Skessuhorn - 19.03.2014, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2014
Helmingi minni
afli í tonnum
LANDIÐ: Fiskafli íslenskra
skipa dróst saman um 25,7% á
föstu verði í febrúar samanborið
við febrúar 2013. Í tonnum talið
dróst afli saman um hvorki meira
né minna en 56,2% og hefur
mikill samdráttur í loðnuafla þar
mest að segja. Botnfisksafli dróst
mun minna saman í febrúar milli
ára heldur en uppsjávarafli, eða
um 10,5%. Magnvísitalan tekur
tillit til verðhlutfalla milli ein-
stakra fisktegunda og þar sem
botnfisksaflinn er verðmætari
en uppsjávaraflinn er samdráttur
aflans á föstu verði mun lægri í
prósentum talið heldur en sam-
dráttur aflans í tonnum. –mm
Atvinnuleysi svipað
LANDIÐ: Skráð atvinnuleysi í
febrúar var 4,5%. Að meðaltali
voru 7.213 atvinnulausir í mán-
uðinum og fjölgaði atvinnulaus-
um um 23 að meðaltali frá janú-
ar en hlutfallstala atvinnuleys-
is breyttist ekki. Fjöldi karla var
svipaður en það var konum sem
fjölgaði á atvinnuleysisskrá um
23 að meðaltali. Karlar voru
3.615 karlar á atvinnuleysisskrá
og konur 3.598. Atvinnuleys-
ið var 4,2% meðal karla í febrú-
ar og 5% meðal kvenna. At-
vinnulausum fækkaði að meðal-
tali um 16 á höfuðborgarsvæðinu
en fjölgaði um 39 að meðaltali á
landsbyggðinni. Atvinnuleysið í
febrúar var 4,7% á höfuðborgar-
svæðinu, en 4,3% á landsbyggð-
inni. Mest var atvinnuleysið á
Suðurnesjum 7,7%, en minnst á
Vestfjörðum, 2,4%. Atvinnuleysi
á Vesturlandi í febrúar var 3,2%
eða það sama og í janúar. –þá
Aflatölur fyrir
Vesturland
8. - 14. mars.
Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu:
Akranes 18 bátar.
Heildarlöndun: 2.774.088 kg.
Mestur afli: Faxi RE:
1.040.573 kg í einni löndun.
Arnarstapi 2 bátar.
Heildarlöndun: 10.896 kg.
Mestur afli: Særif SH: 5.613 kg
í einni löndun.
Grundarfjörður 11 bátar.
Heildarlöndun: 441.449 kg.
Mestur afli: Frosti ÞH:
149.995 kg í þremur löndunum.
Ólafsvík 19 bátar.
Heildarlöndun: 269.082 kg.
Mestur afli: Egill SH: 40.817
kg í tveimur löndunum.
Rif 18 bátar.
Heildarlöndun: 477.004 kg.
Mestur afli: Tjaldur SH:
84.834 kg í einni löndun.
Stykkishólmur 7 bátar.
Heildarlöndun: 98.990 kg.
Mestur afli: Þórsnes SH:
83.137 kg í tveimur löndunum.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Faxi RE – AKR:
1.040.573 kg. 9. mars
2. Lundey NS – AKR:
1.016.573 kg. 10. mars
3. Ingunn AK – AKR:
685.933 kg. 8. mars
4. Tjaldur SH – RIF:
4.834 kg. 13. mars
5. Frosti ÞH – GRU:
61.768 kg. 9. Mars
mþh
Umsóknir um
starfsstyrki
BORGARFJ: „Opið er fyr-
ir umsóknir um starfsstyrki
UMSB og Borgarbyggðar.
Umsóknir má senda á net-
fangið umsb@umsb.is og er
umsóknarfrestur til 1. maí
2014. Allar nánari upplýs-
ingar, úthlutunarreglur og
skilyrði er að finna á www.
umsb.is. Einnig veitir Pálmi
upplýsingar í síma 869-
7092,“ segir í tilkynningu.
–mm
Sækja um í
styrkvegasjóð
DALIR: Byggðarráð Dala-
byggðar samþykkti tillögu
að umsókn í styrkvegasjóð
Vegagerðarinnar á fundi sín-
um sl. þriðjudag. Sótt var um
10,7 milljónir króna til fram-
kvæmda á þessu ári við vegi
í Dalabyggð sem ekki eru á
framfæri Vegagerðarinnar,
en á síðasta ári fékk Dala-
byggð þriggja milljóna króna
styrk úr styrkvegasjóði.
Sveinn Pálsson sveitarstjóri
Dalabyggðar segir að listinn
sé langur frá ári til árs yfir þá
vegi sem þarfnist orðið mik-
illa endurbóta og viðhalds.
Sá listi styttist nánast ekk-
ert. Þessir vegir séu til sveita
framar lögbýla sem enn eru
í ábúð og því ekki lengur á
framfæri Vegagerðar. Veg-
ir sem notaðir séu mikið af
bændum og ferðafólki, fram
á heiðar og afrétti. Aðspurð-
ur sagði Sveinn að fyrir þær
þrjár milljónir sem fengust í
fyrra hafa m.a. tekist að laga
veginn í Flekkudal á Fells-
strönd og Villingadalsveg á
Skarðsströnd. Hann segir að
upphæðirnar skiptist mikið
milli vega og ekki sé hægt að
gera mikið á hverjum stað.
Þá séu peningarnir einkum
fljótir að fara ef t.d. þurfi að
laga ræsi eða koma nýju fyrir
eins og gerðist einmitt varð-
andi aðra stærri framkvæmd-
ina í fyrra.
–þá
Mjólkurkvóta
má nú selja
oftar á ári
LANDIÐ: Nýverið gaf
landbúnaðarráðherra út
breytingu á reglugerð nr.
190/2011 um markaðsfyr-
irkomulag við aðilaskipti
að greiðslumarki mjólk-
ur á lögbýlum. Í breyting-
unni felst að markaðsdög-
um er fjölgað í þrjá á ári, frá
og með yfirstandandi verð-
lagsári. Þannig verða tveir
markaðsdagar fyrir aðila-
skipti innan verðlagsárs-
ins, þann 1. apríl og 1. sept-
ember, og einn markaðs-
dagur fyrir aðilaskipti sem
taka gildi á næsta verðlags-
ári, þann 1. nóvember. „Þeir
sem hyggjast eiga viðskipti
með greiðslumark þurfa að
skila gögnum þar að lút-
andi til Matvælastofnunar
eigi síðar en 25. mars vegna
markaðar 1. apríl, 25. ágúst
vegna markaðar 1. septem-
ber og 25. október vegna
markaðar 1. nóvember,“
segir í tilkynningu. Sjá nán-
ar reglugerð nr. 239/2014.
–mm
Í tilefni af átakinu Mottumars
stendur Krabbameinsfélag Borgar-
fjarðar fyrir fjáröflunartónleikum í
Borgarneskirkju fimmtudaginn 27.
mars klukkan 20:30. Karlakórar
landsins hafa að undanförnu marg-
ir tekið þátt í auglýsingaherferð
fyrir Mottumarsátakið, en Karla-
kórinn Söngbræður gerir enn bet-
ur. Kórfélagar urðu góðfúslega við
þeirri ósk krabbameinsfélagsins að
efna til tónleika í tilefni af Mott-
umars. Ágóði af tónleikunum mun
renna til Krabbameinsfélags Borg-
arfjarðar sem hefur það að aðal-
markmiði að styðja við bakið á ein-
staklingum sem þurfa að ferðast oft
og dvelja langdvölum fjarri heimili
til að leita sér lækninga. Aðgangs-
eyrir á tónleikana er 2.000 krón-
ur og skal bent á að posi er ekki á
staðnum. Allir eru velkomnir með-
an húsrúm leyfir.
mm
Á fundi byggðarráðs Dalabyggð-
ar sl. þriðjudag var kynntur undir-
ritaður rekstrarsamningur um upp-
lýsingamiðstöð og veitingaþjón-
ustu í Leifsbúð við Valdísi Gunn-
arsdóttur. Sveinn Pálsson sveitar-
stjóri segir að samningurinn sé til
skamms tíma, eða út þetta ár. Hann
sé mjög svipaður fyrri samningi,
m.a. ákvæði um lágmarks opnun-
artíma utan hefðbundins ferða-
mannatíma. Valdís tekur við rekstri
Leifsbúðar og upplýsingamið-
stöðvarinnar af Freyju Ólafsdóttur,
en samkomulag var milli hennar og
sveitarstjórnar um riftun samnings-
ins um síðustu áramót. Sá samning-
ur var til þriggja ára en var rift eftir
tæpt ár af gildistíma. Fulltrúar eig-
enda Leifsbúðar, sveitarstjórnarfólk
í Dalabyggð, taldi að fyrrum rekstr-
araðili hefði ekki farið eftir ákvæði
í samningum um lágmarks opn-
unartíma utan hefðbundins ferða-
mannatíma og var það aðalástæðan
fyrir riftun samningsins.
þá
Almenningur hefur þá skyldu að
láta vita ef grunur leikur á um van-
rækslu búfjár. Í síðustu viku voru
tvö hross á þrítugsaldri á Mýr-
unum felld í kjölfar þess að Mat-
vælastofnun var gert viðvart um
óeðlilegan hófvöxt og þar af leið-
andi vanrækslu eiganda hrossanna.
Dýraeftirlitsmaður mætti á svæð-
ið. Hrossin reyndust í þokkalegu
holdafari en hófar þeirra mjög illa
farnir. Í samráði við eiganda voru
hrossin því aflífuð. Þegar þann-
ig háttar til að hófar vaxa of mikið
fram er ekki hægt að bjarga hross-
unum. Sé reynt að rétta hófstöðu
eftir það eru miklar líkur á að
hrossin fái hófsperru. Það er afar
sársaukafullt ástand og oft erfitt að
meðhöndla að sögn dýralækna. Er
þá í raun ekkert hægt að gera ann-
að en að fella hrossin. Þetta tilfelli
á Mýrunum mun ekki vera það
fyrsta á Vesturlandi á þessu ári,
þar sem aflífa hefur þurft hross af
sömu ástæðum.
mm
Þegar aflabrögð eru
góð, eins og hefur
undanfarið verið við
Snæfellsnesið, þarf að
skipta um veiðarfæri
öðru hverju. Það
gerði einmitt áhöfnin
á dragnótarbátnum
Esjari SH frá Rifi fyrir
helgina. Hér má sjá
skipverjana Vagn,
Þráin, Anton og Davíð
Óla vinna við að
skipta um dragnótina.
Afli Esjars hefur verið
með afbrigðum góður
eða allt að 20 tonn í
róðri og hafa þeir oft
á tíðum tekið fá köst
til að fylla bátinn af
fiski.
af
Nýr rekstraraðili í Leifsbúð
Vanræksla að snyrta ekki hófa á útigangi
Vel hefur fiskast á Esjari
Söngbræður hér á tónleikum á Mýrum í júní 2012.
Hraustir menn í flutningi Söngbræðra
til stuðnings krabbameinsfélagi