Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.2002, Page 68

Læknablaðið - 15.01.2002, Page 68
Góða nótt ö. ' % :: i 2 % Zopiklon NM Pharma Gerard TÖFLUR (filmuhúðaöar) N05CF01 RO LYFJAÞRÓUN • HUGVIT • GÆÐI www.delta.is Hver tafla inniheldur: Zopiclonum INN 5 mg eða 7,5 mg. Litarefni titantvioxíö (E-171). Ábendingar: Tímabundnar og skammvinnar svefntruflanir. Stuðningsmeðferð viö langvarandi svefntruflunum í stuttan tíma í senn. Skammtar og lyfjagjöf: Skammtastœrðir handa fullorðnum: Venjulegur byrjunarskammtur er 5 mg rétt fyrir svefn. Þeir sem ekki svara þeim skammti ættu að fá 7,5 mg. Meðferðartiminn ætti ekki að vera lengri en 4 vikur. Ekki ætti að gleypa töflurnar útafliggjandi vegna hægara frásogs. Skammtastœrðirhanda börnum: Engin reynsla er af notkun lyfsins hjá börnum. Frábendingar: Alvarleg lifrarbilun, kæfisvefn og vöövaslensfár. Varnaðarorð og varúðarreglur: Sýna ætti sérstaka varúð viö lifrarbilun, öndunarbilun og þegar mjög veikir aldraöir sjúklingar eða fólk með sögu um lyfjamisnotkun er meðhöndlað. Þetta á einnig viö þegar önnur geðlyf eru notuð samtímis. Foröast ætti samtimis neyslu alkóhóls. Bæði andlegir og líkamlegir sjúkdómar geta valdið svefntruflunum og rannsaka ætti langvarandi svefntruflanir með tilliti til þess. Meðferð með svefnlyfjum ætti að vera tímabundin eða með hléum til að minnka hættu á fráhvarfseinkennum. Skyndileg stöðvun á langtíma svefn- lyfjameðferð getur stundum leitt til svefntruflanna i nokkrar nætur. Ekki er komin klinisk reynsla á meöferð með lyfinu hjá börnum. Ávanahætta er til staðar og ætti það að vera tekið til athugunar þegar lyfinu er ávísað. Milliverkanir: Erýtrómýcin hækkar blóðþéttni zópiklóns. Rifampicin eykur umbrot zópíklóns verulega. Samtímis gjöf á ítrakonazóli eykur aðgengi zópiklóns um 70%. Slævandi áhrif geta aukist ef notað samtimis áfengi eða öðrum lyfjum sem slæva miötaugakerfið. Efni sem draga úr virkni ákveöinna lifrarenzýma (sérstaklega P450) geta aukið áhrif lyfsins. Meðganga og brjóstagjöf: Kliniskar upplýsingar um þungaðar konur eru takmarkaðar. Þvi ætti ekki að ávisa þunguðum konum zópiklóni. Zópiklón skilst i litlu magni út i brjóstamjólk. Akstur og stjórnum vinnuvéla: Á meðan á meðferð með zópiklóni stendur getur skert viðbragösgeta sést hjá sumum sjúklingum. Þetta ætti að hafa í huga þegar þörf er á aukinni eftirtekt, t.d. við akstur. Aukaverkanir: Um 10% sjúklinga finna fyrir einhverjum aukaverkunum. Algengasta aukaverkunin er biturt bragð, yfirleitt skammvinnt, sem um 4% sjúklinga finna fyrir. Næst algengasta aukaverkunin er sljóleiki sem er skammtaháð. Algengar (>ltyo): Almennar: Biturt bragð i munni, munnþurrkur. Miötaugakerfi: Sljóleiki. Sjaldgœfar (0,1-1%): Almennar: Höfuðverkur, svimi- Miðtaugakerfi: Órói, breytt draumamynstur. Meltingarfæri: Ógleði- Mjög sjaldgœfar (<0,1%): Miðtaugakerfi: Hræöslutilfinning. skapstyggð, árásarhneigð, ofskynjanir, rugl, einbeitingarskortur, minnistruflanir. Húð: Útbrot. Útlit taflna: Töflur 5 mg: Hvítar, filmuhúðaðar, kringlóttar töflur, 7 mm í þvermál, merktar "Z05" öðrum megin og "G" hinum megin. Töflur 7,5 mg: Hvítar. sporöskjulaga, 10 mm x 5 mm, með deilistriki. Merktar Z sitt hvoru megin viö deilistrik og 7,5 á hinni hlið. Pakkningar og verð: Töflur 5 mg: 30 stk. (þynnupakkað) 458 kr., 250 stk- (sjúkrahússpakkning) 2.234 kr. Töflur7,5mg: 10 stk. (þynnupakkað) 265 kr.; 30 stk. (þynnupakkaö) 221 kr., 250 stk. (sjúkrahússpakkning) 2.587 kr. Hámarksmagn sem ávisa má með lyfseðli er 225 mg- 22.11.2001

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.