Læknablaðið - 15.01.2002, Page 13
FRÆÐIGREINAR / AUKAVERKANIR / HVÍTBLÆÐISMEÐFERÐ í ÆSKU
Síðkomnar og langvinnar aukaverkanir
eftir hvítblæðismeðferð í æsku
Valur Helgi
Kristinsson',
Jón R. Kristinsson2,
Guðmundur Kr.
Jónmundsson2,
Ólafur Gísli
Jónsson3,
Árni V. Þórsson1'3,
Ásgeir Haraldsson12
'Læknadeild Háskóla íslands,
2Barnaspítali Hringsins,
Landspítala Hringbraut,
’Barnadeild Landspítala
Fossvogi. Fyrirspumir,
bréfaskipti: Ásgeir
Haraldsson Barnaspítala
Hringsins, Landspítala
Hringbraut, 101 Reykjavík.
Sími: 5601000. Netfang:
asgeir@landspitali.is
Lykilorð: börti, hvítblœði,
hvítblœðismeðferð, síðkomnar
aukaverkanir.
Ágrip
Inngangur: Fyrir 30 árum var hvítblæði í flestum til-
vikum banvænn sjúkdómur í börnum. Síðan þá hefur
árangur meðferðar batnað til muna og nú ná 65-75%
bata. Mikilvægt er því að þekkja langtímaáhrif hvít-
blæðis og hvítblæðismeðferðar.
Sjúklingar: Þrjátíu og eitt barn greindist með hvít-
blæði á árunum 1981-1990 og náði rannsóknin til 20
þeirra. Meðalaldur við rannsókn var 16 ár og átta
mánuðir (16:8) og meðaltími frá meðferðarlokum
var 8:3.
Aðferðir: Rannsóknin fór fram á Barnaspítala
Hringsins og Heyrnar- og Talmeinastöð íslands.
Upplýsingum var safnað um hæð, þyngd, heyrn, ár-
angur í skóla, blóðhag, mótefni og starfsemi innkirtla,
nýrna, hjarta, lifrar og lungna.
Niðurstöður: Sjúklingarnir reyndust að meðaltali
0,48 staðalfrávikum undir áætlaðri markhæð. Fimm
voru yfir kjörþyngd þegar rannsókn fór fram en eng-
inn við greiningu. Styttingarbrot vinstra slegils allra
þeirra sem mældir voru var innan eðlilegra marka.
Tveir höfðu greinilega loftvegaþrengingu. Tveir höfðu
skerta heyrn sem ekki var hægt að skýra sem hávaða-
skemmd. Nokkur frávik voru á aðal mótefnaflokkum
og í 12 einstaklingunr var IgG2 lækkað. Sex höfðu
þurft lestrarsérkennslu í skóla. Þrír þurfa á hormóna-
meðferð að halda. Engin teljandi óregla fannst á
blóðhag eða starfsemi hjarta, lifrar eða nýrna.
Umræðun Áhrif á hæð og þyngd eru merkjanleg
en eru þó ekki klínískt markverð fyrir hópinn. Áhrif
á innkirtlastarfsemi og árangur í skóla eru greinileg-
ust. Þrátt fyrir umtalsverða lækkun á sumum mót-
efnaflokkum er sjúkingunum ekki hættara við sýk-
ingum. Erfitt reyndist að meta áhrif á lungu og heyrn.
Þessar niðurstöður eru sambærilegar við erlendar
rannsóknir og sýna að nauðsynlegt er að fylgja börn-
um sem læknast hafa af hvítblæði markvisst eftir í
langan tíma.
Inngangur
Á Norðurlöndunum greinast á hverju ári rúmlega
6000 böm 15 ára og yngri með krabbamein. Af þeim
eru 32% með hvítblæði og 27% með heilaæxli. Ný-
gengi krabbameina í börnum á Norðurlöndunum er
því 14,6 af hveijum 100.000 börnum (1). Á íslandi
greinast að meðaltali átta börn með krabbamein ár
hvert, þar af þrjú með hvítblæði.
Börn fá nær eingöngu bráðahvítblæði, í 85% til-
EN6LISH SUMMARY
Kristinsson VH, Kristinsson JR, Jónmundsson GK,
Jónsson ÓG, Þórsson ÁV, Haraldsson Á
Late and long-term effects of leukaemia treatment
in childhood
Læknablaðiö 2002; 88: 13-8
Introduction: The treatment of childhood leukemia has
improved substantially over the last decades and now 65-
75% of the patients recover. With increasing number of
survivors it is important to know the long-term and late
effects of leukemia and leukaemia treatment.
Patients: Of the 31 children diagnosed with leukemia in
lceland from 1981 to 1990, twenty were enrolled in the
study. Average age at enrollment was16 years and 8
months (16:8) and average time since treatment ended
was 8:3.
Methods: The study was carried out at the Children’s
Hospital at the University Hospital lceland where patients
were examined and data was gathered on height, weight,
hearing, cognitive functions, bloodvalues,
immunoglobulins and renal, endocrine, heart, liver and
respiratory functions.
Results: The children studied were on average 0.48
standard deviations below target height and their body-
mass index was higher at the time of study than at
diagnosis. Two children had obvious obstructive lung
disease. No abnormalities were found in complete blood
count nor heart, liver or kidney functions. Two patients
were found to have impaired hearing not attributable to
acoustic trauma. In some cases abnormal values were
found in immunoglobulin classes and 12 patients had
decreased serum lgG2. Six needed remedial reading
lessons. Three patients needed hormone replacement
therapy.
Discussion: Minor impact on height and weight was found
but the effects on lungs and hearing were inconclusive.
Despite markedly decreased serum lgG2 the patients were
not more prone to infections. The most obvious effects
were on the endocrine system and performance at school.
We conclude that the sequelae of childhood leukemia
treatment in lceland are significant and long-lasting,
underlining the necessity of a careful long-term follow-up.
Keywords: child, leukemia, long-term effects.
Correspondence: Ásgeir Haraldsson. E-mail:
asgeir@landspitali.is
fella er um brátt eitilfrumuhvítblæði að ræða (acute
lymphoblastic leukaemia; ALL) oimjm 15% eru bráð
mergfrumuhvítblæði (acute nonlymphoblastic leuk-
Læknablaðið 2002/88 13