Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.09.2003, Page 45

Læknablaðið - 15.09.2003, Page 45
UMRÆÐA & FRÉTTIR / í samtali við Læknablaðið segir landlæknir að nú eigi menn ekkert að vera að velta sér upp úr fortíð- inni heldur taka höndum saman við að efla hina nýju stofnun. „Við munum styðja hana með ráðum og dáð enda skiptir miklu að þeir sem veljast til forystu fyrir Lýðheilsustöð fái þann stuðning sem þeir þurfa til að ýta henni úr vör,“ sagði Sigurður Guðmundsson. Hvar á hún að vera? En það er fleira sem óvissa ríkir um í starfsemi Lýð- heilsustöðvar. Enn er lil dæmis allsendis óljóst hvar stöðinni verður fundinn staður. Þegar ljóst var orðið að stofnunin yrði sett á laggimar tóku að berast há- vær tilmæli frá vissum stöðum á landsbyggðinni um að hún yrði sett niður utan höfuðborgarinnar. Eink- um hefur verið bent á Akureyri sem vænlegan kost. Þar er bæði öflugur spítali og ungur háskóli með heil- brigðisdeild í örum vexti. Greinilegt var að þessi rök bitu á ráðherrann, í það minnsta meðan hann háði kosningabaráttu sína í Norðausturkjördæminu. Flestir þeirra sem starfa á sviði heilbrigðismála eru hins vegar á því að Lýðheilsustöð eigi hvergi heima nema á höfuðborgarsvæðinu. Fyrir því eru færð ýmis rök, svo sem að starfsemi ráðanna fjögurra sem undir stofnunina heyra fari öil fram í Reykjavík. Um skeið gældu einhverjir við þá hugmynd að stjórnsýsla stofnunarinnar gæti verið norðan heiða þótt ráðin störfuðu áfram í Reykjavík. Nú virðast menn líka hafa snúið baki við þeirri hugmynd. Hefur verið bent á að lífsvon hinnar nýju stofnunar sé ekki síst í því fólgin að henni takist að samræma starf þeirra sem vinna að forvömum og það verði ekki gert í gegnum síma norðan úr landi. Landlæknir segist telja það skipta mjög miklu máli að stofnunin verði á suðvesturhorninu. „Grunnhug- mynd þessarar stöðvar er að koma öllum forvörnum fyrir á einum stað og með fullri virðingu fyrir byggða- stefnunni þá yrði það ekki klínískri vinnu lil fram- dráttar að setja stöðina niður fjarri stærsta þéttbýlinu og öflugustu heilbrigðisstofnunum þjóðarinnar,“ segir hann og bætir því við að vissulega sé hægt að vinna einstök verkefni annars staðar en að stjórnunin og yfir- sýnin yfir rannsóknarstarfið verði að vera í stöðinni. Þetta sjónarmið virðist vera að sækja á því það sem nú er helst til umræðu er að stöðinni verði fund- inn staður á höfuðborgarsvæðinu en að hægt verði að fela til dæmis Háskólanum á Akureyri einstök af- mörkuð verkefni á sviði rannsókna og kennslu í lýð- heilsufræðum. Enn einn óvissuþátturinn í starfsemi hinnar nýju stofnunar er fjárhagurinn. Samkvæmt fjárlögum er áætlað að kostnaður við Lýðheilsustöð verði á þessu ári 18 milljónir króna, auk fimm milljóna sem áætlað- ar eru í stofnkostnað. Þetta hafa menn túlkað sem svo að heldur sé nú metnaður stjórnvalda rislítill. Þessi upphæð nægi til þess að ráða tvo starfsmenn, auk annars rekstrarkostnaðar, en ekki til að taka veru- lega á í forvarna- og lýðheilsumálum. Fjármögnun forvarnastarfs er með ýmsu móti. Til er á vegum hins opinbera Forvarnasjóður sem 1% af innheimtu áfengisgjaldi rennur í og eru tekjur hans áætlaðar um 77 milljónir króna á þessu ári. Hægt er að sækja um framlög úr sjóðnum lil lorvarnaverkefna í áfengis- og fíkniefnamálum. Einnig er Tóbaks- vamaráði markaður tekjustofn sem er 0,9% af brúttó- sölu á tóbaki. Hvorki Manneldisráð né Slysavarna- ráð hafa fasta tekjustofna. Fræðsla og rannsóknir mikilvægust Þeir sem til þekkja telja brýnast að efla sem mest rannsóknir og fræðslu á sviði forvarna og það kostar sitt. Þórólfur Þórlindsson prófessor og formaður Áfengis- og vímuvarnaráðs segist hafa kynnt sér við- horf í forvarnastarfi í nágrannalöndum okkar og þar sé alls staðar lögð mikil áhersla á rannsóknir og miðl- un upplýsinga. „Þetta er þungamiðja alls forvarna- starfs og byggist á þeirri hugmynd að með því að ná til fólks meðan það er á mótunarskeiði sé hægt að móta lífsstíl þess til frambúðar. Það er einnig lögð vaxandi áhersla á að meta forvarnaverkefni og ganga úr skugga um að þau skili árangri," sagði Þórólfur. Þorsteinn Njálsson læknir og formaður tóbaks- varnanefndar tekur undir það að rannsóknir séu nauðsynlegar en þar sé þó oft hægt að nýta betur það sem til er af gögnum. Oft sé það þannig að vitneskjan sé til en komist ekki til skila til almennings, þar geti meðal annarra læknar litið í eigin barm. Þorsteinn segir að stofnunin sé vissulega ómótuð en að það verði hlutverk nýs forstjóra að móta hana. „Hann getur gert hana að hefðbundinni stofnun sem stjórnar að ofan og niður. En hinn kosturinn er líka fyrir hendi að búa til lárétta stofnun sem starfar með félagasamtökum og sveitarfélögum á öllum sviðum forvarna.“ Hann bætir því við að þótt ekki sé gert ráð fyrir miklu fé til stofnunarinnar þá sé hægt að bæta úr því að einhverju leyti með því að sækja í sjóði Evrópu- sambandsins sem Islendingar hafi fullan aðgang að. Laufey Steingrímsdóttir framkvæmdastjóri Mann- eldisráðs er sammála þeim félögum um nauðsyn rannsókna og menntunar á sviði lýðheilsu. „Það er einnig nauðsynlegt að samhæfa forvarnir á sem flest- um sviðum og láta sér ekki nægja að fræða fólk held- ur að ýta á markvissan hátt undir heilbrigðan lífsstíl. Þess vegna þarf að fella fleiri svið undir Lýðheilsu- stöð en þessi fjögur sem nú er rætt um,“ segir Laufey. Þau Laufey og Þorsteinn eru raunar í hópi um- sækjenda um forstjórastarfið en hvort sem annað þeirra verður fyrir valinu eða einhver annar þá er fyllsta ástæða til að óska viðkomandi farsældar í starfi. Verkefnin sem við blasa eru stór og varðar miklu fyrir forvarnir í landinu að á þeim sé tekið af metnaði og reisn. LÝÐHEILSUSTÖÐ ■ 1 Læknablaðið 2003/89 689

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.