Skessuhorn - 27.08.2014, Qupperneq 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 35. tbl. 17. árg. 27. ágúst 2014 - kr. 600 í lausasölu
HAGKVÆM
BÍLAFJÁRMÖGNUN
Fæst án lyfseðils
LYFIS
Hvalfjarðar-
dagar
29. - 31. ágúst
Fjölbreytt dagskrá
um alla sveit
Unnið var að því í vikunni sem leið
að fegra umhverfið við höfnina í
Rifi. Malarplan sem staðið hef-
ur nánast ónotað síðan höfnin var
gerð hefur nú fengið nýtt hlutverk.
Búið er að grafa á staðnum og búa
til hóla sem mynda skjólvegg fyrir
sælureit við höfnina. Þar verða svo
sett upp söguspjöld þar sem vegfar-
endur geta lesið sig til um höfnina
og svæðið í kring.
Starfsmenn verktakafyrirtækisins
Stafnafells hófu framkvæmdir síð-
asta miðvikudag og er svæðið þeg-
ar farið að taka á sig aðra mynd. Að
sögn Bjarna Vigfússonar, eiganda
Stafnafells, gengur vel að fegra
svæðið enda grasþökurnar í sælu-
reitnum einstaklega góðar. „Gras-
þökurnar koma af Suðurlandi, nán-
ar tiltekið undan Eyjafjallajökli og
eru fullar af næringarríkri ösku úr
gosinu 2011. Askan virkar eins og
besti áburður og því verða þökurn-
ar fljótar að festa sig,“ segir Bjarni.
Stefnt er að því að framkvæmdum á
svæðinu ljúki nú í vikunni.
jsb
Að margra mati voru tveir síð-
ustu virku dagarnir í liðinni viku,
fimmtudagurinn og föstudag-
urinn, með þeim bestu í sumar.
Þessa daga nýttu margir til þess
að fara á berjamó. Þegar blaða-
maður Skessuhorns
var að koma úr efn-
isöflunarferð í Dal-
ina á föstudaginn
hitti hann á fólk sem
var í berjum skammt
frá veginum þar sem
ekið er upp á Bröttu-
brekku. Þarna reynd-
ust vera á ferð syst-
ur tvær sem gjarnan
kenna sig við húsið
Melstað á Akranesi ásamt mönn-
um sínum. Systurnar eru Dröfn og
Bjarney Steinunn Einarsdætur en
þær fæddust og ólust upp á Mel-
stað sem stendur enn við Suður-
götu. Dröfn býr með manni sínum
Elíasi Jóhannessyni á Hjarðarholti
8 á Akranesi en Bjarney Steinunn
með sínum manni Páli Helgasyni í
Mosfellsbænum.
„Þetta er má segja gullbrúð-
kaupsferð hjá okkur,“ sagði Elí-
as þar sem blaðamaður stoppaði í
vegkantinum við Bröttubrekku og
átti tal við berjatínslufólkið. Það
var þarna að enda sína ferð eft-
ir að hafa verið í berjum í Dölun-
um í tvo daga og tínt um það bil
45 lítra í túrnum, mest á Laugum í
Sælingsdal. „Við fórum á Laugar á
fimmtudagsmorgun og gistum þar.
Höfðum það náðugt
í veðurblíðunni þar
í heita pottinum og
á hótelinu. Það var
gnægð af berjum í ná-
grenni Lauga og ekki
amalegt að tína ber
í þessari veðurblíðu
sem var báða dag-
ana. Þegar við fór-
um í gegnum Búð-
ardal í bakaleiðinni,
renndum við niður á bryggju. Þar
var lognið þvílíkt að ekki var gáru
að sjá langt út eftir firði. Staðar-
maður sem við hittum sagðist ekki
muna eftir öðru eins logni í Búðar-
dal. Já, það má segja að þessi ferð
hafi eiginlega verið einskonar upp-
hitun fyrir gullbrúðkaupið okkar,“
sagði Elías. Það var systrabrúð-
kaup í Akraneskirkju 8. maí 1965
þegar þær Dröfn og Bjarney Stein-
unn giftust mönnum sínum. Það
styttist því í tvöfalt gullbrúðkaup
þeirra systra.
þá
Þau voru alsæl á berjamónum við rætur Bröttubrekku, systurnar Bjarney Steinunn til vinstri og Dröfn Einarsdætur ásamt mönnum sínum, Páli Helgasyni til hægri og
Elías Jóhannessyni.
Grasþökurnar koma úr sveitinni við
Eyjafjallajökul og eru fullar af nær-
ingarríkri ösku úr gosinu 2011. Greina
má öskulagið í túnþökunum.
Aska úr Eyjafjallajökli notuð
við gerð sælureits í Rifi
Bjarni Vigfússon, Eyjólfur Gunnarsson og Vigfús Bjarnasson. Auk þeirra var Jón
Eggertsson á krananum.
Tvöfalt gullbrúð-
kaup á berjamó
Restaurant Munaðarnes
Borgarfirði
525 8441 / 852 1601
Njótið veitinga
í fallegu umhverfi
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
OPIÐ
Föstudaga 17 – 22
Laugardaga og sunnudaga 14 - 22