Skessuhorn - 27.08.2014, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2014
Nýtt fyrirkomulag endurgreiðslna fyrir refaveiðar til sveitarfélaga
Að undanförnu hefur Umhverf-
isstofnun verið að senda sveitar-
félögum drög að samningum um
refaveiðar og fyrirkomulag endur-
greiðslu fyrir unnin dýr. Skráningu
átti að ljúka sl. mánudag. Sveitar-
félögum hefur verið skipt niður
í flokka eftir fjölda íbúa á ferkíló-
metra og raðað niður í mismunandi
endurgreiðsluhlutfall. Greiðslum
er þannig skipt á sveitarfélögin eft-
ir fjórum flokkum. Greiðslur verða
aldrei hærri en 33%, þar sem fá-
mennustu og landstærstu sveitar-
félögin fá mest endurgreitt. Sam-
kvæmt þessari flokkun myndi Borg-
arbyggð fá 20% greitt til baka, Eyja-
og Miklaholtshreppur og Dala-
byggð fengju 30% en Hvalfjarðar-
sveit 10%, ef þau myndu semja um
endurgreiðslugjaldið. Fyrirkomu-
lagið verður með þeim hætti að
hvert sveitarfélag sendir inn kostn-
aðarreikninga og fær síðan endur-
greitt eftir þeim hlutföllum sem
áður voru nefnd. Margir fagna því
að ríkið sé aftur að koma inn með
endurgreiðslur til þessa málaflokks
en öðrum finnst sem ekki sé nóg að
gert og segja að enn njóti vargur-
inn vafans.
Fjöldi dýra skiptir ekki
máli í nýrri flokkun
Nokkra athygli hefur vakið að sam-
kvæmt nýjum reglum verður ein-
ungis flokkað eftir landsstærð og
íbúafjölda en ekki eftir fjölda refa
sem veiddir hafa verið í viðkom-
andi sveitarfélagi á undanförnum
árum. Steinar Rafn Beck, sérfræð-
ingur hjá Umhverfisstofnun, segi
að sveitarfélög geti unnið sig aðeins
upp með meiri og betri upplýsinga-
skilum s.s. eins og með mati á tjóni
og grenjaskráningu en þessi niður-
staða hafi orðið ofan á í þetta sinn.
Verkefnið sé aðeins til þriggja ára og
að þeim tíma liðnum verði farið yfir
allt og málin skoðuð. Einnig hefur
borið á óánægju yfir því að samn-
ingnum geti fylgt meiri vinna en
áður var og ávinningur sveitarfélag-
anna verði þar af leiðandi lítill. Með-
al annars eiga menn að skila hræj-
um af refnum og misjafnt sé hversu
landstór sveitarfélögin séu og kostn-
aður við slíkt er því mikill. Stein-
ar telur ekki að svo þurfi að verða.
„Náttúrufræðistofnun getur kallað
eftir hræjum til að afla betri upplýs-
inga en það á ekki að hafa kostnað-
arauka í för með sér. Meiningin er
að nýta náttúrustofurnar á hverjum
stað. Þá yrði látið vita fyrirfram en
þessar reglur hafa ekki alveg verið
mótaðar ennþá.“
Skylda að gefa um
staðsetningu grenja
Nokkur gagnrýni hefur heyrst frá
veiðimönnum þess að beðið er um
hnitsetningu á grenjum. Menn
eru ekki alveg tilbúnir að gefa upp
staðsetningu þeirra grenja sem þeir
eru að vinna hverju sinni. Sam-
kvæmt því sem fram kom í viðtali
við Steinar hefur það alltaf verið
í lögum að gefa upp staðsetning-
ar þótt ekki hafi verið farið eftir
því. „En hér á að ríkja algjör trún-
aður. Við höfum fullan skilning á
þessu og að menn vilji ekki útvarpa
staðsetningu grenja. En höfum þó
rétt til að veita Náttúrufræðistofn-
un Íslands aðgang að grenjaskrám
sveitarfélaga. Með þessu viljum við
sjá dreifingu á grenjum á landinu.
Það er nauðsynlegt að gera sér ein-
hverja grein fyrir þéttleika og um-
fangi milli sveitarfélaga.“
Hvernig á að meta
tjónið sem refurinn
veldur?
Talað er um í þeim samningsdrög-
um sem send hafa verið til sveit-
arfélaganna að skrá skuli tjón sem
refurinn veldur. Mörgum finnst að
þetta sé erfitt að meta t.d. hvert
tjónið er í villtum fuglastofnum.
Steinar tekur undir að svo geti
orðið. „Hér erum við frekar að tala
um tjón á t.d. æðarfugli og bústofni
eins og sauðfé heldur en öðru, því
tjónið á villtum dýrastofnum er
erfitt að meta. En með þessum að-
gerðum erum við að þrýsta á sveit-
arfélögin að halda utan um þetta,
þar sem aldrei hefur verið sett
neitt niður á blað um tjónið. Það
er einnig allt í lagi fyrir sveitarfé-
lögin að taka fram fleiri hluti eins
og ef fuglalífi hefur hrakað áber-
andi á einhverju svæði. Með þess-
um aðgerðum vonumst við til þess
að fá einhverja betri mynd eftir
þessi þrjú ár.“
Landsyfirvöld
geta hætt við
Í samningsdrögum sem send hafa
verið til sveitarfélaganna segir
orðrétt í 3. grein: „Komi upp atriði
sem geta breytt forsendum samn-
ings svo sem breyting á framlagi
ríkisins í fjárlögum, fjöldi sveitar-
félaga sem taka þátt í verkefninu
eða áætlun sveitarfélags breytist,
skal samningurinn endurskoðað-
ur.“ Steinar segir að allir voni að
verkefnið fái að klára sín þrjú ár.
Það er búið að áætla 90 milljón-
ir í verkið, 30 milljónum á ári. En
í þessu sé kannski ekkert tryggt.
„Það hefur svo sem gerst áður að
svona verkefni hafa ekki fengið
sína framgöngu, en við vonum að
það verði ekki núna. Það er búið
að eyrnamerkja þessa peninga. En
almennt eru menn jákvæðir yfir
þessu verkefni þótt fólki finnist að
lítið fjármagn hafi verið sett í það.
Það er einnig verið að leggja til
að sveitarfélög efli samvinnu sín á
milli varðandi refaveiðar. Það get-
ur skipt máli. Og einhversstaðar
verður að byrja. Kannski er þetta
ekki módelið sem virkar, við sjáum
það að þremur árum liðnum,“ seg-
ir Steinar Rafn Beck sérfræðingur
að endingu.
bgk
Yrðlingur í sigtinu. Ljósm. Skotfélagið Skyttur.
Áfram frest á
nauðungarsölur
Hagsmunasamtök heimilanna hafa
sent Hönnu Birnu Kristjánsdótt-
ur innanríkisráðherra áskorun þess
efnis að fyrirskipa undirmönn-
um sínum, sýslumönnum lands-
ins, að fresta nauðungarsölum enn
um sinn, eða þar til Alþingi hef-
ur fjallað um bráðabirgðarákvæði
sem nú er í gildi um frestun á nauð-
ungarsölum. Bráðabirgðarákvæðið
kveður á um tímabundna frestun á
nauðungarsölum og framlengingu á
samþykkisfresti fram yfir 1. septem-
ber 2014. „Ef ekkert verður að gert
munu nauðungarsölur hefjist á ný
af fullum þunga 1. september, áður
en Alþingi kemur saman á haust-
þingi þann 9. september og áður
en alþingismenn fá tækifæri til að
fjalla um málið. Auk þess má búast
við því að sýslumenn muni þá ganga
frá uppgjöri á nauðungarsölum sem
þegar hafa farið fram en eru á sam-
þykkisfresti og þarf einnig að fresta
á sömu forsendum,“ segir í áskor-
un frá Hagsmunasamtökum heimil-
anna sem Vilhjálmur Bjarnason for-
maður þeirra skrifar undir. „Grípi
innanríkisráðherra ekki til ráðstaf-
ana er hætta á að holskefla nauð-
ungarsalna muni ríða yfir í byrjun
september sem muni leiða til aukins
húsnæðisvanda og félagslegrar upp-
lausnar,“ segir að endingu í áskorun-
inni. mm
Réttardagar í Dalabyggð og Borgarbyggð
Sveitarfélögin Dalabyggð og Borg-
arbyggð hafa gefið út lista yfir réttir
í sýslunum nú í haust. Í tilkynningu
frá Dalabyggð kemur fram að Ljár-
skógarétt og Tungurétt eru auka-
réttir, aðrar eru lögréttir. Fyrsti
réttardagur í Dalasýslu verður
laugardagurinn 13. september, en
þann dag verður réttað í Ljárskóga-
rétt, Tungurétt, Kirkjufellsrétt og
Vörðufellsrétt. Fyrsti réttardagur í
Borgarbyggð verður laugardaginn
6. september en þá verður réttað í
Nesmelsrétt í Hvítársíðu og Kald-
árbakkarétt. Athygli er vakin á því
að Oddsstaðarétt í Lundarreykja-
dal verður viku fyrr en venjulega,
10. september, en ákvörðun um
að flýta leitum um viku var tekin
vegna ábendinga frá bændum um
hversu gróður tók snemma við sér
í vor og því sölnar hann fyrr.
Fjárréttir í Dölum:
Ljárskógarétt í Laxárdal laugardag-
inn 13. september *
Tungurétt á Fellsströnd laugardag-
inn 13. september *
Kirkjufellsrétt í Haukadal laugar-
daginn 13. september *
Fellsendarétt í Miðdölum sunnu-
daginn 14. september kl. 14
Flekkudalsrétt á Fellsströnd laug-
ardaginn 20. september *
Vörðufellsrétt á Skógarströnd laug-
ardaginn 20. september kl. 13
Skarðsrétt á Skarðsströnd sunnu-
daginn 21. september kl. 11
Skerðingsstaðarétt í Hvammssveit
sunnudaginn 21. september kl. 11
Brekkurétt í Saurbæ sunnudaginn
21. september kl. 11
Gillastaðarétt í Laxárdal sunnudag-
inn 21. september kl. 12
Hólmarétt í Hörðudal sunnudag-
inn 21. september kl. 10
Ósrétt á Skógarströnd föstudaginn
3. október kl. 10
*) Tímasetning er ákvörðuð af rétt-
arstjóra að göngum loknum.
Fjárréttir í Borgarbyggð:
Nesmelsrétt í Hvítársíðu, laugar-
daginn 6. september.
Fljótstungurétt í Hvítársíðu, sunnu-
daginn 14. september.
Kaldárbakkarétt í Kolbeinsstaða-
hreppi sunnudaginn 6. september.
Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal,
miðvikudaginn 10. september.
Brekkurétt í Norðurárdal, sunnu-
daginn 14. september.
Rauðsgilsrétt í Hálsasveit, sunnu-
daginn 21. september.
Svignaskarðsrétt, mánudaginn 15.
september.
Þverárrétt í Þverárhlíð, mánudag-
inn 15. september.
Hítardalsrétt í Hítardal, mánudag-
inn 15. september.
Grímsstaðarétt á Mýrum, þriðju-
daginn 16. september.
Mýrdalsrétt í Hnappadal, þriðju-
daginn 23. september.
mm
Svipmynd úr safni Skessuhorns frá Fellsendarétt í Dölum. Ljósm. bae. Fjárrekstur á leið til Fljótstunguréttar í Hvítársíðu. Ljósm. mm.