Skessuhorn


Skessuhorn - 30.12.2014, Qupperneq 14

Skessuhorn - 30.12.2014, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2014 Laugardaginn 20. desember síðastliðinn voru 85 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og var um óvenjulega stóra útskrift að ræða. Dröfn Viðarsdótt- ir aðstoðarskólameistari flutti annál haust- annar 2014. Svana Þorgeirsdóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema. Fyr- ir athöfnina spilaði fiðluflokkur frá Tón- listarskóla Akraness nokkur lög en hann var skipaður þeim Örnu Pétursdóttur, Hjördísi Tinnu Pálmadóttur, Hrefnu Berg Pétursdótt- ur og Ólafíu Laufeyju Steingrímsdóttur. Aðr- ir tónlistarmenn sem komu fram voru Hjör- dís Tinna Pálmadóttir, Sigurlaug Hjartar- dóttir, Margrét Brandsdóttir, Kristinn Bragi Garðarsson og Arnaldur Ægir Guðlaugsson nýstúdent. Eyrún Eiðsdóttir hlaut viðurkenningu skólans fyrir bestan árangur á stúdentsprófi á haustönn 2014. Nokkrir útskriftarnemar fengu verðlaun og viðurkenningar fyrir góð- an námsárangur og störf að félags- og menn- ingarmálum. Nöfn þeirra sem gáfu verðlaun eru innan sviga. Adda Malín Vilhjálmsdóttir fyrir ágætan árangur í dönsku (Danska sendiráðið) og fyrir störf að félags- og menningarmálum (Minn- ingarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar) Agnieszka Anna M Kowalczyk fyrir ágætan árangur í hjúkrunargreinum (Rótarý- klúbbur Akraness) Aníta Eir Einarsdóttir fyrir ágætan ár- angur í líffræði (Elkem Ísland ehf.) Arnaldur Ægir Guðlaugsson fyrir ágætan árangur í ensku (Fjölbrautaskóli Vesturlands) Arnar Freyr Sævarsson fyrir ágætan ár- angur í stærðfræði (Meitill og GT Tækni ehf.), í upplýsingatækni (Fjölbrautaskóli Vesturlands), í tungumálum (Omnis) og fyr- ir ágætan árangur í efnafræði og líffræði (So- roptimistasystur á Akranesi) Einar Jóel Ingólfsson fyrir ágætan ár- angur í sérgreinum á námsbraut í vélvirkjun (Verkalýðsfélag Akraness) Eyrún Eiðsdóttir fyrir bestan árangur á stúdentsprófi á haustönn 2014 (Fjölbrauta- skóli Vesturlands), fyrir ágætan árangur í stærðfræði (Norðurál ehf.), í þýsku (Þýska sendiráðið) og í líffræði- og náttúrufræði- greinum (Gámaþjónusta Vesturlands) Freyja Kristjana Bjarkadóttir fyrir störf að félags- og menningarmálum (Minningar- sjóður Karls Kristins Kristjánssonar) Guðlaugur Þór Brandsson fyrir ágætan árangur í stærðfræði (Skaginn og Þorgeir og Ellert) Kristinn Gauti Gunnarsson fyrir störf að félags- og menningarmálum (Minningar- sjóður Karls Kristins Kristjánssonar) Kristrún Haraldsdóttir fyrir ágætan ár- angur í þýsku (Þýska sendiráðið) Magnús Gunnarsson fyrir störf að félags- og menningarmálum (Minningarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar) Margrét Helga Isaksen fyrir störf að félags- og menningarmálum (Minningarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar) Salome Jónsdóttir fyrir ágætan árangur í líf- fræði (Íslandsbanki) Silja Ósk Björnsdóttir fyrir ágætan árang- ur í sérgreinum á sjúkraliðabraut (Eymundsson á Akranesi) Svana Þorgeirsdóttir fyrir ágætan árang- ur í samfélagsgreinum (Fjölbrautaskóli Vestur- lands) Sævar Berg Sigurðsson fyrir ágætan árangur í íþróttum (Fjölbrautaskóli Vesturlands) og fyrir störf að félags- og menningarmálum (Minning- arsjóður Karls Kristins Kristjánssonar) Hafdís Fjóla Ásgeirsdóttir skólameist- ari ávarpaði útskriftarnemendur í lokin, ósk- aði þeim gæfu og velfarnaðar og þakkaði þeim fyrir samveruna. Síðan risu gestir úr sætum og sungu saman lagið Bráðum koma blessuð jólin eftir Jóhannes úr Kötlum. Forsöngvari var Jón Gunnar Axelsson. fva.is/mm/ Ljósmyndir: Guðni Hannesson og Ágústa Friðriksdóttir. Frá flutningi tónlistaratriðis. Brautskráning frá Fjölbrautaskóla Vesturlands Útskriftarhópurinn ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara. Eyrún Eiðsdóttir fékk viðurkenningu skólans fyrir bestan árangur á stúdentsprófi á haustönn 2014. Hér er hún ásamt Hafdísi Fjólu Ásgeirsdóttur skólameistara.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.