Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.01.2002, Qupperneq 67

Læknablaðið - 15.01.2002, Qupperneq 67
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÍÐORÐAPISTILL 140 Jóhann Heiðar Jóhannsson Netfang: johannhj@landspitali.is Insúlínþol í SÍÐASTA PISTLI VAR FJALLAÐ UM FYRIRBÆRIÐ INSÚLÍN rcsistance og lagt til að það yrði nefnt insúlínþol í samræmi við þýðingu íðorðasafnsins. Heitið barst á stuttum orðalista frá Rafni Benediktssyni, lækni. A lista Rafns voru einnig dyslipidcmia sem hann vildi nefna blóðfitubrengl eða blóðfituröskun, inicro- albuniinuria sem hann vildi nefna smáhvítumigu eða örhvítumigu, metabolic syndronie X sem hann vildi nefna heilkenni X eða efnaskiptavillu, og loks poly- cystic ovary syndronie og ainbulatory blood pressure sem hann hafði ekki tillögur að. Polycystic ovary syndrome Þetta heilkenni sem áður var nefnt Stein-Leventhal syndrome einkennist af ófrjósemi, tíðaleysi eða fækkun tíða, ofhæringu eða karlhæringu og blöðrum í eggjastokkum. Einfaldast er að þýða enska heitið beint og nefna fyrirbærið heilkenni fjölhlöðróttra eggjastokka. Læknirinn mundi hins vegar oft vilja forðast að þurfa að nota alla langlokuna og segja í staðinn við sjúklinginn: „Þú ert með Qölblöðrótta eggjastokka." Ambulatory blood pressure Rafn var einnig að fást við að koma íslensku heiti á niðurstöður blóðþrýstingsmælinga sem gerðar eru við aðrar kringumstæður en rúmlegu á sjúkra- stofnun. Hann tók dæmi um mælingar hjá sjúklingi sem er á ferli. Nota má sjálfvirk tæki sem mæla með reglulegu millibili og segir Rafn að blóðþrýstingurinn sé þá nefndur ambulatory blood pressure á ensku. I 138. pistli (Lbl 2001; 87: 943) var fjallað um rann- sóknir gerðar á sjúkiingum utan stofnunar, ambulant rannsóknir. og stungið upp á heitinu ferlirannsóknir. Eins má gera hér og nefna niðurstöðuna ferliblóð- þrýsting. í réttu samhengi og þegar ljóst er hvað við er átt má stytta og tala um ferliþrýsting. A sama hátt má búa til önnur heiti sem vísa til staðsetningar eða líkamsstöðu sjúklings meðan blóðþrýstingsmæling- arnar eru gerðar. Þannig má tala um heimaþrýsting, stofuþrýsting, leguþrýsting, setþrýsting, réttstöðu- þrýsting og jafnvel riímþrýsting. Rétt er að benda á að íslenska heitið ferliþrýst- ingur og enska heitið ambulatory blood pressure eru almenn og vísa eingöngu til þess að sjúklingurinn er á ferli, en ekki til aðferðarinnar sem beitt er við mæling- una. Eigi einnig að vísa til aðferðarinnar má minnast þess að tæki sem mælir í sífellu er gjarnan nefnt síriti. Metabolic syndrome X Um þetta heiti var fjallað í 132. pistli (Lbl 2001; 87: 371) eftir fyrirspurn frá Ófeigi Þorgeirssyni lækni á Selfossi. Spurt var hvort íslensku heitin kviðfítu- heilkenni eða insúlínheilkenni gætu dugað. Rafn sagðist geta sætt sig við kviðfituheilkennið, en spurði einnig hvort ístruheilkennið kæmi til greina. Undir- ritaður leggst gegn því á þeirri forsendu að ístra hafi neikvæðan merkingarblæ og sé ekki eins hlutlaust heiti og kviðfita. Microalbuminuria Þessu fyrirbæri er lýst í læknisfræðiorðabók Dorlands: aukning á þvagútskilnaði albúmíns, sem er oflítil til að mœlast með hefðbundnum hœtti, finnst oft samfara ofsíun sem tengist insúlínháðri sykursýki. Micro- hefur oftast verið þýtt sem smá-, en í þessu tilviki gæti for- liðurinn ör- hæft betur, enda magnið örlítið. Eggja- hvíta og hvíta hafa verið að láta undan síga fyrir töku- orðinu prótín (sjá 99. pistil). Svo er það spurning hvort ekki eigi fremur að nota heitið albúmín. Nefna má að ekki eru allir ánægðir með heitið miga (sjá 105. pistil). Loks er það röð orðhlutanna. Þetta er í raun „örmiga albúmíns“. Sé nauðsynlegt að þjappa þeim í eitt orð koma albúmínörmiga og öralbúmínmiga bæði til greina, einnig hvítuörmiga eða örhvítumiga. í bili lýst undirrituðum þó best á örmigu albúmíns. Dyslipidemia Þetta heiti finnst ekki í íðorðasafni lækna. 'í læknis- fræðiorðabók Dorlands er fyrirbærinu lýst þannig: af- brigðileg gerð eða afbrigðilegt magn fituefha og fitu- prótína í blóði. Merkingin er þannig mjög almenn. í sömu bók má einnig finna heitið dyslipidosis sem er sagt tákna truflun á fituefnaskiptum, sem getur verið annað- hvort staðbundin eða almenn. Undirritaður getur vel sætt sig við að þýða dyslipidemia með íslenska heitinu blóðfituröskun. Röskun hefur reyndar verið notað sem þýðing á disorder, en ekki verður séð að það trufli hér. Hormónaheiti Loks var Rafn að velta fyrir sér heitum á einu hormóni, thyrotropin, og hvernig það væri best tákn- að á rannsóknabeiðnum. TSH er hefðbundin skamm- stöfun á enska heitinu thyroid-stimulating hormone og getur hentað vel á eyðublöð þar sem rýmið er af skornum skammti. Thyrotropin er samheiti sem fara má með eins og efna- eða lyfjaheiti og umrita nokkurn veginn hljóðrétt sem týrótrópín. Heitið hormón hefur náð útbreiðslu meðal al- mennings. Eftirtektarvert er að það er notað í eintölu sem hvorugkynsorð, hormónið, en í fleirtölu oft sem karlkynsorð, hormónarnir. Iðorðasafn lækna til- greinir einnig heitið vaki. í samræmi við það nefnist thyrotropic hormone skjaldvakakveikja. Heitið skjaid- vakakveikja hefur þó aldrei hugnast undirrituðum. Engin snilldarlausn er í sjónmáli en spyrja má hvort nota megi heitin skjaldkirtilörvi eða skjaldörvi um efni sem örvar skjaldkirtilinn. Læknablaðið 2002/88 67
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.