Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2000, Síða 68

Læknablaðið - 15.10.2000, Síða 68
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SAGA LÆKNISFRÆÐINNAR Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar Félag áhugamanna um söGU læknisfræðinnar var stofnað fyrir 36 árum. Margir hafa eflaust heyrt félagsins getið en segja má að fremur hljótt hafi verið um það. Er því ekki úr vegi að nokkur grein sé gerð fyrir starfsemi þess. Félagið var stofnað 18. desember 1964. Aðalhvatamaður að stofnun þess var Jón Steffensen (1905-1991) prófessor í líffærafræði við Háskóla íslands. Á stofnfundinum reifaði hann þau verkefni sem hann taldi að félagið ætti að vinna að svo sem útgáfu Medicinsk Historisk Ársbok af íslands hálfu í samvinnu við hliðstæð félög á Norðurlöndum, útgáfustarfsemi, meðal annars heimildarrits um sögu læknisfræðinnar hér á landi og ekki síst varðveislu minja um sögu læknisfræðinnar. Jón taldi að Nesstofa væri æskilegur staður fyrir þessa starfsemi og þar ætti einnig að vera bókasafn um sögu um læknis- fræðinnar. Á stofnfundinn komu 48 manns. I lögum félagsins segir að tilgangur þess sé „að efla þekkingu á sögu lœknisfrœðinnar með hverjum þeim ráðum er þjónar því sjónarmiði svo sem með því að styðja rannsóknir á sögu læknisfræðinnar, útgáfu rita og varðveisla minja um sögu lœknisfrœðinnar... “. Jón Steffensen var formaður félagsins til æviloka 1991. Gunnlaugur Snædal prófessor var formaður 1991-1997 og síðan hefur Halldór Baldursson læknir verið formaður þess. Félagsmenn eru nú um 70. Flestir eru úr hópi lækna en einnig eru þar fornleifa- fræðingar, lyfjafræðingar, sagnfræðingar, guðfræð- ingur og lögfræðingur. Starfsemi félagsins hefur að líkindum verið mismunandi mikil á undanförnum áratugum eins og gerist og gengur. Hér verða nefnd nokkur verkefni sem félagið hefur staðið að: Félagið er aðili að norrænum samtökum félaga áhugamanna um sögu læknisfræðinnar, . Á vegum samtakanna eru haldnar ráðstefnur annað hvert ár til skiptis á Norðurlöndunum. Félagið hefur tvisvar staðið fyrir norrænum ráðstefnum um sögu læknisfræðinnar, 1981 og 1995. í sambandi við ráðstefnuna 1981 barst félaginu höfðinglegt fyrirheit. Poul Assens, danskur lyfjafræðingur og umboðs- maður bresku Wellcome á Norðurlöndum, hét félag- inu fjárhagslegum stuðningi til að halda árlega fyrirlestur til heiðurs Agli Snorrasyni lækni og skyldi hann kenndur við Egil. Hann var danskur læknir af íslenskum ættum (d. 1996) og mikill fræðimaður um sögu heilbrigðismála. Tilgangur fyrirlestranna er að styrkja rannsóknir og norræna samvinnu um sögu læknisfræðinnar. Ákveðnar reglur voru settar um val á fyrirlesurum og skyldi tryggt að þeir kæmu frá öllum Norðurlöndum. Fyrsti Egils Snorrasonar fyrirlesturinn var haldinn í maí 1982. Síðan hafa fyrirlestrarnir verið árlegur viðburður í starfsemi félagsins. í sambandi við aðalfund félagsins hafa verið fluttir fyrirlestrar úr sögu íslenskra heilbrigðismála sem hafa verið fróðlegir og skemmtilegir. Þá hefur félagið beitt sér mjög fyrir varðveislu minja um sögu lækninga og heilbrigðismála og verður nú í stuttu máli gerð grein fyrir stöðu þeirra mála. Árið 1963 ritaði Kristján Eldjám, þáverandi þjóðminjavörður, menntamálaráðherra bréf og hvatti til þess að ríkið eignaðist Nesstofu. Eftirmaður hans í starfi þjóðminjavarðar, Þór Magnússon, vann einnig ötullega að þeim málum. Þessi áform urðu að veruleika því ríkið eignaðist Nesstofu á árunum 1977-1979. Fljótlega varð Ijóst að Nesstofa hentaði ekki sem safnahús en áhersla var lögð á að hún yrði búin sem líkast því sem hún var á dögum Bjarna landlæknis Pálssonar að húsgögnum og öðru innanstokks. Stefnt skyldi að byggingu sérstaks safnahúss í landi Ness. Árið 1992 skipaði menntamálaráðherra bygg- ingarnefnd til að stjórna byggingarframkvæmdum við uppbyggingu lækningaminjasafns. Bæjarstjórn Seltjarnarness lét af hendi lóð rétt hjá Nesstofu. Teiknað hefur verið glæsilegt og smekklegt safnahús. Því miður hefur framkvæmdum verið frestað að sinni vegna framkvæmda við Þjóðminjasafnshúsið. Nes- stofusafn er deild í Þjóðminjasafni og var formlega opnað 1991. Fastur starfsmaður var ráðinn árinu áður. Alls munu nú vera um 10.000 gripir í safninu. Þeir, ásamt bókum sem safnast hafa, eru geymdir í göml- um útihúsum í Nesi en nú er svo komið að þau hús eru næstum ónýt og liggja safngripir undir skemmd- um. Jón Steffensen ánafnaði Læknafélagi Islands miklum hluta eigna sinna og skyldi féð renna til byggingar lækningaminjasafns í Nesi. Fyrir þetta fé festi Læknafélag Islands nýlega kaup á heppilegu húsnæði í nágrenni Nesstofu fyrir geymslu gripa og bóka, skrásetningu þeirra og aðra starfsemi Nesstofu. Húsnæðið var afhent menntamálaráðherra við athöfn í Nesstofu í ágúst árið 2000 og ráðherra afhenti það síðan Margréti Hallgrímsdóttur þjóðminjaverði til ráðstöfunar. Áfram verður unnið að byggingarmálum safnsins í Nesi en framkvæmdir munu dragast eitthvað eins og áður segir. Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar hefur stutt byggingarmálin af alhug og formenn byggingar- nefndar hafa verið formenn félagsins, þeir Gunn- 702 Læknablaðið 2000/86
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.