Skessuhorn


Skessuhorn - 27.08.2014, Side 16

Skessuhorn - 27.08.2014, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2014 Freisting vikunnar Nú þegar berjaspretta hefur náð hámarki er vel við hæfi að birta uppskrift sem unnin er úr kræki- berjum, enda er krækiberjaspretta mjög góð á Vesturlandi þetta árið. Hér á eftir fer uppskrift af kræki- berjavíni, sem er fallegt og þjóð- legt rauðvín. Hafa skal í huga að öll ílát og áhöld þurfa að vera mjög hrein og þvegin vandlega upp úr viðurkenndum sótthreinsi- efnum fyrir víngerð og skoluð í tvígang á eftir. Tómar flöskur eru þvegnar vel eftir notkun og síðan skolaðar vandlega með heitu vatni áður en fyllt er á þær. Margir nota rúsínur og banana sem þeir telja að geri vínið fyllra, sem er nauð- synlegt í rifsberja- og krækiberja- vín en óþarfi í sólberja,- bláberja- og stikkilsberjavín. Best er að nota gerjunarker úr plasti fyrir 1. og 2. gerjun, en glerkút fyrir lokafell- ingu. Athugið að velja dimman stað fyrir gerjun og lokafellingu. Best er að nota vel þroskuð ber til víngerðar. Krækiberjavín (25 lítrar) 1. Ber söxuð, 5-6 kg saft með hrati. Ath. að miðað er við kíló en ekki lítra. 2. 1,5 kg saxaðar rúsínur (mjög gott, en valfrjálst). 3. 3 stk. vel þroskaðir bananar saxaðir (mjög gott, en val- frjálst). 4. Sjóðið 6-8 lítra af vatni og leysið 4 kíló sykur upp í heitu vatninu. 5. Öllu blandað saman í gerjunarkútinn, fyllt með vatni upp í 25 lítra. 6. Kaliummetabisulfit (potasium – metabisulfis) er hrært út í blönduna (til að drepa villiger sem gæti verið með ávöxtunum). 7. Gernæringu hrært út í blönduna. 8. Hrist vel saman, lok og vatns- lás sett á kútinn og látið standa í u.þ.b. 2 sólarhringa. 9. Vínger leyst upp skv. upp- skrift á umbúðunum. 10. Gerjun ætti að hefjast innan tveggja sólarhringa og látið gerjast í ca. 10 daga. Kúturinn er hristur þokkalega vel nokkrum sinnum á dag. 11. Hratið skilið frá vökvanum, notið plastsigti. Vökvanum hellt á annan gerjunarkút gegnum grisju. 12. 2 kíló sykur er leyst upp í sjóðheitu vatni og blandað saman við. Heildarmagnið ætti þá að vera sem næst 25 lítrar. 13. Hreyfið kútinn ekki og látið gerjast í myrkri í 1-3 mánuði. Fylgist með hvenær gerjum hættir og bætið þá við u.þ.b. 1 mánuði, þannig að botnfall nái að setjast. 14. Vökvanum fleytt ofan af botnfallinu í glerflösku, látið standa í myrki helst á svölum stað (10-15° C) í nokkra mánuði. Þeir óþolinmóðu geta notað felliefni til að stytta þennan tíma. 15. Vökvanum fleytt ofan af botnfallinu í lokafleytingu og sett á flöskur. 16. Fyrir notkun er gott að hella víninu á karöflu, þar sem oft verður smávegis botnfall í flöskunni við stöðu, sem grugg- ast upp ef verið er að marghella úr sömu flöskunni. Fyrir þá sem eru lífrænt þenkj- andi og vilja sleppa kemískum efnum er best að nota langan tíma til að láta gerjun stoppa og grugg setjast. Auðvitað er hægt að nota stoppara á gerjunina og felliefni á botnfallið. Tíminn vinnur með þeim sem vilja sleppa kemískum efnunum. Uppskriftin er fengin hjá Garð- yrkjufélagi Íslands á vefsíðunni www.gardurinn.is Krækiberjavín fyrir þolin- móða til heimabrúks Hvílist og endurnærist á berjamónum Núna þessa dagana er væntan- lega það sem kalla má háannat- íð hjá berjatínslufólki. Í samræmi við gróskutíð í náttúru landsins á þessu sumri byrjaði berjavertíð- in með fyrra fallinu þar sem sól- ar hefur notið mest í sumar. Það var einkum á norðan- og austan- verðu landinu sem ber voru orðin vel þroskuð og tínsluhæf í lok júlí- mánaðar. Á öðrum svæðum hefur berjaspretta verið lakari, svo sem á sunnan- og vestanverðu landinu. Í Dölum og víðar á Vesturlandi er berjaspretta þó allgóð, þótt hún sé talvert lakari en sumarið 2012 þeg- ar einstaklega mikið var af stórum og góðum berjum. Hjá fjölda fólks þykir það sjálfsögð og góð venja að fara á berjamó og margir ólust upp við það að tína ber og nýta afurð- ir úr þeim til heimilisins. Einkum eru það konurnar sem eru dugleg- ar að tína ber en margir karlar eru líka mjög liðtækir á berjamónum. Ein af áhugasömum berjakon- um á Vesturlandi sem blaðamað- ur Skessuhorn hafði spurnir af er Guðrún Ágústsdóttir fyrrum hús- freyja á Stóra-Vatnshorni í Hauka- dal. Hún og maður hennar Árni Benediktsson voru þar húsbændur alla sína búskapartíð en fluttu fyr- ir jólin 2003 í Stekkjarhvamm 12 í Búðardal, þegar yngra fólkið tók við búskap í Stóra-Vatnshorni. Þótti sjálfsagt að sinna vel húsmóðurstarfinu Guðrún fæddist og ólst upp á bæn- um Kirkjuskógi í Miðdölum. Hún segir að þegar hún var að alast upp hafi margar stúlkur farið í hús- stjórnarskóla eða kvennaskóla eins og þeir voru kallaðir í þá daga. „Ég fór á Staðarfell og þangað fóru flestar héðan úr Dölunum en sum- ar fóru á Varmaland,“ segir Guð- rún. Aðspurð hvort að áhuginn hafi fljótlega beinst að því að sinna vel húsmóðurstarfinu, segir hún að það hafi þótt sjálfsagt mál að kon- ur sinntu því hlutverki sómasam- lega. „Það var bara ætlast til þess og ég byrjað það snemma að búa að ég þekki ekkert annað en að sjá um heimilið. Það var ekki fyrr en börn- in okkar sex fóru að stálpast sem ég vann nokkur haust í sláturhúsi. Síð- an eftir að við Árni hættum búskap starfaði ég í fjögur ár á hjúkrunar- heimilinu Fellsenda,“ segir Guð- rún. Ólst upp við að nýta berin Guðrún segist hafa alist upp við að fara á berjamó og nýta berin til heimilis. „Ég hef líka alltaf haft gaman af því að tína ber. Það þótti ekkert sjálfsagðara en tína berin og nýta þau til heimilisins eins og hvern annan vetrarforða. Ég hef alltaf notið mín vel í berjamónum, fundið í því hvíld og endurnæringu bæði á líkama og sál. Stóra-Vatns- horn hentaði líka einstaklega vel til berjatínslu. Mjög stutt að fara í land þar sem jafnan var mikið að berjum. Stundum fór ég líka lengra fram í Haukadalinn til að tína eft- ir því hvernig sprettan var. Þar var friðsældin ennþá meiri en heima í Stóra-Vatnshorni, bara fuglasöng- ur og árniður sumstaðar sem rauf kyrrðina,“ segir Guðrún. Hún seg- ir að krækiberin spretti betur þetta árið en bláberin, en aðalbláberin séu þó mun betur sprottin en bláberin. Aðspurð segist hún ekki tína mikið magn af berjum og það sé mismun- andi frá sumri til sumars hvað hún tíni mikið. „Ég hef notað berin bæði í sultur og saft og stundum nota ég þau í bökur. Svo set ég lík kræki- berjasaft á litlar flöskur og geymi þær til vetrarins. Annars er ég ekki með neinar nýjungar í þessu. Ég á því engar eigin uppskriftir og hef því engu að miðla hvað það snert- ir,“ sagði Guðrún þegar blaðamað- ur Skessuhorns kíkti í heimsókn til hennar í Búðardal í síðustu viku. Þá var hún nýkomin úr berjatínsluferð í Stóra-Vatnshorn í Haukadal þar sem hún bjó ásamt Árna manni sín- um í 45 ár. þá Guðrún Ágústsdóttir fyrrum húsfreyja í Stóra-Vatnshorni með ílát full af berjum. Með Guðrúnu á myndinni er yngsta barnabarnið, Kristvin Guðni Unnsteinsson. Hægt er að búa til gott og fallegt rauðvín úr krækiberjum. Víkingatúr snæfellskra hestamanna Hestamannafélagið Snæfelling- ur stóð fyrir kvenna- og karlareið laugardaginn 23. ágúst síðastliðinn. Það var Hesteigendafélag Grund- arfjarðar sem sá um að skipuleggja ferðina en hestamenn komu víðs- vegar að til þessa árlega viðburðar. Að þessu sinni var riðið frá Naust- um og um Eyraroddann og endað í allsherjar veislu á Vatnabúðum. Víkingaþema var að þessu sinni og voru reiðmenn hvattir til að klæð- ast þess háttar búningum og voru margir mjög svo þjóðlegir í reið- túrnum. tfk Hér má sjá mæðgurnar Hrafnhildi Bárðardóttur og Dóru Aðalsteinsdóttur í víga- legum klæðnaði. Ljósm. tfk. Ólafur Tryggvason og Brynjar Hildibrandsson eru hér að leggja í hann. Ljósm. tfk. Áð um stund. Ljósm. Sumarliði Ásgeirsson. Spjallað við Guðrúnu Ágústsdóttur fyrrum húsfreyju í Stóra-Vatnshorni

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.