Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.09.2003, Side 54

Læknablaðið - 15.09.2003, Side 54
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÖG UM SJÚKLINGATRYGGINGU Lög um sjúklingatryggingu nr. 111/2000 - Fyrstu skref við framkvæmd nýrra laga Ingibjörg Georgsdóttir Una Björk Ómarsdóttir Ingibjörg Georgsdóttir er aðstoðartryggingayfirlæknir Tryggingastofnunar ríkisins. Una Björk Ómarsdóltir er lögfræðingur og deildarstjóri við Tryggingastofnun ríkisins. Þann 1. janúar 2001 tóku gildi lög nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu (STL). Lögin veita sjúklingum í ákveðnum tilvikum rétt til bóta fyrir líkamlegt eða geðrænt tjón sem verður í tengslum við rannsóknir eða sjúkdómsmeðferð á sjúkrahúsi, heilsugæslustöð eða annarri heilbrigðisstofnun, í sjúkraflutningum eða hjá heilbrigðisstarfsmanni sem starfar sjálfstætt. Einnig eru tryggðir þeir sem gangast undir læknis- fræðilega tilraun sem ekki er liður í sjúkdómsgrein- ingu eða meðferð á sjúkdómi einstaklingsins, og loks þeir sem gefa vef, líffæri, blóð eða annan líkams- vökva. Þó að lögin um sjúklingatryggingu hafi vissulega verið nýmæli var sjúklingatryggingin sern slík það ekki, því ákvæði um sjúklingatryggingu hafa verið í slysatryggingakafla laga um almannatryggingar frá árinu 1989 (1). Bætur voru greiddar vegna afleiðinga læknisaðgerða og mistaka starfsfólks og tryggingin tók eingöngu til opinberra sjúkrastofnana, það er að segja sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva. Bótaréttur var sá sami og launþegar hafa vegna vinnuslysa. Þetta fyrirkomulag álli þó aldrei að verða annað en bráða- birgðalausn þar til sérstök lög um sjúklingatryggingu yrðu sett enda vantaði allmikið upp á að sjúklingar hafi með þessum hætti átt rétt á bótum sem nálguðust það að vera fullar bætur. Frá árinu 1989 til 1. júlí 2003 bárust alls 542 tilkynningar um bótaskyld atvik samkvæmt eldri tryggingunni til Tryggingastofnunar ríkisins (TR), eða sem svarar til tæplega 50 tilkynn- inga á ári. Bótaskylda hefur verið samþykkt í 52% málanna, 28% umsókna synjað og 19% umsókna voru óafgreidd 1. júlí 2003. Markmiðið með setningu nýju laganna var að auka bótarétt sjúklinga sem bíða heilsutjón vegna áfalla í tengslum við læknismeðferð og jafnframt gera þeim auðveldara fyrir að ná rétti sínum (2). Sjúk- lingatryggingin veitir sjúklingum víðtækari rétt til bóta en flestum öðrum tjónþolum þar sem ekki þarf að sýna fram á að neinn beri skaðabótaábyrgð á tjón- inu. Rökin fyrir því eru meðal annars hversu erfitt getur verið að sanna sök á þessu sviði og einnig að víðtækur bótaréttur ætti að greiða fyrir því að fólk gefi líffæri og blóð og sjálfboðaliðar fáist til að gang- ast undir læknisfræðilegar tilraunir. Einnig er talið að sjúklingatrygging greiði fyrir því að sem víðtækastar upplýsingar fáist um það sem betur má fara í heil- brigðiskerfinu, dragi úr tortryggni milli sjúklinga og heilbrigðisstarfsmanna og geri heilbrigðisstarfsmenn samvinnufúsari við upplýsingaöflun þar sem ekki þarf að sýna fram á sök (3). Nýja tryggingin gildir aðeins um tjónsatvik sem eiga sér stað eftir 1. janúar 2001. Áfram er hægt að sækja um bætur úr eldri sjúklingatryggingunni vegna atvika sem áttu sér stað fyrir gildistöku nýju laganna. Nýju lögin voru samin að danskri fyrirmynd en einnig höfð hliðsjón af löggjöf hinna Norðurland- anna. Þess má geta að hliðstæð bótaúrræði eru ekki lil utan Norðurlanda (4). Lögin eru að flestu leyti víð- tækari en að sumu leyti einnig þrengri en eldra laga- ákvæði um sjúklingatryggingu. Sjúklingatryggingin er þess eðlis að málafjöldi er lítill í fyrstu en fer svo stigvaxandi. Yfirleitt líður þó nokkur tími frá tjónsatviki og þar til sótt er um bætur. Oftast er um að ræða nokkra mánuði og allt að einu til tveimur árum. Árið 2001 bárust 22 tilkynningar til TR um meint sjúklingatryggingartjón, árið 2002 voru þær 44 og fyrstu sex mánuði ársins 2003 barst 21 tilkynning. Ef litið er til reynslu Dana má búast við að á nokkrum árum muni málafjöldi vaxa í um 200 mál á ári, eða allt að fjórföldun á tilkynningum frá því sem var með eldri tryggingu. Mikilvægar skýringar er að finna í greinargerð með lögunum, einkum greinargerð með 2. gr. Lögin og greinargerðina má nálgast á netinu á eftirfarandi vefslóðum: Lögnr. 111/2000 www.altliingi.is/lagas/nuna/2000111. html Greinargerð www.althingi.is/altext/125/s/0836.html Hverjir eru tryggðir? Samkvæmt 1. gr. STL eru tryggðir þeir sjúklingar, það er notendur heilbrigðisþjónustu, sem verða fyrir lík- amlegu eða geðrænu tjóni í tengslum við rannsókn eða sjúkdómsmeðferð. Það er skilyrði að sjúklingur verði fyrir raunverulegu tjóni. Ef mistök verða en valda engu tjóni er bótaskylda ekki fyrir hendi. Þeir sem missa framfæranda við andlát slíkra sjúklinga eiga einnig bótarétt. Einnig eru tryggðir þeir sem gangast undir læknis- fræðilega tilraun sem ekki er liður í sjúkdómsgrein- ingu eða meðferð á sjúkdómi einstaklingsins, og loks þeir sem gefa vef, líffæri, blóð eða annan líkams- vökva. Þessir aðilar eru tryggðir þó þeir séu ekki sjúklingar. Þeir njóta almennt sama réttar og sjúk- lingar en eiga í vissum tilvikum ríkari rétt til bóta en aðrir tjónþolar (5). Hvar eru sjúklingar tryggðir? Gildissvið tryggingarinnar nær til alls heilbrigðiskerf- isins og allrar heilbrigðisþjónustu sem veitt er hér á landi. Ekki skiptir máli hvort kostnaður við heil- 698 Læknablaðið 2003/89

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.