Skessuhorn - 14.05.2014, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2014
Tveir listar í boði
EYJA- OG MIKL: Kjörstjórn
í Eyja- og Miklaholtshreppi á
Snæfellsnesi bárust tveir fram-
boðslistar fyrir lokafrest til að
skila inn framboðum, á há-
degi sl. laugardag. Því verður
kosið þar listakosningu í fyrsta
skipti í sögunni. Að sögn Jóns
Oddssonar í Kolviðarnesi af-
greiddi kjörstjórn listana form-
lega á fundi sínum sl. mánu-
dag. Annars vegar býður fram
F – listi undir nafninu Sveitin.
Efsti maður á F lista er Þröstur
Aðalbjarnarson bóndi á Stakk-
hamri en oddvitaefni listans er
Halldór Jónsson á Þverá. Hins
vegar býður fram H listi sem
nefnir sig Betri byggð. Oddviti
þess lista er Eggert Kjartans-
son bóndi á Hofsstöðum. Fimm
skipa hreppsnefnd Eyja- og
Miklaholtshrepps þar sem íbúar
voru 148 um síðustu áramót.
–mm
Gæðingamót
Faxa og Skugga
BORGARBYGGÐ: Hesta-
mannafélögin Faxi og Skuggi
halda gæðingamót laugardaginn
24. maí nk. Er hér um sameig-
inlegt mót félaganna að ræða.
Keppt verður í barnaflokki,
unglingaflokki, ungmenna-
flokki, B flokki gæðinga og A
flokki gæðinga. Átta efstu kepp-
endur í hverjum flokki keppa
til úrslita. Jafnframt fer fram
Hryssukeppni Faxa samkvæmt
reglum sem um þá keppni gilda.
Nánari upplýsingar um keppn-
isgreinar og skráningar birtast
í vikunni en opnað verður fyr-
ir skráningar fimmtudaginn 15.
maí. –fréttatilkynning
Ríflega ein sala
á dag
VESTURLAND: Á Vestur-
landi var 37 samningum um
fasteignaviðskipti þinglýst í
apríl. Þar af voru 19 samningar
um eignir í fjölbýli, átta samn-
ingar um eignir í sérbýli og tíu
samningar um annars konar
eignir. Heildarveltan í þessum
viðskiptum var 677 milljónir
króna og meðalupphæð á samn-
ing 18,3 milljónir. Af þessum 37
voru 19 samningar um eignir á
Akranesi. Þar af voru 14 samn-
ingar um eignir í fjölbýli, fjóri
samningar um eignir í sérbýli
og einn samningur um annars
konar eign. Heildarveltan var
377 milljónir króna og meðal-
upphæð á samning 19,8 millj-
ónir króna. -mm
Æði misjöfn þró-
un í gistiþjónustu
LANDIÐ: Gistinætur á hót-
elum landsins í mars voru
190.117 sem jafngildir 13%
aukningu miðað við mars 2013.
Gistinætur erlendra gesta voru
83% af heildarfjölda gistinátta
í mánuðinum en þeim fjölgaði
um 18% frá sama tíma í fyrra á
meðan gistinóttum Íslendinga
fækkaði um 3%. Athygli vekur
að af þessari aukningu mælist
20% aukning á höfuðborgar-
svæðinu, 18% aukning á Suður-
landi og 3% aukning á Vestur-
landi/Vestfjörðum. Samdráttur
er milli ára upp á 33% á Aust-
urlandi, 23% á Norðurlandi en
Suðurnesin standa nánast í stað.
Fjölgun ferðamanna í mars var
því nær eingöngu á höfuðborg-
arsvæðinu og á Suðurlandi.
–mm
Sex um aðstoðar-
skólastjóra
STYKKISH: Á fundi bæjar-
ráðs Stykkishólms sl. fimmtu-
dag voru kynntar umsóknir um
stöðu aðstoðarskólastjóra við
grunnskólann. Sex umsókn-
ir bárust um starfið og eru um-
sækjendur Ásdís Snót Guð-
mundsdóttir, Berglind Axels-
dóttir, Guðmundur B. Sigur-
björnsson, Íris Reynisdóttir,
Sigríður Elísabet Ragnarsdótt-
ir og Þóra Margrét Birgisdótt-
ir. Lárus Ástmar Hannesson
bæjarstjóri, Gunnar Svanlaugs-
son skólastjóri og Hrafnhildur
Hallvarðsdóttir formaður skóla-
nefndar hafa farið yfir umsókn-
ir. Ákveðið var að fela Hagvangi
frekari úrvinnslu þriggja um-
sókna og mun Hagvangur skila
niðurstöðum á næstunni sem
hafðar verða til hliðsjónar við
ráðningu aðstoðarskólastjóra,
segir í fundargerð bæjarráðs.
–þá
Átta óku of hratt
LBD: Átta ökumenn voru
stöðvaðir fyrir of hraðan akst-
ur í umdæmi lögreglunnar í
Borgafirði og Dölum í liðinni
viku. Sá sem hraðast ók var á
134 km hraða á þjóðveginum og
má hann búast við sekt upp á 70
þúsund krónur og auk þess að
fá tvo punkta í ökuferilsskrána.
Þá fjarlægði lögregla skráning-
arnúmer af tveimur bifreiðum
þar sem eigendur þeirra höfðu
ekki gert ráðstafanir með að
færa þær til aðalskoðunar og
auk þess voru bílarnir ótryggð-
ir. –þá
Stútar undir stýri
AKRANES: Tveir ökumenn
voru stöðvaðir vegna ölvun-
ar við akstur af lögreglunni á
Akranesi í liðinni viku. Annar
var tekinn á akstri fyrir utan bæ-
inn og reyndist auk þess talsvert
yfir löglegum ökuhraða, þann-
ig að hann þarf einnig að borga
hraðasekt. Þá var ölvaður öku-
maður stöðvaður á akstri innan-
bæjar sl. sunnudag. –þá
Ferðaþjónustuaðilar í Stykkishólmi
komu saman til sérstaks samhrist-
ings á sunnudaginn í tilefni þess að
ný vefsíða Upplýsingamiðstöðvar
ferðamanna fyrir Stykkishólm var
sett í loftið. Af sama tilefni var Upp-
lýsingamiðstöðin formlega opnuð í
Íþróttamiðstöðinni. Dagskrá sam-
hristingsins hófst í upplýsinga-
miðstöðinni en færðist yfir á Hót-
el Stykkishólm þar sem flutt voru
erindi tengd ferðamennsku í bæn-
um. Annars vegar fór fram kynning
á verkefninu Gönguleiðir á Snæ-
fellsnesi á vegum Eldfjallasafnsins
í Stykkishólmi, en það voru Har-
aldur Sigurðsson eldfjallafræðingur
og Anna Melsteð sem kynntu. Hins
vegar fór fram kynning á möguleik-
um í markaðssetningu á internetinu
sem bloggarinn og ferðaþjónustu-
frömuðurinn Auður Ösp sá um.
Að lokum fluttu meðlimir Eflingar
Stykkishólms, félags um framfara-
mál á sviði atvinnu- og menning-
arlífs í Stykkishólmi og nágrenni,
nokkur örerindi um fyrirtæki innan
vébanda félagsins.
Að sögn Bjarneyjar Ingu Sigurð-
ardóttur upplýsinga- og markaðs-
fulltrúa Stykkishólmsbæjar og for-
stöðumanns upplýsingamiðstöðv-
arinnar tókst dagurinn vel og mun
hann vonandi gefa gott start fyrir
ferðamannasumarið í bænum. Hún
vonast til að nýja síðan muni þjóna
gestum bæjarins vel. „Á heimasíð-
unni er hægt að fá að vita hér um
bil allt um bæinn, upplýsingar um
þjónustu, sögu og annað. Einnig
verður hægt að skoða fjölda fallegra
mynda frá bænum,“ segir Bjarn-
ey sem hannaði síðuna sjálf með
góðri aðstoð heimamanna. „Síða
sem þessi er reyndar alltaf í þróun
og vonast ég til að íbúar jafnt sem
gestir bæjarins verði duglegir við
að senda mér línu með uppástung-
um um hvernig bæta og þróa megi
hana. Það eru nefnilega hæg heima-
tökin með betrumbætur ef svo ber
undir.“ Slóðin á vefsíðuna er www.
visit.stykkisholmur.is
Upplýsingamiðstöðin í Stykk-
ishólmi verður opin hér eftir alla
daga fram til ágústloka, á virkum
dögum frá kl. 9-17 og vonandi
helgar einnig, en það mál skýr-
ist á næstu dögum, segir Bjarn-
ey Inga.
hlh /Ljósm. Eyþór Ben.
Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur kynnir verkefnið Gönguleiðir á Snæfells-
nesi.
Ný vefsíða fyrir ferðamenn
í Stykkishólmi
Bjarney Inga Sigurðardóttir í upplýsingamiðstöð ferðamanna í Stykkishólmi.