Læknablaðið - 15.09.2003, Page 39
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AÐALFUNDUR LÆKNAFÉLAGS ÍSLANDS
arsamtökunum vegna óánægju með kjarasamning-
ana sem voru gerðir vorið 2002. Af þeim sökum þurfti
að breyta ákvæðum um stjórnarkjör í lögum LI og
birtist 9. greinin hér með áorðnum breytingum.
9.gr.
Skipan og kjör stjórnar
Stjórn félagsins skipa tíu menn, formaður, ritari,
varaformaður, féhirðir og sex meðstjórnendur.
Formenn Félags íslenskra heimilislækna, Sér-
fræðingafélags íslenskra lækna og Félags ungra
lækna eru sjálfkjörnir meðstjórnendur. Þrír með-
stjórnendur eru kosnir á aðalfundi úr hópi félags-
manna. Stjórnarmenn skulu vera frá a.m.k.
tveimur aðildarfélögum.
Formaður, ritari, varaformaður og féhirðir
skulu kosnir hver fyrir sig til tveggja ára í senn.
Annað árið skal kjósa formann og féhirði, en hitt
árið ritara og varaformann. Séu fleiri en tveir í
framboði og falli atkvæði að jöfnu, skal kjósa
aftur milli þeirra tveggja, sem flest atkvæði hlutu.
Falli atkvæði aftur að jöfnu, eða hafi tveir verið í
kjöri og atkvæði fallið að jöfnu, skal hlutkesti
ráða. Þrír meðstjórnendur skulu kosnir til eins árs
í senn. Verði atkvæði jöfn við kjör þeirra, skal
hlutkesti ráða.
Ef atkvæði falla jöfn í atkvæðagreiðslu stjórnar
skal atkvæði formanns ráða.
Kjósa skal tvo skoðunarmenn og einn til vara
úr hópi félagsmanna til eins árs í senn.
Samkvæmt lögum félagsins áttu formaður, gjald-
keri og tveir meðstjórnendur að ganga úr stjórn. Þeir
gáfu allir kost á sér til endurkjörs og er stjórnin því
óbreytt en hún er þannig skipuð:
Sigurbjörn Sveinsson formaður
Jón Snædal varaformaður
Hulda Hjartardóttir ritari
Birna Jónsdóttir gjaldkeri
Ófeigur Þorgeirsson meðstjórnandi
Páll H. Möller meðstjórnandi
Sigurður E. Sigurðsson meðstjórnandi
Sigurður Björnsson meðstjórnandi
Þórir B. Kolbeinsson meðstjórnandi
Oddur Steinarsson meðstjórnandi.
Þrír þeir síðastnefndu eru formenn Sérfræðinga-
félags íslenskra lækna, Félags íslenskra heimilis-
lækna og Félags ungra lækna.
Loks ber þess að geta að aðalfundurinn sam-
þykkti að hækka félagsgjaldið um 10 af hundraði,
eða úr 55.000 krónum á ári í 60.500 krónur.
Þarf nýja læknadeild?
Að vanda var boðið til málþings á laugardagsmorgn-
inum. Þar voru tvö málefni til umræðu. Fyrst hélt
Jesper Poulsen formaður Danska læknafélagsins
afar fróðlegt erindi um öryggi sjúklinga í hinu hættu-
lega heilbrigðiskerfi og verða því gerð betri skil í
næsta blaði. Hitt umræðuefnið var Læknadeild Há-
skóla íslands og samstarf hennar og lækna. Kveikjan
að þeirri umræðu var stjórnarfundur LI að Hótel
Rangá - Rangárfundurinn - þar sem þeirri hugmynd
var varpað fram hvort tímabært væri að setja á lagg-
irnar nýja læknadeild til þess að veita þeirri gömlu
aðhald og skerpa undir kötlunum sem sumum finnst
vera orðnir heldur kraftlitlir.
Frummælendur voru Stefán B. Sigurðsson núver-
andi forseti læknadeildar, Reynir Tómas Geirsson
fyrrverandi deildarforseti sem reyndar flutli einnig
fyrirlestur Kristjáns Erlendssonar varaforseta deild-
arinnar sem var forfallaður, Ófeigur Þorgeirsson
stjórnarmaður í LÍ og Oddur Steinarsson formaður
Félags ungra lækna.
Hafi einhver átt von á því að menn rykju saman í
illindum hefur sá hinn sami orðið fyrir vonbrigðum.
Umræðan var hin fróðlegasta og afar málefnaleg.
Fulltrúar deildarinnar greindu frá því sem helst hefur
verið á döfinni í læknadeild að undanförnu og bar þar
hæst nýja aðferð við inntöku nemenda og breytta
námskrá sem tekur gildi á næstu þremur árum. Stef-
án deildarforseti greindi einnig frá umræðum sem
verið hafa innan veggja Háskóla íslands um skipu-
lagsmál, meðal annars um að sameina allar heilbrigð-
isdeildir í einn heilbrigðisskóla sem yrði hluti af Há-
skólanum en með aukið sjálfsforræði. Allt er þó enn
óráðið í þeim efnum.
Fundarmenn og frummælendur úr röðum óbreyttra
lækna gagnrýndu einkum að deildin væri stíf og
þunglamaleg og að langan tíma tæki að koma breyt-
ingum í gegn þótt þær væru orðnar mjög aðkallandi
úti í samfélaginu. Var því beint til deildarinnar hvort
ekki væri hægt að tryggja örari mannaskipti í kenn-
arastöðum, til dæmis með því að gefa mönnum kost á
að helga sig rannsóknum. Fulltrúar læknadeildar svör-
uðu því til að þetta væri vissulega til umræðu en
Pau báru hitann og
þungann af skipulagningu
fundarins, frá vinstri:
Gunnar Ármannsson,
Margrét Aðaisteinsdóttir og
Sigurbjörn Sveinsson.
Læknablaðið 2003/89 683