð og þyngd íslenskra barna og ung- linga 6-20 ára. Lækna- blaðið 2000; 86: 509-14. 2. Goldstein H, Tanner JM. Ecological considerations in the creation and the use of Child Growth Stand- ards. Lancet 1980; 1: 582-5. 3. Steffensen J. Menning og meinsemdir. Reykjavík: ísafoldarprentsmiðja hf.; 1975: 237-57. 4. Hannesson G. Körber- masse und Körberpropor- tionen der Islánder. Reykjavík: Árbók Háskóla Íslands/Supplement; 1925. 5. Fredriks ÁM, van Buuren S, Burgmeijer RJ, Meul- meester JF, Beuker RJ, Brugman E, et al. Continu- ing positive secular growth change in The Netherlands 1955-1997. Pediatr Res 2000; 47:316-23. 6. Þórsson ÁV, Dagbjartsson A, Pálsson GI, Arnórsson VH. Kynþroski íslenskra drengja. Læknablaðið 2000; 86: 655-9. 7. Þórsson ÁV, Dagbjartsson A, Pálsson GI, Arnórsson VH. Kynþroski íslenskra stúlkna. Læknablaðið 2000; 86: 649-53. 8. Taranger J, Engström I, Lichtensten H, Svenberg- Redgren I. Somatic Puber- tal Development. Acta Pediatr Scand Suppl 1976; 258:121-35. Höfundur er prófessor á Barnaspítala Hringsins, Landspítala Hringbraut. „Hann var manna best vígur. Hann hjó með báðum höndum og skaut, ef hann vildi, og vó svo skjótt með sverði, að þrjú þóttu á lofti að sjá. Hann skaut manna best af boga og hæfði allt það, er hann skaut til.“ Pessa mannlýsingu þekkja allir. En Gunnar á Hlíðarenda var ekki bara „vænn að yfirliti og ljóslitaður, réttnefjaður og hafið upp framanvert, bláeygur og snareygur, roði í kinnum, hárið mikið, gult og fór vel“, hann var einnig „mikill maður vexti og sterkur“. En hversu mikill maður, hversu stór og hversu þungur? Um það eru ekki nákvæmar heimildir. Ekki er með vissu vitað hversu stórir forfeður okkar voru. Ekki þarf oft að reka sig upp undir þvertré og hurðarása í gömlum húsum til að sannfærast um að núlifandi kynslóð er hærri hinum fyrri. Vel er þekkt sú staðreynd að hver kynslóðin er nú hærri þeirri næstu á undan. I Læknablaðinu birtist nýlega grein (1) um hæð og þyngd íslenskra barna. Grein þessi er ítarleg og vel unnin og af henni má draga margvíslegan lærdóm. Rannsóknin gefur glögga mynd af vexti barna á Islandi. Niðurstöðurnar skapa þannig grundvöll til að meta vöxt einstakra barna og bera saman við hópinn. Slík viðmiðun getur gefið mikilvægar vísbendingar um heilsu einstaklinga. Þekking á vexti barna endurspeglar heilsu einstaklinganna en einnig ástand þjóðar og þjóðfélaga (2). Margir þættir hafa áhrif á líkamlegan vöxt og þroska. Erfðaþættir skipta miklu máli enda var Kolskeggur, bróðir Gunnars á Hlíðarenda einnig „mikill maður og sterkur“. Þó er Ijóst að fleiri þættir koma við sögu. Annars værum við enn jafnhá forfeðrum okkar. Aðstæður og aðbúnaður, ásamt fæðu og umhverfi skipta máli. Eldri íslenskar rannsóknir staðfesta þetta að hluta til (3,4). Niðurstöðurnar leiða einnig í ljós að íslendingar eru með hávöxnustu þjóðum. íslenskir karlar voru fyrr á öldinni 173 cm (4). Meðalhæð þeirra er nú 180,6 cm en meðalhæð kvenna 170,6 cm (1). Mikil hæðaraukning íslenskra karlmanna endurspeglar mögulega bættan aðbúnað þjóðarinnar á liðinni öld. Niðurstöðurnar eru sambærilegar norskum mælingum en nokkru hærri en tölur frá öðrum Norðurlöndum. Nýleg rannsókn frá Hollandi (5) sýnir þó að Hollendingar eru nú manna hávaxnastir. Meðalhæð fullvaxinna karlmanna þar í landi er nú 184 cm. Grettir Ásmundarson var einnig mikill maður og rammur að afli. Fleira var þó athyglisvert í vexti Grettis sterka. Þegar Grettir synti til lands úr Drangey til að sækja eldinn lagðist hann til svefns að bænum Reykjum. Um morguninn komu þar að honum bóndadóttir og griðkona. Griðkonan mælti: „Svo vil ég heil, systir, hér er kominn Grettir Ásmundarson, og þykir mér raunar skammrifjamikill vera, og liggur ber. En það þykir mér fádæmi, hversu lítt hann er vaxinn niðri, og fer þetta eigi eftir gildleika hans öðrurn." Hér er einnig úr vöndu að ráða. Ber að skilja söguna svo að Grettir Ásmundarson, eitt mesta karlmenni fornsagnanna, hafi raunverulega verið lítt vaxinn niðri? Eða var hann lítt vaxinn niðri miðað við hinn mikla massa? Ekki er vitað hver reynsla griðkonunnar hafi verið eða hver samanburðurinn var. Voru skagfirskir karlar þessara ára miklir vexti? Hafa ber einnig í huga nýafstaðið sundið í köldum sjónum! Einnig í þessari lýsingu úr Grettissögu vantar nákvæmari viðmiðanir. I þessu hefti Læknablaðsins eru tvær greinar um kynþroska íslenskra drengja og stúlkna (6,7). Fengur er að þessum greinum eins og hinni fyrri. Greinarnar veita mikilsverðar upplýsingar um líkamlegan þroska barna og skapa þannig forsendur til að meta frávik á réttan hátt. Einnig er samanburður við erlendar rannsóknir áhugaverður sem fyrr. Loks geta niðurstöðurnar gefið upplýsingar um ástand og aðbúnað barna en rannsóknir hafa bent til að aldur við upphaf kynþroska barna á Vesturlöndum fari lækkandi (8). Það er hverri þjóð nauðsynlegt að hafa greinargóðar upplýsingar um heilsufar sitt. Upplýsingar um líkamlegan vöxt og og þroska barna gefa mikilvægar upplýsingar sem gagnast við greiningu frávika hjá einstökum börnum. Niðurstöðurnar gagna einnig við mat á ástandi þjóðarinnar. Þeir voru miklir kappar, Grettir, Gunnar og Kolskeggur. Og ekki skal atgerfi Gunnars á Hlíðarenda dregið í efa sem „hljóp meira en hæð sína með öllum herklæðum og eigi skemmra aftur en fram fyrir sig“. En fróðlegt væri að vita hversu hátt hann stökk! Læknablaðið 2000/86 645
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.