Læknablaðið - 15.10.2000, Síða 13
FRÆÐIGREINAR / BARNALÆKNINGAR
Kynþroski íslenskra stúlkna
Árni V. Þórsson'3,
Atli
Dagbjartsson23,
Gestur I. Pálsson2,
Víkingur H.
Arnórsson3
Frá 'barnadeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur, :Barnaspítala
Hringsins Landspítalanum,
3læknadeild Háskóla íslands.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Arni V. Þórsson barnadeild
Landspítala Fossvogi, 108
Reykjavík. Sími: 525 1000;
netfang: arniv@shr
Lykilorð: kynþroski, vöxtur,
íslenskar stúlkur.
Ágrip
Lýst er þverskurðarrannsókn (crosssectional) á
kynþroska íslenskra stúlkna. Rannsóknin var hluti af
stórri þverskurðarrannsókn á vexti og þroska
íslenskra barna á aldrinum 6-16 ára. í rannsókninni,
sem fór fram á árunum 1983-1987, tók þátt alls 2751
drengur og 2775 stúlkur, eða samtals 5526 börn og
unglingar. Allar mælingar og líkamsskoðun barn-
anna voru framkvæmdar af höfundum greinarinnar.
Þroski brjósta og kynhára var stiggreindur sam-
kvæmt aðferð Tanners (B 1-5 og PH 1-5). Til að
kanna aldur við fyrstu tíðablæðingar (nienarche)
voru stúlkurnar spurðar hvort þær hefðu haft
blæðingar. Svarið var skráð já eða nei.
Meðalaldur stúlkna við upphaf brjóstaþroska (B
2) var 10,84 (staðalfrávik 1,43) ár og við fyrsta
mælanlegan kynháravöxt (PH 2) 11,46 (staðalfrávik
1,25) ár. Meðalaldur stúlkna við fyrstu tíðablæðingar
var 13,26 (staðalfrávik 1,15) ár.
Þroski íslenskra stúlkna fylgir svipuðu ferli og lýst
hefur verið á öðrum Norðurlöndum. Hins vegar
virðist tímabilið 2,42 ár frá fyrstu einkennum
kynþroska stúlkna (B 2) að fyrstu tíðablæðingum
vera tiltölulega langt, borið saman við niðurstöður
erlendra rannsókna.
Inngangur
Kynþroskaskeiðið er það tímabil ævinnar sem
einkennist af miklum breytingum á líkamsvexti
ásamt sálrænum og félagslegum þroskabreytingum
barnsins. Margar rannsóknir hafa leitt í ljós að mikill
munur er á því hvenær kynþroskaeinkenni hefjast
hjá börnum og eins er tíminn sem kynþroskinn tekur
breytilegur (1-4). Aldur við upphaf og tímalengd
kynþroska virðist stjórnast af erfðum og umhverfis-
þáttum. Á síðustu öld hefur aldur barna við upphaf
kynþroska farið lækkandi (5). Einkum er þetta vel
þekkt hvað varðar stúlkur, en upphaf tíðablæðinga
(menarche) er kennileiti sem tiltölulega auðvelt er
að skrá. í mörgum þjóðlöndum er því tímasetning
kynþroska stúlkna mun betur rannsökuð og skrásett
en tímasetning kynþroska pilta. Allmargar
rannsóknir hafa leitt í ljós að aldur stúlkna við
upphaf tíðablæðinga fór lækkandi á fyrri hluta 20.
aldarinnar. Á síðustu áratugum virðist umrædd
lækkun í aldri við fyrstu tíðablæðingar hafa stöðvast
eða jafnvel í sumum tilfellum hefur aldurinn farið
hækkandi aftur (6,7). Rannsóknir hafa einnig leitt í
ENGLISH SUMMARY
Þórsson ÁV, Dagbjartsson A, Pálsson Gl, Arnórsson VH
Puberty in lcelandic girls
Læknablaðið 2000; 86: 649-53
In a crosssectional study, 2775 healthy lcelandic girls,
aged 6-16 years, were examined for physical signs of
puberty. The study was performed in 1983-1987 and was
a part of a larger crosssectional study of growth and
development of 5526 lcelandic children all of whom were
examined by the authors. Breast development stage 2
according to Tanner (B 2) was considered the first sign of
puberty in girls. The mean age of lcelandic girls reaching B
2 was 10.84 years (SD 1.43). The mean time interval
between B 2 and menarche was 2.42 years. The first signs
of pubic hair growth, Tanner stage 2 (PH 2) were found at
11.46 years (SD 1.25). The mean time interval between PH
2 and PH 5 was 3.40 years.
Comparison with studies from other countries is difficult
because of different methods and different study designs,
but the timing and tempo of puberty in lcelandic giris
seems to be similar to what has been reported from other
Nordic countries and countries in Western-Europe.
Key words: puberty, growth, lcelandic girls.
Correspondence: arniv@shr
Ijós að aldur við upphaf tíðablæðinga var lægri meðal
stúlkna sem bjuggu við betri félagslegar og
efnahagslegar aðstæður (8).
Við birtum hér niðurstöður þverskurðar-
rannsóknar (crosssectional) á kynþroska íslenskra
stúlkna.
Efnividur og aðferðir
Rannsóknin var hluti af stórri rannsókn, þar sem
nemendur í grunn- og framhaldsskólum víðs vegar
um landið voru skoðaðir. Aðaltilgangur rann-
sóknarinnar var að meta vöxt og þroska íslenskra
barna (9,10). Valinn var úrtakshópur barna úr
þjóðskrá. Hópurinn var valinn þannig að skólabörn á
höfuðborgarsvæðinu fædd fjórða hvern dag hvers
mánaðar (það er fyrsta, fimmta, níunda, þrettánda og
svo framvegis) voru beðin að taka þátt í
rannsókninni. Utan höfuðborgarsvæðisins var
úrtakshópurinn valinn á nokkuð annan hátt. Þar
voru valdir ákveðnir grunnskólar og framhaldsskólar
í öllum landsfjórðungum og allir nemendur
Læknablaðið 2000/86 649