Skessuhorn - 23.07.2014, Page 23
23MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2014
Sveitarstjórnarmaður í Eyja- og
Miklaholtshreppi fór þess á leit
á síðasta fundi sveitarstjórnar að
skoðað væri hvort hægt væri að
breyta póstnúmeri svæðisins og
flokka sveitarfélagið með Snæfells-
nesi. Eggert Kjartansson oddviti er
að skoða málið. Að hans sögn er
beiðnin í raun eðlileg, sérstaklega
varðandi ferðaþjónustuna. „Það
villir svolítið fyrir ferðamönnum
sem eru að leita að okkur hér að við
erum staðsett í póstnúmeri 311 sem
flestir tengja við Borgarfjörð en
ekki Snæfellsnes. Fólk er því ekki
að staðsetja okkur landfræðilega á
réttum stað.“ Aðspurður hvort íbú-
ar sveitarfélagsins sæktu ekki frekar
þjónustu í Borgarnes, sagði Eggert
það vera nokkuð skipt. „Við erum
undir sýslumanns- og lögreglu-
embættinu í Stykkishólmi og sækj-
um því þau mál þangað. Fólk fer
ýmist í Borgarnes eða Stykkishólm
til innkaupa og svo erum við einn-
ig með ýmsa samninga við Borgar-
byggð, t.d. varðandi heilsugæslu og
dvalarheimilið. En engin ákvörð-
un hefur verið tekin í málinu. Ég
er enn að skoða þetta. Hvort breyt-
ingin sé yfirleitt gerleg eða of flók-
in.“ bgk
Um miðja síðustu viku hófst raf-
orkuframleiðsla í Bugavirkjun
á Leirárgörðum í Hvalfjarðar-
sveit. Magnús Hannesson, bóndi á
Eystri-Leirárgörðum, segir að enn
eigi þó eftir að fínstilla stjórnstöð
virkjunarinnar sem stýri fram-
leiðslunni og það verði auðveld-
ara á næstu dögum þegar ljósleið-
aratenging kemst á. Magnús seg-
ir að framleiðslan þessa dagana sé
um 35 kílóvött en áætlanir gerðu
ráð fyrir 40 kílóvatta framleiðslu.
Sú orka á að nægja til lýsingar og
reksturs á bæjunum á Leirárgörð-
um. Umframorka verður seld inn
á kerfi Rarik og bæirnir á Leirár-
görðum fá orku miðlað um netið
í báðar áttir verði truflanir á fram-
leiðslu Bugavirkjunar.
Eins og greint hefur verið frá í
Skessuhorni hófust framkvæmdir
við virkjunina síðsumars 2012 og
hafa staðið síðan með nokkrum töf-
um sem urðu á framkvæmdum vet-
urinn 2012-2013, m.a. vegna kæru-
mála sem upp komu. Frá því end-
anlegt framkvæmdaleyfi var stað-
fest síðasta vor hefur verið nokkuð
stöðugur gangur í framkvæmdum
og á þeim tíma m.a. verið byggt
stöðvarhús og inntak á aðfallslögn
frá stíflunni. Túrbína virkjunar-
innar var keypt frá framleiðandan-
um Clink Hydro í Tékkóslóvakíu.
Raforkuframleiðslan hófst sl. mið-
vikudag en daginn áður var vatni
hleypt í lón virkjunarinnar við
Bugalæk, en það er aðeins um einn
hektari að flatarmáli. Þá er fall-
hæð frá stíflu niður í stöðvarhús-
ið að túrbínu um 36 metrar. Með
aflsetningu á Bugavirkjun er að
baki margra ára barátta bændanna
á Eystri- og Vestari-Leirárgörð-
um. Þeir voru lengi búnir að hafa
augastað á því að virkja Bugalæk-
inn en ýmis ljón voru á veginum
til að fá endanlegt samþykki fyr-
ir virkjuninni. Magnús Hannes-
son á Eystri-Leirárgörðum segir
ótrúlegan fjölda leyfa þurfti til að
byggja jafn litla vatnsaflsvirkjun og
Bugavirkjun er.
þá
Deiliskipulagstillögur í Reykhólahreppi
Hreppsnefnd Reykhólahrepps samþykkti á fundi sínum 10. apríl 2014 að
auglýsa eftirfarandi tillögur að deiliskipulagi.
Þéttbýlið á Reykhólum, útivistarsvæði og Sjávarböð.
Skipulagssvæðið nær yfir stóran hluta af Langanesi og Tittlingastaðarnesi sunnan byggðar Reykhóla allt frá
syðstu þéttþýlismörkum Reykhóla niður að sjó við Karlsey. Heildarstærð skipulagssvæðisins eru 324,11 hektarar.
Í deiliskipulagstillögunni er gert ráð fyrir að allt svæðið sé ætlað fyrir almenna útivist í sátt við umhverfið og
náttúru svæðisins og einnig afmörkun á 10.000m² lóð undir þjónustubyggingu Sjávarbaða sem er skilgreind með
takmörkuðu byggingamagni. Innan lóðarinnar má byggja þjónustubyggingu Þ1, smáhýsi G1-2, laugar og potta
ásamt bílastæðum sem þjóna Sjávarböðunum. Lóðinni er annars vegar skipt upp í framkvæmdarsvæði og hins
vegar náttúrusvæði, þar sem byggingin markar skil milli þessara tveggja svæða.
Eftir framkvæmdir mun strandlengjan á Langanesi og Tittlingastaðarnesi verða aðgengileg til almennrar úti-
vistar í sátt við náttúruna.
Frístundarsvæði í landi Kirkjubóls á Bæjarnesi.
Svæðið er í hlíðum Bæjarnesfjalls og liggur við Kvígindisfjörð og er ströndin þar um 800m að lengd.
Gert er ráð fyrir 25 frístundahúsum sem koma til með að dreifast nokkuð jafnt um svæðið.
Gert er ráð fyrir að byggðin falli vel að umhverfi sínu og umhverfisáhrif lágmörkuð.
Heildarstærð skipulagssvæðisins er 300 ha að stærð.
Þéttbýlið á Reykhólum, Hellisbraut.
Skipulagssvæðið liggur við nyðri enda Hellisbrautar að Maríutröð í þéttbýlinu á Reykhólum.
Í deiliskipulagstillögunni er gert ráð fyrir tveimur fjögurra íbúða raðhúsalóðum ásamt sjö einbýlishúsalóðum
með aðkomu frá Hellisbraut. Á skipulaginu eru afmörkuð fimm einbýlishús sem þegar eru byggð. Heildarstærð
skipulagssvæðis er 2 ha að stærð.
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst eftir athugasemdum við tillögurnar.
Skipulagsuppdrættir og greinargerð liggja frammi á skrifstofu Reykhólahrepps frá 24. júlí til 5. sept 2014.
Ennfremur verða gögnin aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins www.reykholar.is.
Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu Reykhólahrepps að Maríutröð 5a, 380 Reykhólar eða á netfangið
skrifstofa@reykholar.is merkt “deiliskipulag’’ og því skipulagi sem um ræðir.
Reykhólar, 14. júlí 2014
Bogi Kristinsson Magnusen
Skipulags- og byggingarfulltrúi
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
4
Norðurálsvöllur
Pepsideild kvenna
ÍA - FH
Þriðjudaginn 29. júlí kl. 19.15
Allir á völlinn
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Aðalstyrktaraðili leiksins er MODEL
Norðurálsvöllur
1. deild karla
ÍA – Grindavík
Fimmtudaginn 24. júlí kl. 19.15
Allir á völlinn
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Aðalstyrktaraðili leiksins er VÍS
OPIÐ ALLA DAGA
11.00 - 18.00
SK
ES
SU
HO
RN
2
01
4
Hannyrðavörur
í úrvali
Opið:
Mánud. – föstud. kl. 9 – 18
Lokað á laugard. til 31. ágúst
Ármúla 18, 108 Reykjavík - Sími 511 3388
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
4
Eyja- og Miklaholtshreppur
skoðar breytingu á póstnúmeri
Túrbína og rafall virkjunarinnar í nýja
stöðvarhúsinu.
Raforkuframleiðsla hafin í Bugavirkjun
Hér sést stíflan og yfirfallið neðan við
aðveitulón Bugavirkjunar.