Skessuhorn - 05.11.2014, Blaðsíða 19
19MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2014
Háar í mittið - Stretch
Gallabuxur á 13.900 kr.
Snið: Slim
2 litir: Gallablátt og -svart
Stærð 34 - 52
Ein sídd: 83 cm
Gallabuxur á 13.900 kr.
Snið: Regular
4 litir: Gallablátt, -svart og
-milliblátt, einlitt svart
Stærð 34 - 54
3 síddir: 76 + 83 + 89 cm
Gallabuxur á 13.900 kr.
Snið: Straight
3 litir: Gallablátt og -svart, einlitt
svart
Stærð 34 - 52
3 síddir: 76 + 83 + 89 cm
Laugavegi 178, Reykjavík - Sími 555 1516
Opið virka daga kl. 11 - 18 og laugardaga kl. 10 - 16 Erum á Facebook
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Hittast vikulega með börnin sín
Það er líf og fjör á miðvikudög-
um hjá tíu nýbökuðum mæðr-
um á Akranesi. Þær eru saman í
mömmuklúbbi og hittast einu sinni
í viku með ungbörnin sín. Það var
Katla Guðlaugsdóttir sem smalaði
hópnum saman til að byrja með.
Hún eignaðist þriðja barn sitt,
dótturina Erin, í júní á þessu ári.
„Ellý ljósmóðir hvatti mig til að
smala saman hópi og ég gerði það.
Það var ekki mikið mál, í svona
litlu bæjarfélagi þekkja allir alla og
maður veit alveg nokkurn veginn
hver er ólétt eða nýbúin að eiga,“
útskýrir Katla. Hún segist einn-
ig hafa verið í mömmuhópi þegar
hún eignaðist barn fyrir níu árum.
„Þar kynntist ég æðislegum stelp-
um. Þær eru mínar bestu vinkon-
ur enn þann dag í dag,“ segir hún.
Mæðurnar í þessum hópi eru all-
ar komnar yfir þrítugt og eru litlu
börnin á aldrinum 6 vikna upp í 8
mánaða. Allar búa þær á Akranesi,
fyrir utan eina sem er brottfluttur
Skagamaður og býr nú í Reykja-
vík. Ellefta móðirin bætist líklega
í hópinn í þessum mánuði. „Við
erum bara að bíða eftir að hún fæði
barnið,“ segja þær og hlæja.
Alltaf veisla á
miðvikudögum
Hópurinn hittist í fyrsta sinn
í byrjun haustsins á kaffihús-
inu Vitakaffi, þar sem þær skipu-
lögðu hvernig þær vildu hafa fyrir-
komulagið. „Við ákváðum að hafa
þetta þannig að við bjóðum heim
til skiptis. Sú sem býður heim er
með léttar veitingar. Ef hún er
bara í stuði til að bjóða upp á kaffi
og súkkulaði, þá er það allt í lagi.
En það hefur samt aldrei gerst og
því er alltaf þvílík veisla hjá okk-
ur á miðvikudögum.“ Stelpurn-
ar segjast hafa verið heppnar með
að börnin eru yfirleitt róleg og góð
þegar þær hittast. „Við höfum því
vel getað talað saman og höfum
stundum verið saman langt fram
eftir degi.“ Katla bætir því við að
það sé frábært að geta hitt aðrar
mæður sem allar eru í svipuðum
sporum. „Það er svo fínt að hitt-
ast og geta rætt um barnið og þess
vegna bleyjutegundir. Aðrir nenna
ekkert að tala svona mikið um
það,“ segir hún og stelpurnar sam-
sinna. „Svo er þetta svo þægilegt.
Allar eigum við nóg af ungbarna-
dóti, svo sem stóla og leikteppi,
þannig að maður þarf ekki að taka
það með sér. Svo sofna börnin eft-
ir hádegið og þá getum við haldið
áfram að spjalla,“ bæta þær við.
Samstíga systur
Mæðurnar eiga allt frá einu barni
upp í fimm. Sumar þeirra þekkt-
ust ágætlega áður en þær eignuð-
ust börnin. Sú elsta í hópnum er
Harpa Harðardóttir en hún og
Hrafnhildur, sú yngsta, eru syst-
ur. Harpa á tvö börn fyrir, 12 ára
og 15 ára. Hrafnhildur var aft-
ur á móti að eignast sitt fyrsta en
börn þeirra systra fæddust með sex
vikna millibili. „Það er yndislegt
fyrir mig að fylgja henni með mitt
fyrsta barn. Ég gat til dæmis allt-
af hringt í hana ef eitthvað var á
meðgöngunni. Ég segi stundum að
hún hafi gert þetta bara fyrir mig,“
segir Hrafnhildur og hlær. Stelp-
urnar eru allar í fæðingarorlofi og
verða það út þetta ár, sumar leng-
ur. „Ég tók tvö fæðingarorlof í röð.
Það eru nefnilega ekki nema ár og
níu dagar á milli yngstu strákanna
minna,“ segir Irma Dögg Sigurð-
ardóttir. Hún er því ein þeirra
sem er í tveimur mömmuhópum
en hópurinn sem hún gekk í þeg-
ar sá fimmtán mánaða fæddist hitt-
ist enn. Anna Þóra Þorgilsdóttir
er einnig í tveimur mömmuhóp-
um. „Hinn hópurinn er síðan 2010
og við höfum hist reglulega síð-
an. Við hittumst samt án barnanna
núna, einu sinni í mánuði. Það er
svo heppilegt að við erum akkúrat
tólf og því hittumst við einu sinni
í mánuði og skiptumst á að bjóða
heim,“ segir Anna Þóra. Mæðurn-
ar hittast einnig fyrir utan mið-
vikudagana. Nokkrar þeirra eru
saman í mömmuleikfimi og einnig
fara þær saman út að ganga. „Við
erum með síðu á Facebook. Við
skellum þar inn ef við ætlum út að
labba eða á kaffihús og fáum ein-
hvern með okkur. Nú eða ef okk-
ur vantar hjálp með afgangana frá
síðasta hittingi,“ segja þær að end-
ingu.
grþ
Sjö mæður ásamt börnum sínum. Í hópnum eru tíu mömmur en þrjár þeirra komust ekki síðastliðinn miðvikudag.
Barnavögnunum sjö raðað upp. Eftir hádegi fara öll börnin út að sofa.
RÚM
RB rúm | Dalshrauni 8 | Hafnarfirði | Sími: 555 0397
Opið virka daga frá kl. 09.00–18.00, lau 10.00–14.00, sun lokað
www.rbrum.is | rum@rbrum.is | erum áFramúrskarandifyrirtæki 2012
Framúrskarandi
fyrirtæki 2013
Framúrskarandi
fyrirtæki 2011
Framúrskarandi
fyrirtæki 2010
Esprit rúmföt
14.900,-
Esprit rúmföt
14.900,-
Esprit rúmföt
14.900,-
Esprit baðsloppar
13.900,-
Esprit teppi
14.900,-
Esprit handklæði
margir litir í boði,
til í 3 stærðum,
verð frá: 1.410,-