Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.01.2002, Side 30

Læknablaðið - 15.01.2002, Side 30
FRÆÐIGREINAR / ÖLDRUNARENDURHÆFING Aldurstengdar breytingar hafa áhrif á allt ferlið Vefjameinafræði ♦-> Líffæraskerðing <-> Færnitap <— Fötlun <-♦ Örorka Lækning/endurhæfing - getur haft áhrif á hreyfingar á milli þessara sviða. Öldrun - hefur áhrif á alla líffræðilega starfsemi sem mótast af ytra álagi og persónulegum lífsstíl og leiðir til minnkaðs líkamsafls. Vefjameinafræði - á frumu- eða vefjastigi, skaðinn kemur innan frá eða truflar eðlilega starfsemi vefja eða líffæra. Líffæraskerðing - í líffæri eða líffærakerfi birtist sem sár eða truflun á líkamlegri eða andlegri starfsemi (einkenni og ummerki _ sjúkdómsgreining). Færnitap - einstaklingsins er upplifað sem skert göngulag, taltruflanir, sjóndepra, heyrnarskerðing, ótryggt minni og áttun (kemur í Ijós við færnipróf). Fötlun - færnitap í félagslegum og menningarlegum viðfangsefnum sést við mat á sjálfshjálp á athöfnum daglegs lífs (ADL). Örorka -félagsleg afleiðing fötlunarinnar, óháð aldri. ADL = Athafnir daglegs Iffs. Mynd 1. sýndu ntun á nokkrum viðmiðunum í færniþáttum. ánægju og kostnaði. Alykfanir: Sérhæfð endurhæfing aldraðra er flókin en skilar árangri þegar rétt er á haldið. Bestur árangur næst með fjölfaglegri teymisvinnu, val á þeim sjúk- lingum sem mestu áhættuna hafa, alhliða öldrunar- mati og virkri og einstaklingsmiðaðri endurhæfingu. Endurhæfing á hrumu gömlu fólki er og verður vax- andi viðfangsefni fyrir heilbrigðisþjónustuna og mikil- vægt að hún nái því markmiði að auka lífsgæði aldraðs fólks. Benda rannsóknir einnig til að við það skapist einnig efnahagslegur ávinningur fyrir land og þjóð. Inngangur Öldrunarendurhæfing miðast við að byggja upp og viðhalda bestu mögulegri færni sjúklinga sem hafa fatlast vegna veikinda, bráðra eða langvinnra, eða slysa og beinist hún að því að auka sjálfstæði þeirra og lífsgæði. Framkvæmd öldrunarendurhæfingar byggist á fjölfaglegri teymisvinnu sem notar færni- miðaða nálgun, auk hefðbundins mats á sjúkdómum eða veikindum. Til þess að draga úr vaxandi þörf fyrir líkamlega og félagslega umönnun aldraðs fólks er mikilvægt að viðhalda sem bestri færni. Aldurstengd- ar breytingar draga úr starfsgetu flestra líffærakerfa og næmi vex fyrir ýmsum lyfjum. Margþátta sjúk- dómar verða algengir og hækkandi aldri fylgir einnig breytileiki á einkennum sjúkdóma og sjúkdóms- greining getur orðið erfið. Öldrunarendurhæfing er bæði sértæk fyrir einstök líffæri en einnig almenn og byggð á þverfaglegri vinnu sem myndar sterkan kjarna í öldrunarlækningum. Það ríkir náin samvinna milli Norðurlandaþjóða á sviði öldrunarlækninga. Skipulag öldrunarlækninga og umönnun aldraðra í samfélaginu eru sambærileg meðal þessara þjóða. Kennsla öldrunarlækninga fyrir læknanema og sér- fræðinga hefur einnig farið fram í samvinnu Norður- landaþjóðanna og nokkrar rannsóknir hafa verið framkvæmdar sem náð hafa yfir venjuleg landamæri ríkjanna. Norrænir kennarar og vísindamenn hafa hist reglulega af ýmsu tilefni og samið sameiginlegar greinargerðir, meðal annars um kennslu og öldrunar- mat (1,2). A fundi árið 1996 var skipaður vinnuhóp- ur lækna frá öllum fimm Norðurlandaþjóðunum til þess að fjalla um grundvallaratriði öldrunarendur- hæfingar. Þessi grein fjallar um hugmyndafræði öldr- unarendurhæfingar á Norðurlöndum og tekur saman niðurstöður rannsókna sem fjalla um öldrunarendur- hæfingu í fjölþjóðlegu samhengi á vfsindalegan hátt. Markmið og leiðir öldrunarendurhæfingar Markmið öldrunarendurhæfingar eru að endurreisa og viðhalda sem bestri færni hjá fólki sem hefur orðið fyrir skaða vegna sjúkdóma eða slysa. Þetta markmið mótast af þörfum hvers sjúklings fyrir sig. Til þess að ná sem bestri sjálfsbjargargetu og vellíðan og auka virkar lífshorfur eiga allir sjúklingar að hafa aðgang að endurhæfingu í samræmi við einstaklingsbundnar þarfir og óháð lífaldri. Þessum markmiðum er náð með því að: • Greina fljótt þarfir fyrir endurhæfingu og hefja endurhæfingu til að fyrirbyggja fylgikvilla. • Skapa samfellu milli sérhæfðra öldrunarlækninga, heimaþjónustu heilsugæslunnar og hjúkrunar- heimila þegar það á við. • Koma á virku eftirliti. • Fyrirbyggja endurinnlagnir á sjúkrahús. Hvaða sjúklingar þurfa óldrunarendurhæfingu? Öldrunarsjúklingur er ekki aðeins aldraður heldur einstaklingur með flókna sjúkdómsmynd og oftast með fjölþættar þarfir. Aðalkvörtun við komu á sjúkrahúsið er því oftast toppurinn á ísjakanum þar sem fjölþættur vandi leynist undir yfirborðinu. End- urhæfingin er því aðeins líkleg til árangurs að sjúk- lingurinn sé metinn kerfisbundið og öllum læknan- legum og meðhöndlanlegum atriðum sé sinnt sam- tímis. Eldra fólki með eftirfarandi vandamál ber að vísa til öldrunarendurhæfingar: • Þeim sem fá nýja kvilla eða sjúkdóma og hafa fyrir fjölþættan heilsufarsvanda. • Fötlun eða líkamsskerðing af óþekktum toga eða óvænt/hröð versnun á þekktum vanda. • Ógreind og oft dulin endurhæfanleg viðfangsefni. a) Alagseinkenni á aðstandendur og stuðnings- kerfi. b) Erfiðar aðstæður og umsókn um vistunarmat aldraðra. c) Ný beiðni um heimaþjónustu ef öldrunarmat hefur ekki þegar farið fram. Líkan fyrir öldrunarendurhæfingu Lýsingu á ramma sem notaður hefur verið til að ná 30 Læknablaðið 2002/88

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.