Skessuhorn - 14.05.2014, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 20. tbl. 17. árg. 14. maí 2014 - kr. 600 í lausasölu
„Við mælum með því að þú
setjir ekki meira en ��� af
ráðstöfunartekjum í húsnæði,
aðallega vegna þess að það
er dýrt að lifa.“
Jóhanna Hauksdóttir
fjármálaráðgjafi
ARION
ÍBÚÐALAUSNIR
Allt um íbúðalán á arionbanki.is
ratiopharm
Fæst án lyfseðils
25%
afsláttur
Omeprazol ratiopharm
Bjóðum nú
upp á ís frá
Kirkjubraut 11 - Akranesi
Sími 431 4343
VIÐ FÖGNUM
SUMRI Á SKAGA
Sjá bls. 3
Stórsýning Rafta og Fornbíla fjélags
Borgarfjarðar fór fram í Brákarey í
Borgarnesi á laugardaginn. Tal-
ið er að um 2.000 manns hafi lagt
leið sína á sýninguna þar sem sjá
mátti fjölda mótorhjóla og forn-
bíla af öllum stærðum og gerðum.
Til að skapa réttu stemninguna lék
borgfirska hljómsveitin Grasasnar
nokkur vel valin lög fyrir sýning-
argesti. Hljómsveitarpallurinn var
ekki af verri endanum eins og sjá
má, glæsileg Ford vörubifreið ár-
gerð 1947. Sýningin þótti lukkast
vel. Nánar er fjallað um hana á bls.
20-21. hlh / Ljósm. mm.
Frestur til að skila framboðslistum til
kjörstjórna í sveitarfélögum lands-
ins rann út á hádegi sl. laugardag.
Í tveimur sveitarfélögum á Vestur-
landi, sem bæði hafa upp undir 700
íbúa, bárust engir framboðslistar
og verður því kosið óhlutbundnum
kosningum 31. maí næstkomandi.
Þetta eru Dalabyggð og Hvalfjarð-
arsveit. Fremur sjaldgæft er að ekki
bjóði fram listar í þetta fjölmennum
sveitarfélögum. Sama fyrirkomulag
var viðhaft í Dalabyggð fyrir fjórum
árum en þetta er í fyrsta skipti frá
sameiningu fjögurra hreppa í Hval-
fjarðarsveit sem kosið verður óhlut-
bundnum kosningum. Bæði í Döl-
um og Hvalfjarðarsveit er þetta gert
eftir að stór hópur íbúa hvatti til
þess. Þau sveitarfélög á Vesturlandi
þar sem kosið verður milli fram-
boðslista eru: Snæfellsbær, Grund-
arfjörður, Stykkishólmsbær, Borgar-
byggð, Akraneskaupstaður og Eyja-
og Miklaholtshreppur þar sem lista-
kosningar fara fram í fyrsta skipti frá
landnámsöld, eins og einn heima-
maður orðað það. Samanlagt eru
19 framboðslistar í boði í þessum
sveitarfélögum; tvö í Stykkishólmi,
Grundarfirði og Eyja- og Mikla-
holtshreppi, fjögur í Snæfellsbæ og
Borgarbyggð og fimm á Akranesi.
Önnur sveitarfélög en Dalabyggð
og Hvalfjarðarsveit þar sem kosið
verður óhlutbundnum kosningum
eru Skorradalshreppur og Helga-
fellssveit auk Reykhólahrepps. Í
þeim síðast talda telst til tíðinda að
allir aðalmenn í sveitarstjórn biðjast
undan endurkjöri eins og þeir eiga
rétt á samkvæmt lögum.
Lýst eftir áhugasömum
Á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðar-
sveitar nýlega var samþykkt að kom-
ið verði upp sérstakri gátt á heima-
síðu sveitarfélagsins, ef niðurstaðan
yrði sú að persónukjör verið viðhaft,
eins og nú hefur komið í ljós. Þar
geta þeir sem sérstaklega vilja bjóða
fram krafta sína til kjörs í sveitar-
stjórn fengið rými til kynningar á sér
og helstu stefnumálum. Þessi tillaga
var lögð fram að Sævari Ara Finn-
bogasyni fulltrúa í meirihluta sveit-
arstjórnar og samþykkt með atkvæði
hans og þriggja fulltrúa minnihlut-
ans. Þrír meirihlutafulltrúar sátu hjá
við afgreiðsluna.
Sveinn Pálsson sveitarstjóri í
Dalabyggð segir að fyrir síðustu
sveitarstjórnarkosningar hafi þeir
sem buðu sig fram til sveitarstjórn-
ar fengið nafn sitt skráð á svæði á
heimasíðunni en ekki var gefinn
kostur á miklu umfram það á síð-
unni. Þetta fyrirkomulag hafi ekki
verið rætt ennþá, en Sveinn kvaðst
reikna með að þetta yrði í svip-
uðu formi nú og fyrir fjórum árum.
Andrea Björnsdóttir oddviti í Reyk-
hólahreppi segir að frambjóðendur
séu ekki kynntir á heimasíðu sveit-
arfélagsins, það fréttist hverjir sýni
setu í sveitarstjórn áhuga.
Til nánari skýringar á persónu-
kjöri til sveitarstjórnar má geta þess
að þar eru allir í kjöri sem náð hafa
kosningaaldri. Þeir sem setið hafa í
sveitarstjórn geta þó beðist undan
kjöri í jafnlangan tíma og seta þeirra
í sveitarstjórn nær til.
Sjá nánar um kosningar á bls. 10.
mm/þá
Það var athyglisvert tvíeyki sem
varð á vegi fréttaritara Skessuhorns
á dögunum þegar hann gekk með-
fram fjörunni á Framnesi í Grund-
arfirði. Þá var Ingi Hans Jónsson
sagnameistari í hrókasamræðum
við súlu eina sem virtist ekkert of
kát með nærveru hans, en svaraði
þó fyrir sig. Eitthvað virtist hrjá súl-
una því hún gat ekki forðað sér frá
ágangi sagnameistarans. Því miður
náði fréttaritari ekki að heyra orða-
skil. Kannski var sagnameistarinn
að segja við súluna að betra væri að
halda sig í Kolgrafafirði. Hver veit?
tfk
Fjölmenni í Brákarey
Súla og sagnameistari
Persónubundnar kosningar í fimm
sveitarfélögum en listakosningar í sex