Læknablaðið - 15.10.2000, Side 19
FRÆÐIGREINAR / BARNALÆKNINGAR
Kynþroski íslenskra drengja
Árni V. Þórsson1,3'
Atli
Dagbjartsson2’3,
Gestur I. Pálsson2,
Víkingur H.
Arnórsson3
Frá ‘barnadeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur, 2BarnaspítaIa
Hringsins Landspítalanum,
dæknadeild Háskóla íslands.
Fyrirspurnir, bréfaskipti: Ámi
V. Þórsson barnadeild
Landspítala Fossvogi. Sími:
525 1000; netfang:
arniv@shr.is
Lykilorð: kynþroski, vöxtur,
íslenskir drengir.
Ágrip
Gerð var þverskurðarrannsókn á ytri kynþroska-
einkennum hjá 2751 heilbrigðum íslenskum dreng á
aldrinum 6-16 ára. Rannsóknin var hluti af stærri
rannsókn sem fór fram á árabilinu 1983-1987 en þar
var meðal annars mæld hæð, bæði sitjandi og
standandi, þyngd og húðfita. Alls tóku 5526 börn og
unglingar þátt í rannsókninni, og var það meira en
95% af upprunalegum úrtakshópi. Fyrstu einkenni
kynþroska drengja eru talin þegar eistu ná 4 ml
rúmmáls (T 4). Meðalaldur íslenskra drengja við
upphaf kynþroska var 11,89 ár, staðalfrávik
(standard deviation) 1,08 ár. Tímalengd sem tekur
eistun að vaxa úr 4 ml í 12 ml (T 4 -T 12) var 2,21 ár.
Fyrsti vöxtur kynhára (PH 2) fannst að meðaltali við
12,74 ár, staðalfrávik 1,37 ár. Tímalengd milli PH 2 og
PH 5, þegar fullum þroska kynhára var náð, var að
meðaltali 2,43 ár. Niðurstöður benda til að kynþroski
íslenskra pilta fylgi svipuðu ferli og hjá piltum á
Norðurlöndum og meginlandi Vestur-Evrópu.
Samanburður við erlendar rannsóknir er hins vegar
að mörgu leyti erfiður vegna ólíkra rann-
sóknaraðferða.
Inngangur
Kynþróun og kynþroski er samhangandi ferli sem
hefst snemma á fósturskeiði. Á kynþroskaárum
verða hraðar breytingar á ytri kyneinkennum og
líkamsvexti. Þær verða fyrir tilstilli flókinna
breytinga á hormónastarfsemi, einkum kynhormóna
beggja kynja. Margar rannsóknir sem gerðar hafa
verið á vexti og þroska ungmenna á síðustu áratugum
hafa sýnt fram á verulegan breytileika bæði hvað
snertir tímasetningu ytri kynþroskaeinkenna og þann
hraða sem kynþroskatímabilið tekur (1,2). Tvenns
konar aðferðir hafa aðallega verið notaðar til
rannsókna á kynþroska unglinga. í fyrsta lagi
langtímarannsóknir (longitudinal) þar sem fylgst er
með sömu einstaklingum til fjölda ára með
nákvæmum, endurteknum mælingum og skoðunum.
I öðru lagi þverskurðarrannsóknir (crosssectional)
þar sem tekið er valið úrtak og mikill fjöldi barna og
unglinga skoðaður á tiltölulega stuttum tíma. Til er
fjöldi rannsókna á hæðar- og þyngdarvexti barna og
unglinga frá ýmsum þjóðlöndum heims. Flestar
þeirra eru þverskurðarrannsóknir. í fáum þessara
rannsókna var framkvæmd samtímis skoðun og
rannsókn á ytri kynþroskaeinkennum unglinganna
ENGLISH SUMMARY
Þórsson ÁV, Dagbjartsson A, Pálsson Gl, Arnórsson VH
Puberty in lcelandic boys
Læknablaöiö 2000; 86: 655-9
In a crosssectional study, 2751 healthy lcelandic boys
aged 6-16 years, were examined for physical signs of
puberty. The study was performed in 1983-1987 and was
a part of a larger crosssectional growth study of 5526
lcelandic children all of whom were examined by the
authors. Testicular volume of 4 ml (T 4) was considered the
first sign of puberty in boys. The mean age of lcelandic
boys reaching T 4 was 11.89 years (SD 1.08). The mean
time interval between T4 and T 12 was 2.21 years. The
first signs of pubic hair growth, Tanner stage 2 (PH 2),
were found at 12.74 years (SD 1.37). The mean time
interval between PH 2 and PH 5 was 2.43 years. Even
though comparison with studies from other countries is
difficult because of different methods and different study
design, we find that the timing and tempo of puberty in
lcelandic boys is similar to what has been reported from
other Nordic countries and countries in Western-Europe.
Key words: puberty, growth, lcelandic boys.
Correspondence: Árni V. Þórsson. E-mail: arniv@shr.is
enda er sú rannsóknaraðferð mun umfangsmeiri og
erfiðari í framkvæmd. Allmargar rannsóknir, einkum
hinar þekktu langtímarannsóknir Tanners og fleiri,
hafa kortlagt kynþroskaferlið og þær ytri
líkamsbreytingar sem verða hjá unglingum á
kynþroskaaldrinum (1,3). Aðrar þekktar
langtímarannsóknir á vexti og kynþroska hafa verið
framkvæmdar meðal annars af Prader og félögum í
Zúrich í Sviss (4,5) og Taranger og félögum í Svíþjóð
(6). Pverskurðarrannsóknir á kynþroskaeinkennum
hafa til dæmis verið framkvæmdar í Hollandi af J.C.
Van Wiringen og félögum (7) og í Bandaríkjum
Norður-Ameríku af Harlan og félögum (8,9).
Hér er lýst þverskurðarrannsókn á kynþroska
íslenskra pilta en rannsóknin var hluti af umfangs-
mikilli þverskurðarrannsókn á vexti og þroska
íslenskra ungmenna.
Læknablaðið 2000/86 655