Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.01.2002, Side 51

Læknablaðið - 15.01.2002, Side 51
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÆKNAR OG LYFJAFYRIRTÆKI Ég er þeirrar skoðunar að samskipti lækna og lyfjaiðnaðarins eigi að vera sem allra minnst af eftir- töldum ástæðum: Fræðsla lyfjakynna er ekki hlutlaus heldur þjónar hún því hlutverki að auka sölu ákveðinnar fram- leiðsluvöru Læknar hafa flestir aðgang að tölvum og internet- inu og eiga því mjög auðvelt með að afla sér upplýs- inga og þekkingar sem staðist hefur rýni þar til bærra aðila (evidence based) sem ekki hafa nein hags- munatengsl við lyfjaiðnaðinn. Á vegum Landlæknis- embættisins og TR hefur gagnlegt starf verið unnið við gerð og útgáfu vinnulagsreglna og við mat og dreifingu hagnýtra veffanga, þangað sem læknar geta sótt sér fróðleik. Við þurfuni því ckkert á lyfjakynn- um að halda. Það er vel þekkt staðreynd að markaðs- starf lyfjakynna hefur umtalsverð áhrif á ávísana- venjur lækna (8,10,11). Vart þarf um það að deila að ekki eru þau áhrif einvörðungu jákvæð, heldur til þess fallin að auka lyfjanotkun. Tímaeyðsla og ófrjó iðja Það er óeðlilegt að læknar sem eru á föstum launum hjá heilbrigðis- og sjúkrastofnunum, eyði vinnutíma sínum í að hlusta á áróður og auglýsingar lyfjakynna, þegar á þeim brenna önnur óleyst verkefni. Hvað þeir gera svo í frítíma sínum sér til dægrastyttingar eða til að lækka fæðiskostnað sinn gegnir öðru máli, en hafa ber þó hugfast hið fornkveðna, að „æ sér gjöf til gjalda“. Þá er rétt að hafa í huga að gott lyf aug- lýsir sig sjálft og „fæst ný sérlyf bæta neinu við það sem fyrir var, nema kostnaði og ruglingi" (12). Marg- ar klínískar rannsóknir sem lyfjaiðnaðurinn styður miðast fremur við það að finna minniháttar afbrigði við fyrri lyf sem hægt er að auglýsa upp, en að upp- götva klínískt mikilvægar nýjungar (13). Þá er vel þekkt sú söluaðferð að troða eftirlíkingum inn á markað undir yfirskini breyttra eða útvíkkaðra ábendinga eða sem blöndu með öðru lyfi (12). Vand- aðar athuganir á gæðum lyfjakynninga hafa lítið ver- ið gerðar nema í Frakklandi, þar sem í ljós hefur komið að lyfjakynnar veita oft lélega fræðslu og valda ekki meintu hlutverki sínu í símenntun lækna. Það sýndi sig að þeir áttu það til að breyta eða víkka út ábendingar, auka við ráðlagðan skammt, segja ekki frá aukaverkunum, afhenda ekki sérlyfjaskrár- texta eða álit lyfjamatsnefndar og jafnvel að kynna lyfin áður en þau voru markaðssett (14). Við vitum ekki hvort risið er hærra á íslenzkum lyfjakynnum því það hefur ekki verið athugað með sömu ná- kvæmni og hjá Frökkum. Misnotkun aðstöðu Þar sem sjúklingar og TR greiða þann kostnað sem lyfjaávísun læknis hefur í för með sér er það siðferði- lega óverjandi að læknir njóti hlunninda af því einu að vera í aðstöðu til að hygla ákveðnu lyfjafyrirtæki sem hann ljáir eyra til að reka áróður eða kynna söluvöru sína. Læknar ættu að hafa í huga að það eru almannasjóðir og sjúklingar sem fjármagna risnuna og gjafirnar, en ekki lyfjafyrirtækin sjálf því kostnað- urinn kemur auðvitað fram í lyfjaverðinu. Þessi symbiosa lækna og lyfjaiðnaðarins er einkar vel til þess fallin að grafa undan trúverðugleika lækna í augum sjúklinganna og hefur þegar valdið stöðu stéttarinnar í þjóðfélaginu óbætanlegu tjóni. Fjárhagslegt ósjálfstæði Þótt lyfjafyrirtæki á Islandi hafi margoft stutt stærri fræðslufundi og vísindaráðstefnur myndarlega er óeðlilegt að læknar troði betlistigu til lyfjaiðnaðarins í jafn ríkum mæli og raun ber vitni, þegar um aðra fræðslustarfsemi og félagsstarf er að ræða þar sem hugsanlegt endurgjald lækna er í því formi að láta þriðja og fjórða aðila bera kostnaðinn. Ef hægt er að halda auglýsingamennsku og áróðri í skefjum er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt að leita stuðnings fyrir- tækja við góð málefni, en þar mætti ekki síður láta reyna á höfðingsskap ýmissa annarra stórfyrirtækja sem minni áhrif myndu hafa á daglega forgangsröðun okkar en kysu eigi að síður að nýta sér þá andlitslyft- ingu sem læknastéttin gæti látið henni í té. Vinnu- veitendur okkar hafa sloppið alltof vel frá því að styrkja fræðslustarf og svo tel ég læknastéttina hvergi nærri komna á þann vonarvöl að hún sé ófær um að kosta hluta af símenntun sinni sjálf. Það er enginn vafi á því að þessi mikla samvinna við lyfjaiðnaðinn á sviði símenntunar hefur óheillavænleg áhrif á þær áherzlur sem settar eru. Lyfjafræðilegar lausnir verða aldrei langt undan í þeirri umræðu (15-17). Lyfja- meðferðarslagsíða er hvorki holl í grunnmenntun lækna, framhaldsmenntun né símenntun. Okkur ber því brýna nauðsyn til að taka upp aðra siði sem betur hæfa virðingu stéttar okkar. Þróun læknisfræóinnar er stýrt af stórgróðafyrirtækjum Eins og ábyrgðarmaður Læknablaðsins hefur bent á er það mikið áhyggjuefni hversu mikill hluti af rann- sókna- og vísindavinnu lækna er fjármagnaður af lyfjaiðnaðinum (2). Með því móti geta þessir hags- munaaðilar haft ósæmilega mikil áhrif á hvaða ný þekking lítur dagsins Ijós og í hvaða átt Iæknisfræðin þróast. Með örlæti sínu hefur lyfjaiðnaðurinn komizt í þá aðstöðu að geta beint rannsóknum læknisfræð- innar inn í þá farvegi sem ýta undir Iyfjaneyzlu og lyfjafræðilegar lausnir á öllum mannlegum vanda (medicalization). Þó tekur steininn úr þegar lyfjaiðn- aðurinn er farinn að gera læknadeildir háskólanna háðar sér fjárhagslega (15) eða er kominn með skó- sveina sína inn í ritstjórnir og ritrýnahópa læknatíma- rita ellegar inn í sérstök fagráð eða starfshópa sem áhrif hafa á gerð vinnulagsreglna eða klínískra leið- Læknablaðið 2002/88 51

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.