Læknablaðið - 15.09.2003, Page 36
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AÐALFUNDUR LÆKNAFÉLAGS (SLANDS
Aðalfundur LÍ að Hólum 22.-23. ágúst
Ungir læknar endurheimtir í friði og ró
- Veðurblíðan var í aðalhlutverki og ríkti bæði innandyra og utan
Það er engin þörfað kvarta
þegar blessuð sólin skín
voru eiginlega einkunnar-
orð aðalfundarins á
Hólum.
Þröstur
Haraldsson
Skagafjörður skein við sólu meðan aðalfundur
Læknafélags íslands stóð yfir að Hólum í Hjaltadal.
Starfshópar lágu úti á túni við störf sín og það var
með naumindum að hægt væri að draga menn inn úr
sólinni til að sinna fundarstörfum. Kannski var það
þess vegna sem þau gengu fljótt og vel fyrir sig og al-
mennur friður og eindrægni einkenndi aðalfundinn.
Eða var það kannski bleikjan sem fram var borin?
Fundurinn fór fram samkvæmt settum reglum og
hófst laust upp úr hádegi föstudaginn 22. ágúst með
ávarpi Sigurbjörns Sveinssonar formanns. Þar ræddi
hann nokkuð um skattamál og afkomu lækna og
fagnaði því að stjórnvöld skuli vilja ýta undir frjálsan
atvinnurekstur og örva framtak einstaklinganna til
að sjá sér farborða. Einnig drap hann á þá umræðu
sem verið hefur í gangi um lyfjakostnað og þá ný-
lundu að læknar séu kallaðir til ábyrgðar á því að
hann þenjist út. Auglýsti hann eftir faglegri og mál-
efnalegri umræðu um þennan sem og aðra þætti heil-
brigðismála sem læknar væru fúsir til að taka þátt í.
Að loknu ávarpi formanns steig Jón Kristjánsson
heilbrigðisráðherra í pontu. Hann fagnaði því að fá
tækifæri til að ávarpa lækna, ekki síst svo nærri
æskustöðvum sínum. Hann sagði frá því að þegar
hann kom í ráðuneytið hefði maður gengið undir
manns hönd að vara hann við læknum og þeirra véla-
brögðum. Hann hefði hins vegar átt við þá afar
ánægjulegt samstarf sem hann vildi gjarnan auka.
Ráðherra fór yfir sviðið eins og það blasir við hon-
um úr ráðuneytinu og drap á þá þætti heilbrigðismála
sem hæst ber um þessar mundir. Ekki sagði hann
miklar fréttir en boðaði þó að á næstunni yrðu teknar
ákvarðanir um sjálfstæðan rekstur heilsugæslulækna
á grundvelli viljayfirlýsingar hans frá því í fyrrahaust.
Einnig greindi hann frá því að nú væri unnið að smíði
tveggja frumvarpa sem snerta lækna, annars vegar
endurskoðun á lögum um heilbrigðisþjónustu og hins
vegar frumvarp til laga um réttindi og skyldur heil-
brigðisstétta.
Að ávarpi ráðherra loknu gafst fundarmönnum
tækifæri til að varpa fram fyrirspurnum og var greini-
legt að ýmislegt lá læknum á hjarta. Það var til dæmis
spurt hvort boðuð endurskoðun á lögum um heil-
brigðisþjónustu þýddi að læknalögin féllu úr gildi og
hvort læknar fengju að hafa hönd í bagga með þeirri
endurskoðun. Ráðherra svaraði því til að frumvarps-
smíðin færi fram í starfshópi en þegar hann lyki störf-
um yrði frumvarpið lagt fram til almennrar umfjöll-
unar.
Mest var þó spurt um þróun Landspítalans. Lækn-
ar auglýstu eftir stefnu varðandi hlutverk spítalans,
hvaða starfsemi þar skuli fara fram, hvort ætlunin
680 Læknablaðið 2003/89