Læknablaðið - 15.01.2002, Side 68
Góða nótt
ö.
' % :: i
2 %
Zopiklon NM Pharma
Gerard TÖFLUR (filmuhúðaöar)
N05CF01 RO
LYFJAÞRÓUN • HUGVIT • GÆÐI
www.delta.is
Hver tafla inniheldur: Zopiclonum INN 5 mg eða 7,5 mg. Litarefni
titantvioxíö (E-171). Ábendingar: Tímabundnar og skammvinnar
svefntruflanir. Stuðningsmeðferð viö langvarandi svefntruflunum
í stuttan tíma í senn. Skammtar og lyfjagjöf: Skammtastœrðir
handa fullorðnum: Venjulegur byrjunarskammtur er 5 mg rétt
fyrir svefn. Þeir sem ekki svara þeim skammti ættu að fá 7,5 mg.
Meðferðartiminn ætti ekki að vera lengri en 4 vikur. Ekki ætti að
gleypa töflurnar útafliggjandi vegna hægara frásogs.
Skammtastœrðirhanda börnum: Engin reynsla er af notkun lyfsins
hjá börnum. Frábendingar: Alvarleg lifrarbilun, kæfisvefn og
vöövaslensfár. Varnaðarorð og varúðarreglur: Sýna ætti sérstaka
varúð viö lifrarbilun, öndunarbilun og þegar mjög veikir aldraöir
sjúklingar eða fólk með sögu um lyfjamisnotkun er meðhöndlað.
Þetta á einnig viö þegar önnur geðlyf eru notuð samtímis. Foröast
ætti samtimis neyslu alkóhóls. Bæði andlegir og líkamlegir
sjúkdómar geta valdið svefntruflunum og rannsaka ætti langvarandi
svefntruflanir með tilliti til þess. Meðferð með svefnlyfjum ætti
að vera tímabundin eða með hléum til að minnka hættu á
fráhvarfseinkennum. Skyndileg stöðvun á langtíma svefn-
lyfjameðferð getur stundum leitt til svefntruflanna i nokkrar
nætur. Ekki er komin klinisk reynsla á meöferð með lyfinu hjá
börnum. Ávanahætta er til staðar og ætti það að vera tekið til
athugunar þegar lyfinu er ávísað. Milliverkanir: Erýtrómýcin
hækkar blóðþéttni zópiklóns. Rifampicin eykur umbrot zópíklóns
verulega. Samtímis gjöf á ítrakonazóli eykur aðgengi zópiklóns
um 70%. Slævandi áhrif geta aukist ef notað samtimis áfengi
eða öðrum lyfjum sem slæva miötaugakerfið. Efni sem draga úr
virkni ákveöinna lifrarenzýma (sérstaklega P450) geta aukið áhrif
lyfsins. Meðganga og brjóstagjöf: Kliniskar upplýsingar um
þungaðar konur eru takmarkaðar. Þvi ætti ekki að ávisa þunguðum
konum zópiklóni. Zópiklón skilst i litlu magni út i brjóstamjólk.
Akstur og stjórnum vinnuvéla: Á meðan á meðferð með zópiklóni
stendur getur skert viðbragösgeta sést hjá sumum sjúklingum.
Þetta ætti að hafa í huga þegar þörf er á aukinni eftirtekt, t.d.
við akstur. Aukaverkanir: Um 10% sjúklinga finna fyrir einhverjum
aukaverkunum. Algengasta aukaverkunin er biturt bragð, yfirleitt
skammvinnt, sem um 4% sjúklinga finna fyrir. Næst algengasta
aukaverkunin er sljóleiki sem er skammtaháð. Algengar (>ltyo):
Almennar: Biturt bragð i munni, munnþurrkur. Miötaugakerfi:
Sljóleiki. Sjaldgœfar (0,1-1%): Almennar: Höfuðverkur, svimi-
Miðtaugakerfi: Órói, breytt draumamynstur. Meltingarfæri: Ógleði-
Mjög sjaldgœfar (<0,1%): Miðtaugakerfi: Hræöslutilfinning.
skapstyggð, árásarhneigð, ofskynjanir, rugl, einbeitingarskortur,
minnistruflanir. Húð: Útbrot. Útlit taflna: Töflur 5 mg: Hvítar,
filmuhúðaðar, kringlóttar töflur, 7 mm í þvermál, merktar "Z05"
öðrum megin og "G" hinum megin. Töflur 7,5 mg: Hvítar.
sporöskjulaga, 10 mm x 5 mm, með deilistriki. Merktar Z sitt
hvoru megin viö deilistrik og 7,5 á hinni hlið. Pakkningar og
verð: Töflur 5 mg: 30 stk. (þynnupakkað) 458 kr., 250 stk-
(sjúkrahússpakkning) 2.234 kr. Töflur7,5mg: 10 stk. (þynnupakkað)
265 kr.; 30 stk. (þynnupakkaö) 221 kr., 250 stk. (sjúkrahússpakkning)
2.587 kr. Hámarksmagn sem ávisa má með lyfseðli er 225 mg-
22.11.2001