Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.09.2003, Side 42

Læknablaðið - 15.09.2003, Side 42
sftYrr XENICAL o r I i s t a t Tapið þyngd. Bœtið heilsu. •(Roche) F. Hoffmann-La Roche Ltd www.roche.com Flokkun eftir verkun: Lyf við offitu án verkunar á miðtaugakerfið (ATC-flokkun A08AB01). Lyfjaform og útlit: Hylki, blágrœn með áletrun ,ROCHE* og „XENICAL 120*. Virk innihaldsefni: Hvert hylki inniheldur 120 mg orlístat. Lyfhrif: Orlístat er kröftugt, sértœkt og langverkandi lyf sem hamlar virkni lípasa í meltingarveginum. Það verkar í maga og smágirni með því að mynda samgilt tengi við virka serín setið á lípasa í maga og lípasa frá brisi. Óvirka ensímið getur því ekki hýdrólýserað fitu úr fœðunni, á formi þríglýseríða, yfir í fríar fitusýrur og einglýserið. Ábendingar: Xenical er œtlað ásamt hitaeininga- skertu fœði til meðferðar hjá offitusjúklingum með þyngdarstuðul (BMI= þyngd(kg)/hœð(m)hœð(m)) hœrri eða jafn og 30 kg/m2 (BMI) eða yfirþyngdarsjúkllngum (BMI >28 kg/m2) með tengda áhœttuþœtti. Meðferð með oriístati œtti einungis að hefja ef megrunarfœði eingöngu hefur leitt til minnst 2,5 kg þyngdartaps á 4 vikum. Meðferð með orlí- stati á að hœtta eftir 12 vikur ef sjúklingi hefur ekki tekist að losa sig við a.m.k. 5% af líkamsþyngd slnni reiknað frá upphafi lyfjameðferðar. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir: Ráðlagður skammtur af orlístati er eitt 120 mg hylki, sem á að taka rétt fyrir, með eða allt að einni klst. eftir aðalmáltíð, þ.e. 3 hylki á dag. Sé máltíð sleppt eða hún án fitu á að sleppa að taka lyfið Inn. Sjúklingurlnn á að vera á fœði sem inniheldur öll nauðsynleg nœringarefni, en aðeins fœrri hita- einlngar en hans daglega þörf segir til um og œtti um 30% hitaelninganna að vera úr fitu. Mœlt er með ríkulegri neyslu ávaxta og grœnmetis. Daglegri neyslu fitu, kolvetna og próteins skal dreifa á þrjár aðalmáltíðir dagsins. Ekki hefur verlð sýnt fram á að orlístat skammtar stœrri en 120 mg þrisvar á dag bœti árangur. Áhrif orlístats lelða til aukningar á fitu í saur, strax 24-48 klukkustundum eftir inntöku. Þegar meðferð er hœtt verður fituinnihald hœgða yfirleitt aftur eins og það var fyrir meðferð, innan 48-72 klukku- stunda. Upplýsingar um öryggi og verkun eftir 2 ára notkun eru ekki fyrirllggjandi, því œtti meðferð með orlístati ekki að vara lengur en í 2 ár. Sérstaklr sjúklingahópar: Áhrif oriístats hjá sjúklingum með lifrar- og/eða nýrnabilun, börnum og öldruðum sjúklingum hafa ekki verið rannsökuð. Börn: Oriístat er ekki œtlað til notkunar handa börnum. Frábendingar: Langvinnt vanfrásogsheilkennl. Gallteppa. Brjóstagjöf. Þekkt ofnœmi fyrlr orlístati eða elnhverju af innihaldsefnum lyfsins. Orlístat er ekki ráðlagt til notkunar á meðgöngu. LYF VID OFFITU hylki 120 mg: 42 stk.; 84 stk. 1 hylki 3svar á dag með mat. Fylgikvillar offitu1: Thorarensen Lyf Lynghálsi 13 • 110 Reykjavík • Sími 530 7100 Verulega aukin áhœtta (yfir þreföld áhœtta) Töluvert aukin áhœtta (tvö- til þreföld áhœtta) Sykursýki (gerö 2) Gallblöðrusjúkdómar Hœkkaöar blóðfitur Insúlínviðnám Mœði Kœfisvefn Kransœðasjúkdómur Háþrýstingur Slitgigt I hnjám Þvagsýrudreyri/-gigt Lítillega aukin áhœtta (allt að tvöföld áhœtta) Brjóstakrabbamein eftir tíöahvörf Legslímukrabbamein Ristilkrabbamein Óeðlileg hormónaframleiðsla í œxlunarfœrum Fjölblöðru-eggjastokksheilkenni Minnkuð frjósemi Mjóbaksverkir Aukin óhœtta við svœfinqu Fósturgallar sem tengjast offitu móður Varnaöatorö og varúöarreglur: í klínískum rannsóknum var minnkun líkamsþyngdar við oriístat meðferð mlnni hjá sjúklingum með fullorðinssykursýki heldur en hjá sjúklingum sem ekki voru með sykursýki. Þegar oriístat er tekið getur nákvœmt eftiriit með sykursýkl lyfjameðferð verið nauðsynlegt. Meðferð með oriístati getur hugsanlega truflað frásog fituleysanlegra vítamína (A, D, E, K). Flestir sjúklinganna, sem fengu meðferð með orfístatí í allt að 2 ár í klíntskum rannsóknum voru með A-, D-, E- og K-vítamín og betakarótíngildi sem voru innan eðlilegra marka. Til aö tryggja fullnœgjandi nœringu á að ráðleggja sjúklingum á megrunarfœði að neyta fœðu sem inniheldur ávexti og grœnmeti og íhuga skal neyslu fjölvítamína. Vítamín á að taka minnst 2 klst, eftir gjöf oriístats eða að kvöldi fyrir svefn. Ráðleggja skal sjúklingum að halda sig við það matarœði sem mœlt er með (sjá kafla um skammta). Hœtta á meltingartruflunum (sjá kafla um aukaverkanir) getur aukist þegar oriístat er tekið með fiturikri fœðu (t.d. fœða með 2000 hltaelningum á dag, þar sem > 30% hitaeinlnga úr fitu jafngildir > 67 g af fitu). Daglegri fituneyslu œtti að dreifa á þrjár aðalmáltíðir dagsins. Ef orlístat er tekið með einstakri fituríkri máltíð, geta líkur á meltingartruflunum aukist. Milliverkanir: Samtímis gjöf orfetats og fíbrata, akarbósa eða lyfja sem valda lystarieysi er ekki ráðlögð ef rannsóknlr á milliverkunum eru ekki fyrirliggjandi. Þegar warfarin eða önnur segavarnarlyf eru gefin ásamt orlístati (stórir skammtar og langtíma meðíerð) á að fylgjast með blóðstorkugildum. Engar milliverkanir við biguaníð, dígoxín, fenýtóin, getnaðarvarnartöflur, nífedipín, nífedipin forðalyf, eða alkóhól hafa komið fram. Vítamín og betakarótín:loka þarf tillit til minnkunar á frásogi D- og E-vítamíns og betakarótíns (sjá kafla um Vamaðarorð og varúðarreglur). Ciclospórín: Vart hefur orðið við minnkun í þéttni ciclospórins í plasma ef það er gefið meö orfetati. Þess vegna er mœlt með því aö fylgst sé oftar en venja er með plasmagildum ciclospórins viö samhliða gjöf og eftlr að töku oriístats er hœtt þar til ciclospórinþéttni er stöðug (sjá Varnaðarorð og varúðarreglur). Meöganga og brjóstagjöí: Notkun orlístats á meðgöngu er ekki ráðlögð. Enn sem komiö er eru ekki fullnœgjandi upplýsingar fyrirliggjandi um töku orfetats hjá þunguðum konum til þess að meta hugsanleg áhrlf oriistats á því að valda afbrigðileika í fóstri eða eituráhrifum. Þar sem ekki er vitað hvort oriístat berst í brjóstamjólk á ekki að nota oriístat við brjóstagjöf. Akstur og stjórnun vinnuvéla: Ekkert hefur komið fram sem bent gœti til að lyfið hafi áhrif á hœfni til aksturs eða stjórnunar vélknúinna tœkja. Aukaverkanir: Aukaverkanir af völdum oriístats eru aðallega frá meltingarvegi. Á fyrsta meðferðarári voru algengustu aukaverkanirnar fitublettir frá endaþarmi (27% sjúklinga), hœgðavottur með vindgangi (24% sjúklinga), bráö þörf fyrir hœgðalosun (22% sjúklinga), fitugar/seigfljótandi hœgðir (20% sjúklinga), þunnfljótandi hœgðir (12% sjúklinga), aukin hœgðalosun (11% sjúklinga) og vangeta við stjórn á hœgðum (8% sjúklinga). Tíðni aukaverkana minnkaði með langtímanotkun orfístats. Algengar> 1%: Meltingarfœrí: Kviðverkir/-óþœgindi, vindgangur, þunnfljótandi hœgðir, linar hœgðir, verkir/óþœgindi í endaþarmi, tannkvillar og tannholdskvillar. Öndunarfœri: Sýkingar í efri öndunarfœrum, sýkingar í neðri öndunarfœrum. Miðtaugakerfí: Höfuðverkur. Kynfœri: Tíðatruflanir. Geð: Kvíði. Almennar: Þreyta. Þvagfœrí: Sýkingar í þvagrás. Fá tilfelli ofnœmis hafa verið tilkynnt. Aðaleinkenni kláði, útbrot, ofsakláði, ofsabjúgur og lofnœmi. Eftir markaðssetningu hefur verið tilkynnt um mjög sjaldgœf tilfelli á aukningu á transamínasa og alkaínfosfatasa í lifur. Ofskömmtun: Ekki hefur verið greint frá ofskömmtun orfetats. Einstakir 800 mg skammtar og endurteknir skammtar allt að 400 mg þrisvar á dag í 15 daga hafa verið prófaðir bœði hjá fólki sem er innan eðlilegra þyngdarmarka og hjá offitusjúklingum, án marktœkra aukaverkana. Auk þess hafa 240 mg skammtar þrisvar á dag verið gefnir offitusjúklingum í sex mánuði. Eigi umtalsverð ofskömmtun orfetats sér stað, er mœlt með því að fylgst sé með sjúklingnum í sólarhring. Rannsóknir á dýrum og mönnum hafa bent til þess að öll áhrif á líkamann af völdum hömlunar á lípasa gangi hratt til baka. Pakkningar og hámarksverö í smásölu frá 1.2.2002: Hylki 120 mg: 42 stk. (þynnupakkað): 6.521 kr.; 84 stk. (þynnupakkað): 11.964 kr. Greiöslufyrirkomulag: Tryggingastofnun rikisins tekur ekki þátt í grelðsu lyfsins nema sjúklingur hafi lyfjaskírtelni. Elli- og örorkulífeyrisþegar með lyfjaskírteini greiða að hámarki 1.375 krónur fyrir lyfiö, en aðrir að hámarki 4.950 krónur. Afgreiöslutilhögun: Lyfið er lyfseðilsskylt. Heimilt er að ávísa lyfinu til 100 daga notkunar í senn. Texti Sériyfjaskrár: Júlí 2001. Heimild: Obesity (Geneva, 3-5 June, 1997). Geneva: WHO.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.