Læknablaðið - 15.01.2002, Side 69
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FARALDSFRÆÐI 14
Faraldsfræðí í dag
Lýsandi rannsóknir II
María
Heimisdóttir
Netfang:
mariah@decode.is
í SÍÐUSTU GREIN VAR RÆTT UM LÝSANDI FARALDS-
fræðilegar rannsóknir, einkum fylgnirannsóknir. Nú
verður fjallað um aðra meginflokka lýsandi rann-
sókna, það er lýsingar á sjúkratilfellum (case reports)
og þverskurðarrannsóknir (cross-sectional surveys).
Tímarit um læknisfræði birta iðulega lýsingar á
sjúkratilfellum sem þykja sérlega áhugaverð, torræð
eða óvenjuleg á einhvern hátt. Ekki ómerkara rit en
New England Journal of Medicine hefur til dæmis
um langt skeið birt slíka lýsingu í hverju tölublaði.
Lýsingar af þessu tagi geta fjallað um einn einstakling
eða um hóp sjúklinga sem þykir svipa saman. Venju-
lega er rakin sjúkrasaga, einkenni og niðurstöður
klínískrar skoðunar og síðan fjallað af mismikilli ná-
kvæmni um þær rannsóknir og próf sem notuð voru
til að átta sig á sjúkdómnum. Stundum er jafnvel lýst
þeirri meðferð sem beitt var og árangri hennar. Pann-
ig er dregin upp mynd af birtingu og gangi sjúkdóms
eða einkennum ákveðins einstaklings eða einstak-
linga en ekki er um samanburð við aðra einstaklinga
eða hópa að ræða nema að mjög takmörkuðu leyti.
Slíkar lýsingar hafa oft vakið athygli manna á nýj-
um eða áður óþekktum sjúkdómum og á áður
óþekktum áhrifum utanaðkomandi áreita. Þannig
geta þær orðið kveikjan að nýjum kenningum og
frekari rannsóknum. Árið 1974 lýstu Creech og
Johnson þremur tilvikum þar sem verkamenn í
gúmmíverksmiðju greindust með æðasarkmein í lif-
ur. Þetta krabbamein er sjaldgæft og því mjög ósenni-
legt að þrjú slík tilfelli finnist á svo skömmum tíma á
sama stað. I Ijós kom að mennirnir höfðu allir unnið
með vínylklóríð sem síðari rannsóknir sýndu að geta
orsakað slík æxli. Á svipaðan hátt voru lýsingar á
óvanalegum sjúkdómum meðal samkynhneigðra
karla í Kaliforníu, svo sem Kaposi sarkmeinum og
lungnabólgu af völdum lungnabólgusníkils (pneumo-
cystis carinii), til þess að hrinda af stað rannsóknum
er leiddu til uppgötvunar HJV veiranna og eyðni.
Þrátt fyrir óumdeilanlega gagnsemi lýsinga á
sjúkratilfellum er mikilvægt að hafa í huga að slíkar
lýsingar á reynslu einstaklinga geta sannað orsaka-
samband milli áreitis og útkomu. Jafnvel þó um lýs-
ingar á hópum einstaklinga með svipaða sjúkrasögu
sé að ræða er enginn samanburðarhópur til staðar og
því geta niðurstöðurnar einvörðungu þjónað sem
grundvöllur nýrra kenninga sem prófa verður með
frekari rannsóknum.
Þverskurðarrannsóknir eru þriðja megintegund
lýsandi rannsókna. Þá er samtímis safnað upplýsing-
um bæði um áreiti eða áhættuþætti og útkomur eða
sjúkdóma. Söfnunin getur farið fram á skilgreindu
tímaskeiði, til dæmis á einu ári í skilgreindu þýði, eða
á skilgreindum tíma, svo sem við upphaf náms eða
þegar sótt er um nýtt starf. Þverskurðarrannsóknir
eru eins konar ljósmynd af heilsufari hóps á ákveðn-
um tíma og geta því verið mjög gagnlegar sem grund-
völlur lýðheilsuaðgerða og við skipulag heilbrigðis-
mála. Einnig má nota þær til að meta og fylgjast með
algengi ákveðinna sjúkdóma eða annarra heilbrigðis-
útkoma, til dæmis í ákveðnum starfsstéttum. Hins
vegar er yfirleitt ekki unnt að nota slíkar rannsóknir
til þess að prófa kenningar um orsakasamband áreitis
og sjúkdóms eða meta áhættu er stafar af tilteknu
áreiti. Þetta er vegna þess að gögnum um áreiti og
sjúkdóm er safnað samtímis og ekki er alltaf ljóst
hvort kom á undan. Jafnvel þó hægt sé að átta sig á
tímaröð áreitis og sjúkdóms er erfitt að ganga úr
skugga um að áreitið hafi verið til staðar í nægilegum
mæli og á „réttum" tíma til að geta verið orsök sjúk-
dómsins. Auk þess getur tilkoma sjúkdómsins (hvort
sem hann hefur verið greindur eða ekki) haft áhrif á
áreitið og að hve miklu leyli það er lil staðar. Þannig
er ekki ólíklegt að þeir sem hafa óþægindi frá öndun-
arvegum reyni að draga úr reykingum. Því endur-
spegla þær upplýsingar sem fást um áreitið samtímis
upplýsingaöflun um sjúkdóminn ekki endilega hið
raunverulega áreiti sem ef til vill átti þátt í að valda
sjúkdómnum.
Þar sem þverskurðarrannsóknir byggjast á sjúk-
dómstilfellum sem eru til staðar á ákveðnum tíma
(prevalent cases), en ekki eingöngu nýjum tilfellum
(incident cases) eru niðurstöður þeirra litaðar af
þeim þáttum er stýra lifun og bata af sjúkdómnum.
Ef slík rannsókn sýnir til dæmis að tiltekinn sjúkdóm-
ur er algengari meðal karla en kvenna er ekki hægt
að útiloka þá kenningu að sjúkdómurinn komi í raun
jafnoft fyrir hjá báðum kynjum eða jafnvel oftar
meðal kvenna, en að lifun þeirra eftir að sjúkdómur-
inn kemur fram sé mun skemmri en karla.
I ákveðnum tilvikum er þó unnt að nota gögn úr
þverskurðarrannsóknum til að meta orsakasamband
áreitis og sjúkdóms eða meta áhættu af áreiti. Þá er um
að ræða áhættuþætti sem eru stöðugir og óbreyttir í tím-
ans rás, jafnvel eftir að sjúkdómurinn verður til og er
greindur. Oftast er þá um að ræða áhættuþætti sem erf-
ast, svo sem blóðflokka eða aðra arfbundna eiginleika.
Heimildir
1 Creech, Johnson. Angiosarcoma of the liver in the
manufacture of polyvinyl chloride. J Occup Med 1974; 16:151.
2 Centers for Disease Control. Pneumocystis pneumonia - Los
Angeles. MMWR 1981; 30: 250.
3 Centers for Disease Control. Kaposi’s sarcoma and Pneumo-
cystis pneumonia among homosexual men - New York City
and California. MMWR 1981; 30: 305.
Læknablaðið 2002/88 69