Læknablaðið - 15.10.2000, Qupperneq 17
FRÆÐIGREINAR / BARNALÆKNINGAR
það líklega fyrst og fremst af erfðaþáttum.
Rannsóknir frá ýmsum löndum hafa gefið til kynna
að aldur stúlkna við fyrstu tíðir fór lækkandi á síðustu
öld. Orsakir þessara breytinga eru umdeildar, en flest
bendir til að þær megi rekja til batnandi næringar-
ástands og aukinnar velmegunar. Hins vegar virðist
þessi lækkun í aldri hafa stöðvast, einkum á
Norðurlöndum og í öðrum vestrænum löndum þar
sem velmegun ríkir. Af því mætti álykta að
erfðatengdum lágmarksaldri sé náð í þeim
þjóðlöndum þar sem velmegun er mest (7,12).
Með vaxandi flutningi fólks af ýmsum kynþáttum
til landsins er nauðsynlegt að hafa í huga að
verulegur munur er á upphafi kynþroska í hinum
ýmsu heimshlutum. Nú til dags finnst ótímabær
kynþroski á Norðurlöndum oftast nteðal stúlkna sem
ættaðar eru frá Asíulöndum.
I samantekt hafa rannsóknir okkar leitt í Ijós að
tímasetning og tímalengd kynþroskaskeiðs íslenskra
stúlkna er svipuð því sem lýst hefur verið á
Norðurlöndum og í flestum löndum Vestur-Evrópu.
Frávik í þroska geta oft verið einkenni um sjúkdóma.
Mikilvægt er að þeir sem starfa að heilsugæslu barna
geri sér grein fyrir eðlilegum mörkum kynþroska.
Þannig má koma í veg fyrir óþarfa áhyggjur, ef þroski
barnsins er innan eðlilegra tímamarka, en að öðrum
kosti gera ráðstafanir til viðeigandi rannsókna.
Þakkir
Rannsóknin var styrkt af Vísindasjóði íslands.
Höfundar þakka sérlega öllum þeim
skólahjúkrunarfræðingum, víðs vegar um landið, sem
lögðu fram ómælda vinnu við framkvæmd og
skipulagningu rannsóknarinnar.
Heimildir
1. Tanner JM. Trend toward earlier menarche in London, Oslo,
Copenhagen, the Netherlands and Hungary. Nature 1973; 243:
95-7.
2. MacMahon B. Age at menarche. In: National Survey DHEW
Publication, No. 133 (HRA), Series 11. Bethesda, MD; 1973:1.
3. Zacharias LM, Rand M, Wurtman R. A prospective study of
sexual development in American girls: the statistics of
menarche. Obstet Gynecol Surv 1976; 33:325-37.
4. Marchall WA, Tanner JM. Variations in pattern of pubertal
changes in girls. Arc Dis Child 1969; 44: 291-303.
5. Taranger J. Secular changes in sexual maturation. Acta Med
Auxol 1983; 15:137-50.
6. Brundtland GH, Walloe L. Menarcheal age in Norway. Halt in
the trend towards earlier maturation. Nature 1973; 241: 478-9.
7. Tryggvadottir L, Tulinius H, Larusdottir M. A decline and a
halt in mean age at menarche in Iceland. Ann Hum Biol 1994;
21:179-86.
8. Tanner JM, Eveleth PB. Variability between populations in
growth and development at puberty. In: Berenberg SR, ed.
Puberty. Leiden: Stenfert Kroese; 1975.
9. Dagbjartsson A, Þórsson ÁV, Pálsson G, Arnórsson VH. Hæð
og þyngd íslenskra barna og unglinga 6-20 ára. Læknablaðið
2000; 86: 509-14.
10. Þórsson ÁV, Dagbjartsson A, Pálsson G, Arnórsson VH.
Kynþroski íslenskra drengja. Læknablaðið 2000; 86: 655-9.
11. Marchall WA, Tanner JM. Variations in pattern of pubertal
changes in boys. Arc Dis Child 1970; 45:13-23.
12. Danker-Hopfe H. Menarcheal age in Europe. Yearbook of
physical anthropology 1986; 29: 81-112.
13. Magnússon ÞE. Meðalaldur íslenskra stúlkna við fyrstu tíðir.
Læknablaðið 1980; 66:110-3.
14. Brundtland GH, Liestol K, Walloe L. Height weight and
menarcheal age of Oslo schoolchildren during the last 60
years. Ann Hum Biol 1980; 7:307-22.
15. Widholm O, Kantero R. A statistical analysis of the menstrual
patterns of 8,000 Finnish girls and their mothers. Acta Obstet
Gynecol Scand Suppl 1971; 14: Suppl 14:1-36.
16. Andersen E. Skeletal maturation of Danish schoolchildren in
relation to height, sexual development and social conditions.
Aarhus: Universitetsforlaget; 1968.
17. Roede MJ, van Wieringen JC. Growth Diagrams 1980.
Tijdschrift vor Sociale Gezondheidszorg 1985; Suppl. 63:1-34.
18. Dacou-Voutetakis C, Klontza D, Lagos P, Tzonou Á, Katsaron
E, Antoniadis S, et al. Age of pubertal stages including
menarche in Greek girls. Ann Hum Biol 1983; 10: 557-63.
19. Largo RH, Prader A. Pubertal development in Swizz girls.
Helv Paediatr Acta 1983; 38: 229-43.
20. Taranger J, Engstrom I, Lichtenstein H, Svennberg-Redegren
I. VI. Somatic pubertal development. Acta Pediatr Scand
Suppl 1976; 258:121-35.
Læknablaðið 2000/86 653